Dedda Litla Prinsessa-Lukkuleg Pempía Á Pinnahælum

1. Eigandi Elísabet Halldórsdóttir 2. Eiginmaður Þrándur Tryggvason 3. sonur Steinar Máni Þrándarson 4. Lukkuleg pempía á pinnahælum

sunnudagur, apríl 30, 2006

...Dýrðardagur...

Í gærmorgun vöknuðum við snemma og fórum á Sólon og fengum okkur brunch og panini, þaðan var ferðinni heitið á laugarveg að fynna skyrtu og bindi handa kallinum svo var brunað uppí kringlu þar sem frúin var fulldressuð-hlupið heim og farið á opnun hjá tengdapabba.
Eftir annasaman og strembinn dag var haldið á lítið sætt kaffihús sem var voða spes, minnti mjög á gamla kaffistofu, þaðan var haldið á eldsmiðjuna og hámað í sig einni 12" gúrmeflatböku og ekið heim útúr þreytt alveg gjörsamlega úrvinda.
Sigurrós kíkti til mín áðan og leigðum við tvær gamanmyndir enn náðum ekki að ljúka þeirri fyrri þegar hún varð að bruna út djammið kallaði ég get ekki annað sagt enn ég sé fegin að vera ekki í þeim pakka lengur heldur njóta þess að slaka á heima í litla kotinu okkar Dánda.
Dándi skrapp í bæinn og er ég alveg hreint eyrðarlaus ykkur að segja við vorum að ræða það fyrr í dag yfir kvöldmatnum að við erum alltaf saman gjörsamlega háð hvort öðru. Blame the love:) Enn ég ætla að njóta þess að vera ein heima eitt kvöld og dekra við sjálfa mig:) nostalgía ummmh ken jú fíl it???
Knus & Kossar Dedda og litla bumbubarn;)

fimmtudagur, apríl 27, 2006

Annasamir dagar

Strembið plan framundan-á laugardaginn verður opnun sýningar Tryggva Ólafssonar sem er tengdapabbi minn, á sunnudeginum verður fagnað 27 ára afmæli Þrándar á Óðinsvé þar sem Siggi Hall mun elda ofan í mig Gerði, Tryggva, Þránd, Gýgju, Ara, Stíg og Lísu, á að vera forréttur og saltfiskur voða fínn í aðalrétt;o)
Á þriðjudag verður svo sónar og þá förum við Þrándur og þá er litla barnið okkar orðið það stórt að við ættum að geta séð hjartsláttinn sem á að vera hægt að greina þegar hér er komið sögu;o)
Í gær fór ég á alveg hreint trubblaða mynd með Halldóru hennar við fórum að sjá einhverja algjöra kjéllíngamynd enn skemmtum við okkur konunglega.
Við fórum til tengdó í smá stutt stop í gærkvöldi og þar fékk ég án efa einn sterkasta kaffibolla sem éghef bragðað á-arrrrg.
Þrándur keypti sér PSP tölvu í gær eftir að hafa auglýst eftir einhverri slíkri til sölu á X-inu og var varla hægt að ná sambandi við hann eftir það hann var svo í skýjunum-TÍHÍ.
Ég er búin að vera hálf slöppp í morgun og í nótt vaknaði með allmikla ógleði, þetta er fyrsta nóttin sem ég vakna til að pissa minnst 3svar og með ógleði 1X-Knus Knus

þriðjudagur, apríl 25, 2006

2. júní- 6. júní...ferðadagar

Tryggvi tengdó hringdi í gærkvöldi rétt fyrir mat og sagði að hann væri búinn að festa daga út 2.-6. júní það verður löng helgi hjá okkur, hvítasunnan ;o) Við fljúgum saman út litla fjölskyldan og gistum hjá tengdó, skoum okkur um, borðum góðan mat, verslum og njótum góðra samvista.

Ég hringdi í gær og fékk tíma í sónar-2. maí kl:8,40, þá verður elsku barnið mitt vonandi orðið nógu stórt að hægt verði að mæla hjartsláttinn ;o) svo er bara að bíða fram að 17. maí enn þá verður fyrsta mæðraverndarskoðun og þar sem við búum á höfuðborgarsvæði stimpluðu 105 hefum við kosið að sækja heilsugæslustöð Hlíðarsvæðis, fyrst var ég að pæla mikið í að velja MFS mynnir mig að það heiti enn þeir eru að hætta störfum seinna í haust svo barnið okkar verður ekki komið fyrir þann tíma þannig að þetta var næst besti kostur, þessi starfsemi sem við sóttumst eftir gengur út á það að hafa sömu ljósmóðirina og læknana í einu og öllu eftirliti, við fæðingu og í heimavitjunum eftir fæðingu, sem hefði verið hreint frábært enn Það er ekki hægt að gráta það krossleggja bara fingur og vona að þær í Hlíðunum séu jafn góðar og færar sem ég efa ekki.

Er farin að éta síðasta mangó bátinn minn LUV Dedda og litla bumbubarn;*;*

sunnudagur, apríl 23, 2006

Confirmation, frikadeller & snemmsónar

Jámm þessi sunnudagur er búinn að vera frekar annasamur byrjaði með snemmsónar uppá Landspítala kvennadeild þaðan var leiðinni haldið í fermingu hjá litla frænda Þrándar eða það er sonur Stígs sem er stóri bróðir Þrándar, þaðan var ekið gamla settinu heim (tryggva og Gerði) tengdó og haldið heim þar sem Dándi reykti eða öllu heldur saug eitt stykki kúpuvindil sem öllum karlmönum var færður í fermingunni svo var farið beinustu leið í kjötbollur í brúnni sósu í Seilugrandanum hjá Gýju og Ara enn Tryggvi átti heiðurinn að eldamennskunni.
Gulli Steinar bróðir minn er að fara til Köben á morgun svo Þrándur er búinn að vera að hamast á netinu og vafra um allt í leit að góðum verslunum fyrir kallinn að spreða í úti...ég er að springa ég hef étið svo yfir mig í allan dag-ahhh Dedda át;)

laugardagur, apríl 22, 2006

Hreingerningaræði

ég afrekaði það á innan við tveimur tímum að þrífa allt hátt og látt í Rauðalæknum, skúra, skrúbba og bóna eða þar um bil-hehe.
Er búin að vera með heilsugeðveiki undanfarið komin í strembið átak þar sem ég tek líkama sem sál í gegn, borða mikið að grænu og mikið af sykurskertum mjólkuraffurðum, drekk eilítið af kaffi sem Þrándur er ekki svo sáttur með allt koffínið sem ég get innbyrt, samt er ég alltaf til í að halla mér-fynnst með eindæmum gott að lúlla út án þess að vera trubbluð eða vakin-ummmh.
Menn helsti óvinur þessa dagana er malt í gleri sem ég er orðin voða skotin í þessa dagana og er að reyna að taka upp þess í stað heilbrigðari drykkjarmáta með því að innbyrða eins mikið af H2O og ég get í mig látið, reyni að hafa alltaf innan seilingar könnu af köldu vatni eða geyma flösku í kæliskápnum gamla góða.
Heilbrigður lífsstíll er allt sem þarf.
Er farin að matreiða fyrir tengdó Knus Knus

föstudagur, apríl 21, 2006

Prince sígarettur og danmörk hír ví kom;)

tengdó komu í dag og færðu Þrándi prince karton ekki það að ég hafi samþykkt það allavegana er ég furðu stolt af því hversu auðveldlega mér tókst að hætta að sjúga að mér nikótíni og tjörueitrinu í einum grænum enda ekki barni bjóðandi-arrrg sveiattann og ullabjakk, ég losaði mig við þann vonda ávana á nó tæm.
Enn málið er það að tengdó bauð mér og Þrándi til Danmarkar í júní og verð ég að segja að ég er bara orðin frekar spennt nú þegar, ég hef einu sinni komið til Danmörkur ef komið má kalla, ég milli lenti frá Helsingi í Copenhagen svo jámm það er allt og sumt, þetta litla stop kom þó að góðu því ég gróf einhvern gluggaupp sat á gluggasillunni og horfði yfir borgina og naut þess litla sem hægt var að njóta-enn nú verður það allt saman bætt upp með langri helgi í Danmörku, tak tak min bestefar;)

Eins gott að fara að netast og hita sig upp í dönskunni svo maður komi ekki algjörlega af fjöllum þanna í sumar;)

!! http://litliengillinnokkar.barnaland.is og muna að skrifa í gestó!! Dedda & gulrótarkríli át

Leiðarkerfi höfuðborgarsvæðisins

jámm gott fólk ég hélt ég myndi missa mig í morgun þegar það rann upp fyrir mér að ég yrði að stiðjast við leiðarkerfi strætisvagna höfuðborgarsvæðisins og nýta mér þann ferðamáta í fyrsta daginn minn í nýrri vinni, þannig er nebblilega mál með vexti að ég er að fara að kynna nýja alveg hreint trubblaða sólarvarnarlínu í Hagkaup í Spönginni fyrir þá sem ekki eru verlandarvanir þá er það verslunarkeðjan í Grafarvoginum gegnt Borgarholtsskóla:)
Enn viti menn ég er svo heppin að búa í alfaraleið því héðan ganga strætisvagnar víðsvegar og nánast hvert sem er á stór höfuðborgarsvæðinu án þess að þurfa að biðja um skiptimiða sem er kostur fyrir fólk eins og mig sem eru ekki miklar interrail týpur-tíhí.
Ég er búin að taka óratíma í að fynna rétta dressið sem hæfir og held ég að ég sé búin að komast niður á eitt alveg hreint trubblað smart dress;)
Ég er afvelta eftir bakarísmatinn í morgun og koffíndrykkju svo eg ætla að leggjast í sófan og planta fótunum ofan á einum arminum og kúra í sonna korter þar til ég þarf að þjóta út eftir STRÆTÓ!!

p.s. Á morgun erum við að fá fyrstu gestina í mat til okkar í litla kotið okkar í Rauðalæknum-tíhí, krossleggjum fingur og vonum að maturinn eigi eftir að bragðast vel;) Knus Knus Dedda & litla appelsínan

fimmtudagur, apríl 20, 2006

Gleðilegt Sumar Fólks

Sumardagurinn fyrsti er runninn upp ég gleymi því seint þegar það var risið upp snemma fengin sumargjöf í hendurnar, klætt sig upp og farið út í skrúðgöngu málaður íslenska fánanum jabbnvel á sytthvorar kynnar, það voru gömlu góðu dagarnir í DEN;*;*tíhí
Ég sobbnaði frekar snemma í gær eða við bæði skötuhjúin, vöknuðum svo fyrir allar aldir, ég snéri Þrándi því um nasir að hann keypti enga sumargjöf handa mér sem var kanski bara alveg eins gott því ekki keypti ég neina handa kallinum-arrrg.
Ég er búin að vera ansi dugleg að taka lýsistvennu eða við bæði bara-mamma skellti því á mig til að gefa litla ömmubarninu aukna orku og aukinn kraft svo er líka svo mikið járn í þessum többlum og þær eru hlaðnar vítamínum-allir hafa gott af því-lýsi gefur kraftinn;)
Ætla að kítla kallinn aðeins hann á það skilið fyrir að vera búinn að ögra mér mest allan morguninn-hehe Með Ást Dedda & litla Bumbukríli

miðvikudagur, apríl 19, 2006

Mangi Svangi

Ummmh-m&p buðu mér á Ask Brasserie áðan og át ég á mig gat tortillini, minestrone súpu, salat og djúpsteikt hvítlauksbrauð með pestó og hummus, nammmi nammi, svo er ammæliskaffiboð á morgun þannig að þá verður hamstrað í sig ennþá meiri freistingum-múhahaha.
Ligg núna útaf í frekar stórum pokabuksum, nudda bumbuna mína og kúra mér í sængina mína sem ég er ný búin að skipta á og góni á imbann-uss ekki trubbla Dedda Át;)

Sibbiskapur....og ómæld ógleði

jámm mínir hálsar ég er búin að zzzzz eins og ég fái borgað fyrir það, er orðin eins og litlu kinderin þau sobbna vakna til að snæða og sobbna aftur, það er nokkurnveginn ég í dag og í fyrradag, enn nú verður breyting á er að fara að vinna aftur þannig að letiblóð líðast ekki-atjú, svo er búið að hlaupa í mig eithvert kvef, ég er að hefja 8 viku meðgöngunnar og þar er talað um mikla þreytu og mikin aumleika í brjóstunum, ég get svo svarið fyrir það að það er líkast að ég hafi verið að koma úr búúbsjobb mig verkjar og ég emja ef þau eru snert, ég get ekki tekið tilhlaup í stutta vegalengd þá fara þau að kalla á stop-tíhí. Enn sonna er þetta og mér fynnst þetta alveg satt best ykkur að segja guðdómlegt, ógleðin er þá oftast nær mest á fyrripart dagsins ekki beint á morgnanna heldur um hádegisbilið og framtil miðdegiskaffis måske.
Ég er búin að vera eins og ég sagði frekar löt undanfarið fór í gær með mömmu í Krónuna að versla inn fyrir vikuna og viti menn ég varð alveg hreint uppgefin eftir búðarrápið, svo var ég að afkasta það að taka af rúminu gamla sængurverið og skipta yfir í hreint og hreint lak líka og ég er uppgefin vaskaði eilítið upp líka og var alveg ok Dedda mín nú verðuru að fá þér sæti og kvíla þig, manni hafði ekki órað fyrir að ófrískar konur væru svona orkulitlar ég tek upp hanskann fyrir þá sem ganga með allt upp í þrí-fjórbura í einu það er hreint kraftaverk fynnst mér ég er svo guðsfegin að vera verðandi móðir ég gæti kabbnað, ég er búin að óska þess svo lengi og nú er sem draumur minn sé að verða að veruleikum-ósk mín hefur ræst;*;* Knus Knus Dedda & litla bumbukríli eru farin að sötra á appelsínusafa.

þriðjudagur, apríl 18, 2006

Mála og bæsa

Ég og Dándi erum búin að vera í tiltektarstuði í fyrradag tókum við alla þá meina ég gjörsamlega alla íbúðina í gegn, þrifum hátt og látt. On Fredag munu tengdó fljúga til Íslands og dvelja yfir rúmt þriggja vikna tímabil-ætlum við að vera voða sæt og bjóða tengdó í dinner á laugardags eftirmiðdeginum-ummmh. Reyna að slá í gegn og vinna mér inn stjörnu í kladdann-hehe.
Í gærkvöldi var fjölskylduboð hjá ömmu Siggu og Gulla afa og kom í ljós að amma þekkti forfeður Dánda og átti tugi milljóna af myndum af þeim og var Dánda sýnt albúm á eftir albúm og mátti sjá stjörnublikið í augunum á honum-hehe. Að lokum færði amma Sigga okkur hníf sem hún hafði hlotið í brúðargjöf á sjöunda áratugnum, hann var áletraður og handskorinn og skreyttur og fékk hún hann frá skyldmennum Dánda-ömmu hans og afa minnir mig-furðulegt nokk það ha? Það er víst rétt sem sagt er I'm from Iceland were everyone knows everyone!! tíhí.
Farin að rúlla upp þvottinum reyna að hespa hann af áður enn hann fer að hlaðast upp eins og volcano-arrrrg. Ég var að nebbna það í gærkvöldi við Dánda að við hefðum gleymt að festa á filmu fyrstu pákskana okkar, við fengum sendar alveg hreint trubblaðar páskaliljur frá Köben og sprungu þær út eins og þeim væri borgað fyrir það hef-sjaldséðir hvítir hrabbnar segji ég bara. Knus Knus Dedda & Bumbukríli;*;*

mánudagur, apríl 17, 2006

Annar Dagur Í Páskum...Listinn sem gengið hefur manna á milli-hví ekki Dedda að taka þátt?

Hefur þú..(X) reykt sígarettu
( ) klesst á bíl vinar/vinkonu
( ) stolið bíl (foreldranna)
(x) verið ástfangin/n
( ) verið sagt upp af kærasta/kærustu
( ) verið rekin/n
( ) lent í slagsmálum
( ) læðst út meðan þú bjóst ennþá heima hjá foreldrunum
(x) haft tilfinningar til einhvers sem endurgalt þær ekki
( ) verið handtekin/n
( ) farið á blint stefnumót
(x) logið að vini/vinkonu
(x) skrópað í skólanum
(X) horft á einhvern deyja
( ) farið til Canada
( ) farið til Mexico
(x) ferðast í flugvél
( ) kveikt í þér viljandi (ekki alvarlega sko)
(x) borðað sushi
( ) farið á sjóskíði
(x) farið á skíði
( ) hitt einhvern sem þú kynntist á internetinu
(x) farið á tónleika
(x) tekið verkjalyf
(x) elskar einhvern eða saknar einhvers akkurat núna...jámm barnið litla í mallanum á mér og hann Dánda minn
(x) legið á bakinu úti og horft á skýin
(x) búið til snjóengil ... jafnvel án snjós
(x) haldið kaffiboð...jámm sérstaklega eftir að ég flutti að heiman í litla kotið okkar
(x) flogið flugdreka
(x) byggt sandkastala
(x) hoppað í pollum
(x) hoppað í laufblaðahrúgu
(x) rennt þér á sleða
(x) svindlað í leik...síðast í matador á móti Dánda í gær
(x) verið einmana...þegar Dándi fór til Rómar yfir jólahátíðina síðastliðna
(x) sofnað í vinnunni/skólanum
(x) notað falsað skilríki...mjög sjaldan á yngri árum
(x) horft á sólarlagið...síðast í bústaðarhreiðrinu sem við skötuhjúin fórum í í síðasta mánuði
(x) fundið jarðskjálfta
(x) sofið undir berum himni...úti á Costa Del Sol útúrkeyrð með Rúnu
(x) verið kitluð/kitlaður...síðast í gærkvöldi af Dánda uppi í sófa að kabbna úr hlátri
(X) verið rænd/rændur
(x) verið misskilin/n...oft þegar ég er að reyna að hjálpa enn virðist ansi dómhörð
(x) klappað hreindýri/geit/kengúru
(x) farið yfir á rauðu ljósi...jámm ekki segja neinum samt
(X) verið rekin/n eða vísað úr skóla...enn grét mig strax aftur inn
(X) verið með spangir/góm...bæði
( ) liðið eins og þú passaðir ekki inn í/þriðja hjól undir vagni
(x) borðað líter af ís á einu kvöldi
(x) fengið deja vu
(X) dansað í tunglskininu
(x) fundist þú líta vel út
(X) verið vitni að glæp
(x) efast um að hjartað segði þér rétt til
( ) verið gagntekin/n af post-it miðum
(x) leikið þér berfætt/ur í drullunni ... og í snjónum
(x) verið týnd/ur
(x) synt í sjónum
( ) fundist þú vera að deyja
(x) grátið þig í svefn
(x) farið í löggu og bófa leik
(x) litað nýlega með vaxlitum...með Daníel litla stráknum hans Ella
(x) sungið í karaókí ... Ef singstar telst með já og dancestar
(x) borgað fyrir máltíð eingöngu með smápeningum...úti á London enn átti ekki nóg svo ég gerði smápeningahrúgu og drullaði mér út
(x) gert eitthvað sem þú lofaðir sjálfri/sjálfum þér að gera ekki...fyrirgefið e-h slæmt eða komast upp með leti
(x) hringt símahrekk...ekki í alllangan tíam svo það sé alveg á hreinu
(X) hlegið þannig að gosið frussaðist út um nefið á þér
(x) stungið út tungunni til að ná snjókorni
(x) dansað í rigningunni
(X) skrifað bréf til jólasveinsins
( ) verið kysst/ur undir mistilteini
(x) horft á sólarupprásina með einhverjum sem þér þykir vænt um
(x) blásið sápukúlur...síðast á skemmtistaðnum Prikinu á Laugarveginum
(X) kveikt bál á ströndinni...og drukkið sangríu sem er þjóðardrykkur ES. og sungið þjóðhátíðarsöngvar
(x) komið óboðin/n í partý...til e-h algjörs fola
( ) verið beðin/n um að yfirgefa partýið sem þú komst óboðin/n í
(x) farið á rúlluskauta/línuskauta
(x) hefur einhver óska þinna ræst
( ) farið í fallhlífastökk
( ) hefur einhver haldið óvænt boð fyrir þig.

Ég ætla ekki að klukka neinn sértskan enn hver sem er, er frjálst að kópera listann af síðunni minni og svara honum-jey jey, í gær var Páskadagur og þá var Kalkúnn með gómsætri fyllingu og sveppasósu að hætti mömmu og át ég þar til ég varð afvelta einhver laumaði því að að ég væri að borða fyrir tvo og gerði mig stikkfrí þar með-tíhí.

Í kvöld er matur hjá ömmu Siggu eins og vaninn er á þessum degi ár eftir ár, okkur litlu fjölskyldunni að Rauðalæk 71 er boðið í fisk ásamt fjölskyldunni að Mávahlíð 42-tíhí, smá gett tú gether. De javu frá síðasta kvöldi þar var Trausti bróðir pabba líka, litla fjölskyldan hans er stödd í Brasilíu, hann er að fara út að hitta Súmöru, Jasmín og Katrinu eftir fáeina daga og saknar hann famelíunnar greyjið frekar mikið-grát snökt, ég get ekki ýmindað mér hvernig er að vera aðskilinn ástivini í svona langan tíma, hver dagur og vika hlýtur að líða sem óralangur tími hvað þá um 1 og hálfan mánuð-jiii ég gæti þetta ekki, segji bara skálum fyrir dugnaði Trusta frænda-tíhí.Er farin að krafsa í restina af páskaegginu og sötra á kaffibollanum sem er í þann veginn að verða frekar volgur-tíhí Knus og Kizzez

sunnudagur, apríl 16, 2006

3 saman í kotinu okkar í Rauðalæk-tíhí

Jámm þetta eru fyrstu páskarnir okkar Þrándar í sambúð og fyrstu páskarnir sem við deilum þrjú saman, mamma, pabbi og litla bumbukrílið okkar, við lágum immit uppí rúmi í gær og vorum afvelta af 200gr. lúxus hamborgurum, ummmh. Þá fórum við að ræða hvað það væri notalegt að litla fjölskyldan okkar væri saman yfir hátíðirnar, þetta er nostalgía sem ég er að upplifa.
Ég vil nota tækifærið og óska þér lesandi góður gleðilegra páska og megiru eiga dýrindis hátíð með ástvinum og éta þig yfirfullan af súkkulaði-tíhí.
Vil benda á síðuna sem ég er búin að stobbna fyrir litla frumburðinn okkar Þrándar http://www.barnaland.is/barn/46154 Kizz Kizz & Knus Knus ummmh gúrmet kalkúnn með alles hos madres o padres hjemm i aften-tíhí;*;*

laugardagur, apríl 15, 2006

Passíusálmarnir og Biblían

Í gærdag skelltum við okkur á enga aðra enn teiknimyndina Ísöld 2 hún var hreint trubbluð, ég skældi hreinlega úr hlátri, enn hláturinn lengir lífið, segjir í góðu spakmæli, því næst var haldið í karrí kjúklíng með öllu tilheyrandi hjá Gígju og Ara's familí, fengum Benzinn aðal kaggan á gögtunni lánaðan hjá ''tengdó'' og krúsuðum um götur bæjarins eins og við fengum borgað fyrir það-tíhí. Slumrað í sig einum hristingi með stravberrís og sítonssafa.
Í dag fékk ég nýja vinnu hef sagt skilið við Hagkaup sem hefur verið mitt ævistarf nánast eða undanfarin SEX ár. Ég er að fara að vinna á fimmtudögum, föstudögum og laugardögum hjá heildverzluninni Forval sem selur merki á borð við Chanel, Dolce&Gabbana, Roberto Cavalli og svo mætti lengi telja, ekki slæmt það, það er góð dúttlerísarbejde fyrir verðandi móður-tíhí, getað klætt sig dúllulega upp og hamstarð dýrindis snyrtivörum að bráðinni ef bráð má kalla, saklausan viðskiptavin í makindum sínum að gera helgarinnkaupin-jammmí.
Er farin að glápa á stóra páskaeggið frá Nóa Síríus sem foreldrar mínir gáfu okkur verðandi foreldrunum til að japla á um páksana, ég get ekki staðist súkkulaði kanski eru það hormónabreytingarnar hjá mér hver veit? Svo er ammælisboð seinna í dag hálfgert te SLASS kaffiboð þar verður örugglega eithvað gómsætt gúmmelaði borið fram líka-tíhí. Felizna og ;*;*

P.S. verð að koma einu fyndnu að áðan dinglaði dyrabjallan hjá okkur og bar þar að dyrum einhver Fjóla sem var Votti og var að kynna bæklinginn vakniði og starf votta almennt, hún sagði við Þránd að hann gæti gluggað í biblíuna sína, hann svaraði ég á enga biblíu, þá svaraði hún hið sama þú getur lesið í gamla testamentinu eða passíusálmunum sem þú hefur örugglega fengið þegar þú fermdist, ég er ekki fermdur svaraði þvínæst Þrándur, dead case hehe og hún strunsaði á brott, glatað að eiga við hann greinilega, hún gafst upp, málið var kæft við fæðingu hehe. Enn þá rann upp sú spurning-Fermast vottar?-huuum.

föstudagur, apríl 14, 2006

Hringleiðin og Pasta Italíanó

Vöknuðum snemma í morgun og var ekkert annað í boði enn bakarísferð, farið var og keypt bakkelsi með öllu tilheyrandi og skyrdrykk og trópí handa skvísunni. Því næst var leiðinni haldið suður fyrir fjall, í átt að Úlfljótsfjalli, farið var á Þingvallarhrepp og þaðan til Laugarvatns, þaðan yfir á geysir og Þrastarlundarleiðin tekin heim, litum við á nokkrum bílasölum, erum nebblilega að leyta að aðeins bannvæddni bíl jabbnvel station bíl, góður fyrir stórinnkaup og kerrur og fyrir sumarbústaðinn og sonna-tíhí. Við komum við í helli sem er krítalagður, þar risti Þrándur Þ+E, líkt og mamma og pabbi gerðu forðum H+H. Því næst var brunað í bæinn í mat til tengdó-tíhí til mömmu og pabba.
Í fyrramálið verður öllu slegið uppí kæruleysi svo verður matur hjá Gígju og Ara mági Þrándar seinni partinn, föstudagur til mæðu ,,föstudagurinn Langi''.
Ég er að spá í að taka mataræðið alveg trubblaðsleag miki í gegn, fynn að mig vantar meiri trefjar og meiri léttsúra mjólk, til að mæta meltinguna, hef alltaf átt við meltingartrubblanir að stríða, arrrrg, ætla að sigrast á þeim núna þegar það leyfist ekkert slen.
Farin að vafra um á www.ljosmodir.is í leit að upplýsingum um heilbrigt og næringarríkt fæði.
Kizz Kizz

fimmtudagur, apríl 13, 2006

Bumbuföt og lábotnaskór

jámm nú er ég alveg komin í gírinn enda er draumur minn og Þrándar að rætast við erum að fara að fæða í heiminn lítið kríli rétt fyrir næstkomandi jól-verður þetta litla kríli jólagjöfin okkar í ár-tíhí.
Ég fór í gær heim til ömmu gömlu og afa gamla (mömmu&pabba) og fengum við okkur göngutúr til Jóhönnu frænku, þar var amma líka og gengum við kjéllíngarnar allar saman í Kringluna, verslunarmiðstöðina sem stendur á miðri miklubraut -og kringlumýrarbraut.
Þar datt ég inní þónokkrar tískuvöruverslanir og splæstii í einu stykki óléttukjól dimmrauðum, bol sem nær langt niður fyrir mjaðmir sem er bleikur og orangé og orangé -og ferskjulitaðana bol perlusleginn og hálsfesti í stíl, svo gat ég alveg týnt mér inní óléttudeild Vero Moda, þar voru aðsniðnar gallabuksur með bumbuteygju og ég veit ekki hvað og hvað...nú er um að gera að fara að springa út svo maður getur farið að blómstra-hef heyrt að þetta sé einn yndislegati -og guðdómslegasti tími lífs konunnar þegar hún er með barni-tíhí. Svo fann mamma ekkert smá krúttlega skó fyrir mig sem eru sléttir að neðan svo ég verð ekki þreytt í fótunum í sumar þegar ég er að vinna með bumbuna útí loftið, þá þýða engir pæjustælar á háum hælum eða stígvélum, neinei, haha.
Ég sit sem límd fyrir framan skjáinn á miðvikudagskvöldum og horfi á Fyrstu Skrefin og er að missa mig á netinu, týndi mér inná síðunni www.ungi.is þar eru uppskriftir af fallegum barnanöbbnum, og sem og á www.doktor.is og á www.ljosmodir.is og einnig inná www.femin.is þetta eru allt forvitnilegar síður fyrir verðandi mæður og feður.
Ég sit hérna í stofunni í litla kotinu okkar í Rauðalæknum og er pakksödd eftir bakarísnarlið sem Þrándur sótti í morgun og er að reyna að koma niður skyrdrykknum mínum enn það gengur ekki trafalalaust-hehehehehe-vorum að spá í að kíkja eithvert útá land á rúntinn þar sem veðrið leikur svona við okkur, veðurguðirnir hafa heyrt mig kalla og biðja um gott páskaveður.
ÉG er orðin svo SPENNT fyrir snemmsónarskoðuninni ákváðum að fara í 12 vikna skoðun og eigum pantaðan tíma um miðjan maí, vanalega er farið í 19-20 vikna fyrstu skoðun enn vona er það frumburðurinn á leiðinni og ekkert má klikka-erum að misssa okkur úr spenningi getum varla beðið frammí desember-hehehehehe.
Guð veri með ykkur börnin mín KNUS KNUS;*;* Dedda litla verðandi móðir, hehehehehe.

þriðjudagur, apríl 11, 2006

Et Barn Bliver Til

jey-jey-jey-jey

mánudagur, apríl 10, 2006

Svebbnpurkur

ohh að sofa yfir sig er vesta staða sem maður getur lent í, mál er nebblilega þannig með vexti að ég stilli vekjarann á símanum mínum á hverjum virkum degi til að vekja Þránd kl: 7,20 og reka hann á fætur í morgun var ég eithvað utan við mig, vekjarinn hringir inn vanagang ég pikka í Þránd og halla mér aftur á hina hliðina sem ég geri vanalega ekki, svo hann vaknaði ekki og ég féll ú djúpan svebbn-arrrrg. Vekjaraklukkur eru greinlega ekki að virka á okkur, legg til að við fáum okkur hana í eldhúsið, þá er engin hætta á óverslípíng tæm, tíhí. Annars er mjög stutt vinnuvika framundan skírdagur, föstudgurinnlangi, páskadagur og annar í páskum, þetta verður algjör afslöppunarvika með 3 annasömum virkum dögum og einum helgidegi, ahhhhh, hrotur hrotur.
Annað sem ég ætlaði að koma inná eru háir hælar í gær í boðinu þá fór ég í algjörum pæjuskóm enn var ekki lengi að rífa þá af mér og tipllaði um eins og smástelpa á sokkalestunum einum klæða-tíhí, nei nánast, ég borðaði líka svo mikið að ég hélt ég yrði að fara rúllandi heim.

Þrándur fór á kostum í bílnum hjá múttu og pabba á leiðinni heim og sagði tvær hreint frábærar sögur sem ég ætla að deila með ykkur; önnur er þessi að faðir hans var staddur á ótilgreindu Hóteli í RVK þar var hann að snæða Buffey, þegar þjóðvera ber á garð, þeir eru þekktir fyrir að hamstra að sér mat í töskur sínar til að eiga að snæðingi út allan liðlangan daginn, ölvaður maður verður var við þennan óskunda og tekur rjómakönnu og hellir úr henni ofan í persónulegar eigu fólksins þar sem maturinn var varðveittur og spyr saklaus hvort þeir vilji ekki sósu útá allt eins-tíhí.
Hin er sú að fjölskylda Þrándar varðveitir mjög íslensk víkinganöbbn, þar er fólk með nöbbn á borð við, Úlfur, Stígur, Gýja, Freyja og þar eftir götunum, faðir hans á aftur í hlut, hann hittir fyrir Ameríkana í flugvél og heldur Ameríkaninn því fram statt og stöðugt að um sé að ræða sér ættflokk, líkt og indiánarnir í Ameríku, hélt að þessi fjölskylda byggji í litlu þorpi án áreitis samtímans þar sem þeir hlypu um í víkingaleik-tíhí, hef varla heyrt annað eins.
Farin að kanna símann, skil ekki hvers vegna snoozið kom ekki á hann í morgun-huuum, knus knus og kizz kizz;*;*

sunnudagur, apríl 09, 2006

Antilópur og bavíanar

jámm ég er að horfa á endursýningu á RÚV á dýralífsþætti, það er hreint ótrúlegt að fylgjast með því hvernig dýrin í Afríku eðla sér, maka sig og fæða. Antilópurnar vöktu þó sérstaklega mikla athygli hjá mér og bavíanarnir fönguðu nánast alla athyglina á skjánum, impalahirtir eru einna sakleysust af öllum villtum dýrum.
Ég get ekki hætt að monta mig á páskaliljunum okkar sem setja þennan asskoti sæta svip á stofuna í litla kotinu okkar.
Get ekki skrifað meir hef mig ekki frá skjánum, og kaffið er að verða volgt. Knus Knus;*;*

laugardagur, apríl 08, 2006

Sólin blindar

ohhh-ég var í sakleysi mínu að keyra í skeifunni og leyta að fríu ílastæði þegar miðaldra kona klessir með þessum skell aftarlega á vinstri hlið bílsins. Árekstru árekstur árekstur, þeir eru alveg hreint ótrúleg uppfinning og algjörlega tilgangslausir, sem betur fer var ég í fullum rétti þar sem kjélla var að bakka útúr stæði þegar hún klessti á mig-ég varð dauðskelfd og lét Þránd og mömmu koma til að róa mig-ég fékk algjört sjokk-furðulostin bara.
Sem betur fer batnar dagurinn því við erum að matreiða kylling i sitron, fylltan 12 gramma kylling með steinselju og kryddi-ummh, svo eithvað gott kom útúr þessum sólríka degi. Ég er líka stolt að segja frá því að ég hef páskaskreytt mitt fyrsta eigin húsnæði og er orðið frekar hátíðarlegt hérna í kotinu okkar í Rauðalæknum-svo fengum við líka alveg hreint trubblaða páskalilju frá mömmu og pabba og nýtur hún sín skært hérna á sófaorðinu gegnt mér-tíhí. Er farin að strauja jakkafötin og pallíettukjólinn-tíhí knus knus Dedda óþolinmóða og skelkaða.

Dreymi þig rótt

ummh-undanfarnir dagar hafa verið lúxusmálsverðir hjá skyldmennum, við höfum ekki þurft að elda í allnokkra daga því okkur hefur verið boðið til málsverðar. Síðast í gærkvöldi var pasta að hætti Dóra pabba og voru amma og afi, júlíus, jóhanna og jón ágúst einnig á svðinu-við vorum eins og hræggammar yfir matseldinni hans pabba enda er hann þekktur fyrir að gera fyrirtaks pastarétt.
Í dag ætla ég að reyna að taka íbúðina í gerð þrífa hátt og lágt fyrir páskana, vonast til þess að mamma lýti við með einhvert fagurt páskaskraut-tíhí, og svo er bara að ráðast í próflestur, því guð veit að mér veitir ekki af góðu undirbúningi fyrir jarðfræðiprófið-ohhh stremmbinn tími framundan þar.
Þrándur minn verður að vinna í allan dag og langt fram eftir svo ég ætti að hafa nægan ró og frið tilað koma öllu þessu í verk-hehe. Ég keypti í gær í Bónus fisk í broccoliostasósu, ég er að kabbna mér langar svo að elda hann í kvöld, Þrándur minn verður þá bara að sætta sig við upphitun í kvöld því ég get ekki beðið eftir að gæða mér á réttinum.
Á morgun förum við í fermingu og þess vegna verður allt að vera hreint og klárt fyrir morgundaginn enn einn hængur er á ég kem mér ekki til að velja mér endanlegan kvöldklæðnað, svo ætli ég endi ekki á að þrífa 4 samstærður enn endi svo í einhverri allt annarri flík það væri alveg mér líkt-tíhí.
Farin að glápa á DVD frá því í gær-ég varð furðu lostin í nótt þegar ég vaknaði við það að það var reitt yfir mig, mér klappað á kinninni, farið frammí eldhús smurt sér brauð og komið sér fyrir í rúminu hliðin á mér og horft á dvd í fartölvunni, var þetta enginn annarr enn Þrándur nátthrafn að verki-tíhí. Knus Knus & Kiss Kiss ;*;*

föstudagur, apríl 07, 2006

10 dropar af kaffidreytil

jámm í gærkvöldi bauð Jóhanna frænka okkur í mat til sín og kaffisopa, gæddum við okkur á dýrindis pasta með kjötveislu-ummmh.
Ég plokkaði Siggu Jónu frænku og er hún orðin algjör skvísa-tíhí. Helgin verður frekar róleg, ekkert arbejde, bara rólegheit og afslöppun, svo á sunnudaginn förum við í fermingu, á pálmasunnudag, pákskarnir eru ein af uppáhaldshátíðunum mínum, ég dýrka að planta mér fyrir framan inmbann og horfa á allar myndirnar sem eru í boði á þessum hátíðuarstundum, ég man greinilega frá því þegar é var yngri þá voru kristilegu myndirnar alltaf í uppáhaldi hjá mér, þá voru þeir oftast í 3 sjálfstæðum hlutum eða ýmist framhald af þeim, þá sat maður límdur eins og með tonna taki fyrir framan skjáinn og gat vart andað af spenningi þegar þættirnir fóru í loftið, þetta voru heilagar stundir og var oft brætt restin af páskaegginu útí flóaða mjólk og drukkið sem súkkulaðispænum sem heitt kakó-ummmh, ljómandi gott.
Þetta verða fyrstu páskarnir okkar Þrándar og þar að auki fyrstu páskarnir mínir í mínu eigin CASA, MI CASA-tíhí. Verð að skjótast frammí eldhús er að þvo og raða upp krúsum sem Jóhanna frænka gaf okkur í samskonar lit, svo fengum við hvítlaukspressu sem er algjört þarfaþing, því það er alveg ótrúlegt magn að hvítlauk sem við innbyrðum í okkar matargerð hér að Rauðalæk 71.
Ég get svo svarið það að ég fékk mér eina grófkornótta brauðsneið í morgun og er gjörsamlega belgd út á mallanum, best að skjótast eftir mjólká von á fólki í hádegiskaffi, knus knus;*;*

fimmtudagur, apríl 06, 2006

La Prima Vera

jámm vorið er í loftinu, ég elska vorið það eru svo margir möguleikar í því, léttari klæðnaður, opnir skór og þinnri bolir-úllalla.
Námstæknin er eithvað að stríða mér þessa dagana, í gærkvöldi tók ég mig til og fór að skrifa niður á lítil hvít spjöld áherslurnar sem ég verð að læra eins og páfgaukur utanaf fyrir prófið, málið er það að ég er bara svo stressuð um hvort ég sé að skrifa of mikið niður, er ég að týna það helsta úr, er ég að skrifa niður kanski eithvað sem gerir lesturinn bara erfiðari fyrir mig, eithvað sem er ekki það mikilvægt og sleppi ég kanski því sem er í raun og veru miklu mikilvægara-huuum.
Í gærkvöldi eldaði Þrándur Hvítlaukskjúklíng sem er uppáhaldið mitt þessa dagana, þetta er hreint trubbluð uppskrift sem við fengum senda frá Tryggva pabba hans, ég get sakt ykkur að þetta var algjör nostalgía, hver munnbiti var hver öðrum betri-ummmh delissíus.
Í gær fengum við að vita að Tryggvi og Gerður munu dvelja hjá systur Þrándar og fjölskyldu þó svo það hefði verið gaman að fá þau hingað, enn nú ætla ég að drekkja mér í Ísland í Bítið því það er verið að taka fyrir sundfatatískuna, ég er að vonast til þess að gömlu Tviggy sundbolirnir séru að koma aftur hef heyrt að þeir séu að tröllríða öllu í Lundúnaborg-kaffibollinn er orðinn velgur verð að svelgja honum í mig knus knus Dedda.

miðvikudagur, apríl 05, 2006

Postulín og páskatiltekt

jámm ég vil byrja á því að óska foreldrum mínum til lukku með 20. ára brillaupsammælið sitt, þau eru fyrirmynd mín og vona ég að sambandið mitt eigi eftir að lukkast og dafna jafn vel og þeirra hefur gert.
Svo að allt öðru nú fer páskatíðin að ganga í garð, þá þarf að taka á ýmsu, það þarf að páskaskreyta og tiltektaræðið er í hámarki, það eru páskaboð og japl á páskaeggjum, allt útí túlípönum og fjöðrum og gulum ungum-ummh ég elska þennan árstíma, svo eru fermingarboð í hámargi og mikið um samversustundir og styrkist samband kjarnafjölskyldunnar sem og annarra aðstandendur svo um munar.
Það er alveg hreint ótrúlegt hvað smá tími getur verið dýrmætur fyrir mig gagnvart þeim sem ég elska og standa mér næstir, ég er talin frekar viðkvæm manneskja og festan sem myndast með fjölskyldutengslum og ræktun hennar er mér hreint ótrúlega verðmæt.
Svo er annað mál á dagskrá það eru þessar blessuðu skattskýrslur, þær eru komnar í rafrænt form, það á að vera til að auðvelda okkur þjóðinni að skila henni á réttum tíma og vinna hana hratt og örugglega enn ég botna hvorki upp né niður í henni enda skellti ég henni yfir á mömmu-tíhí. Er farin að þrífa þvott hann er búinn að fá að sitja á hakanum hjá mér all lengi, ég sýnist bara ekki geta rifið mig frá fartölvunni, var að fynna coldplay diskinn X&Y og þegar ég er byrjuð að hlusta á hann verð ég svo háð honum að ég verð gjörsamlega að hlusta á hann útí gegn áður enn ég sný mér að öðrum heimilisverkum-tíhí, nýti þess vegna tækifærið og japla á salatafgöngum frá gærkvöldinu og piparsósunni með dijónsinnepinu og sýp af rjúkandi ekspresso frá te og kaffi-ummh, bragðlaukarnir gjörsamlega kítla og bráðna við hvern munnbita, hej hej Dedda.

Matgæðingar

Í gærkvöldi gerði ég tilraun með að elda lamb, þetta var frumraun mín svo ég má vera doldið stolt því hún gekk asskoti vel bara, ég lagði lambið í rjómaleginum stolt á borðið og fylgdist með Þrándi borða af mikillri list-ummmh.

Ég á það til að taka frekjuköst í svebbni, ég er ekki þekkt fyrir að vera frökk manneskja enn greinilega fæ ég útrás fyrir því í svebbni á næturnar og því miður verður Þrándur mann alltaf fórnarlambið í nótt, rumskaði ég við mér og hann snéri sér að mér og sagði lagðiru hendur á mig fyrr í nótt?, huuum, lagði hendur áttu við hvort ég hafi barið þig-bíddu bíddu, hann stóð harður á því að ég hafi ráðist á hann í svebbni og sagði að ég ætti það til að vera frekar ofbeldishneigð og skapstór í svebbni-jii, ég segji nú ekki annað, samt sem áður tók hann mig bara og knusaði að sér, hann erfir þessar barsmíðar greinilega ekki við skvízuna-tíhí. Það er samt rétt ég vaknaði frekar vönkuð með verkji í handleggjum og búin á sálinni-það hefur greinilega eithvað mikið gengið á mér í nótt-ég ætla rétt að vona að Þrándur minn beri þess ekki merki-tíhí, kiss kiss;*;* á báttið.

Í gærdag stúderaði ég 5-6 kafla í Jarfræðinni og er því búin að ljúka a hluta námsins-jeiiiij, nú er bara að bretta ermar og ráðast á prófspurningarnar og gera mig undirbúna fyrir lokaprófið, ætla að kveikja á apríkósukerti og koma mér í gírinn. Ef einhver hefur hugmynd hvernig á að vekja pottablóm upp til lífsins eftir ofdrykkju H2O endilega láti mig vita ég er frekar sorgmædd ef ég hef drekkt aumingjapottablóminu og það sé að syngja sitt síðasta-ohhh. Knus Knus Dedda bandbrjálaða og taugaspennta.

þriðjudagur, apríl 04, 2006

Rauður Opal

ég veit ekki hvað það er með mig og rauðan opal enn ég virðist ekki fá nóg af honum-huuum. Ég var að taka til eftir kvöldmatinn í gærkvöldi þegar ég réðst á sykurkarið og ákvað að fæja það, í makindum mínum verð ég vör við kusk eða einhvern drullublett ofan í karinu, ég gríp í skeið og reyni að veiða óþverran uppúr-þá rek ég upp þetta-arrrrg og skipa þrándi að koma eins fljótt og auðið er inní eldhús-góðir hálsar þá var um að ræða litla lifru-sem minnti einna helst á margfætlu þar sem hún vann leið sína upp að skaftinu á skeiðinni og stebbndi á mig, ég hljóp að vaskinum og renndi henni niður kvörnina með heljarinar vatnsbunu-ojjjj.
Ég er ennþá hálf slöpp-ég ætla að fá mér 10 dropa af kaffi og eithvað í gogginn og sjá hvort ég hressist ekki eithvað til, ég er með óbeit á pestum, það virðist sem ég gleypi við hverri pestinni á fætur annarri-ohhhh, óheppin hvað það varðar. Farin að glugga í fréttablaðið og fyrir ykkur sem fáið það sjaldan í gegnum lúguna þá getið þið lesið blaðið í fullri lengd á www.frettabladid.is hnerrandi og skjálfandi Dedda segir knus knus;*;*

mánudagur, apríl 03, 2006

Með glit í augum og rósarauðarkinnar

Ég held ég segji það hreint eins og það er ég er komin með pestina-arrrg, ég er með glær augu og kinnarnar eru eldrauðar, það merkir að ég sé komin með hita, svo bætir ekki úr skák að ég keðjudrekk heita drykki enn samt er hrollur búinn að taka sinn toll í líkamanum hennar Deddu, sem ég losna ekki við þó ég breiði yfir mig 2 sængum og loka öllum gluggum þá samt skelf ég af kulda-huuum. Knus Knus Dedda veika-ahhh.

Dreypandi á glóðvolgu íste

Í gær fórum við Þrándur og í heimsókn til Ella og sá ég þar í fyrsta skipti litlu kisulóruna sem við erum að fá inná heimilið okkar, þarna var ein bröndótt læða og 5 litlar kisulórur að keppast um að sjúga mjólkina úr spenum læðunnar, þeir eru ogguponsulitlir og algjörir draumar í dós, alveg staur blindir og mjálmandi hver ofan í annan, kisan okkar er nett bröndótt skotta, hún var einna rólegust af þeim öllum og kann ég vel við það, það væri ekki úr vegi að hafa trubblaða kisu í amstri dagsins til að kæta okkur enn ég get ekki annað sagt enn mér sé létt að hún sé í rólegri kantinum. Þarna var líka litli pjakkurinn hans Ella, hann Daníel hann er algjört krútt, ég passaði hann í smá stund og hafði ég gaman af, hann hafði ótrúlega orku og er ekkert smá kátur polli-tíhí.
Þrándur er vanur heimilisköttum hann hefur átt þrjá, Kol, Guðmund Elías eða Gumma eins og hann var kallaður og Louise sem var fædd á fæðingardegi Louise Amstrongs,ástkærs jassleikara sem er sárt saknað af aðdáendum. Ég á hinn veginn hef átt eina kisulóru, hana Tinnu enn hún lifði ekki lengi og var ég frékar ung þegar hún sagði skilið við þetta tilverulíf-snökt snökt.
Helgin gekk ansi fljótt yfir nánast rann úr greipum mér-á laugardagskvöldið litu stelpurnar við heima og fórum við í bæinn-enn þið þekkið mig var komin heim eftir rúma klukkutíma veru í miðbænum-ég er kanski orðin svona elliær og gamaldags enn ég hef enga krafta eftir vikuna til að vera of lengi á fótum-huuuum.
Nú verður annasöm vika framundan þar sem ég hef látið námið undanfarið sitja ansi mikið á hakanum-þess vegna verð ég að spíta í lófana og skipta yfir í 3 gír-tíhí.
Er búin að vera hálf slöpp undanfarna tvo sólahringa og ætla rétt að vona að ég sé ekki komin í klær flensunnar-svo ég ætla að taka það rólega mest allan daginn og fara núna fram í eldhús og hita mér íste og kveikja í einni sígó, sjá hvort ég komi ekki öll til-úfff.
Í gær fékk ég heldur leiðinlegar fréttir, Gulli afi er orðinn veikur, hann var lagður inná spítala, ég sendi honum góða strauma og vona að honum batni sem fyrst. Við áttum að fara í mat til foreldra minna í gærkvöldi enn vorum orðin svo þreytt að við urðum að slá því á frest, það væri gaman að breyta til eins og Þrándur sagði og bjóða þeim til okkar í dýrindismat og launa þeim alla gestrisnina og sýna þannig þakklæti í garð þeirra fyrir alla fyrirhöfnina, því þau hafa eldað svo oft gómgæti handa okkur skötuhjúunum-tíhí.
Verð að koma því að í lokinn að sjóræningjar karabíahafsins er sígild mynd og við vorum að enda við að kíkja á hana enn ég gæti alveg hugsað mér að horfa á hana aftur, la isla bonita knus knus.

sunnudagur, apríl 02, 2006

Penthousekeios

Pílagrímar streyma til Rómar
Pílagrímar streyma nú til Rómar til að geta vottað Jóhannesi Páli II páfa virðingu sína á morgun 2. apríl en þá verður liði ár frá andláti hans.
Verð líka að koma aðeins inná það að íslendingar eru hvað vestir í akstri í umferð í miðborg af norðurlöndunum að mínu mati, það er eins og þeir kunni ekki að gefa stebbnuljós hvað þá að taka af stað í halla og hvers vegna komast sumir ekki uppá lagið með að ef vegfarandi á undan þér keyrir að þínu mati tiltölulega hægt að þú getir skipt yfir á akrein sem nebbnist vinstri og einfaldlega tekið framúr ökutækinu ? Kanski ætlast ég til of mikils enn mér þykir það almenn kurteisi að taka tillit til annara vegfaranda hvort sem þeir eru gangandi, hjólandi eða akandi eða hvernig sem þeir kjósa að ferðast, höfum það á bakvið eyrað góðir landsmenn.
Ég er gædd þeim einstaka eiginleika að geta rifið allt í tætlur og ræmur sem heitir sokka-ég lagði höfuðið í bleiti og velti vandlega fyrir mér hvort það væri af því að ég er ekki nógu dugleg að þjala klofnu neglurnar eða hvort það stafi af því að ég er brussa að guðs náð? Hvort svarið sem reynist rétt þá hlýtur það að vera blanda að hvoru tveggja, arrrg. Ég veit ekkert meira óþolandi enn að vera á leiðinni útá lífið og lenda í slíku keisosi sem lykkjufall er, arrrg.
Ég er svo asskoti hress að ég tók mig til og bjó um-raðaði í litlu hillusamstæðuna okkar og þreif allt hátt og lágt á innan við einum og hálfum tíma-geri aðrir betur-gó Dedda-gó Dedda. Þó get ég ekki leynt því að ég hefði ekki getað tekist á við þessa þrifmensku á þessum mettíma án koffíns-og kemur þá aftur að þeirri sögu að Dedda er víst koffínsjúklíngur á hæsta stig-greip ég mig sjálfa glóðvolga að kingja einum 8 bollum af svörtu kaffi á innan við hálfum degi-sjæssss.
Enn er farin að strekkja á iljunum er með trubblaðan sinadrátt í fótunum eftir að hafa trallað um alla heitustu skemmtistaði RVK CITY fyrr í kvöld-blikk-blikk.

laugardagur, apríl 01, 2006

Fíaskó

Jámm það lítur allt út fyrir það að magakveisan sé búin að taka sinn sess í mallakútnum á Deddu-ég er með óendanlega mikla magapínu, arrrg.
Er kannski búin að fá aðeins of mikið af því góða, búin að drekka endalaust mikið af kaffi í dag, var að blaðra við Sunnu sem er búsett í Óðinsvé í óralangan tíma og skellti einum 2 expressó í mig. Ég er farin að hallast að því að ég sé komin með ótakmarkaða koffínfíkn-ætli það sé ekki ráðlagðast að planta sér í fósturstellingu í sófanum góða og hjúfra sér inní sængina sína og glápa á imbann, það er besta meðalið-tíhí. Hej Hej