Dedda Litla Prinsessa-Lukkuleg Pempía Á Pinnahælum

1. Eigandi Elísabet Halldórsdóttir 2. Eiginmaður Þrándur Tryggvason 3. sonur Steinar Máni Þrándarson 4. Lukkuleg pempía á pinnahælum

þriðjudagur, apríl 18, 2006

Mála og bæsa

Ég og Dándi erum búin að vera í tiltektarstuði í fyrradag tókum við alla þá meina ég gjörsamlega alla íbúðina í gegn, þrifum hátt og látt. On Fredag munu tengdó fljúga til Íslands og dvelja yfir rúmt þriggja vikna tímabil-ætlum við að vera voða sæt og bjóða tengdó í dinner á laugardags eftirmiðdeginum-ummmh. Reyna að slá í gegn og vinna mér inn stjörnu í kladdann-hehe.
Í gærkvöldi var fjölskylduboð hjá ömmu Siggu og Gulla afa og kom í ljós að amma þekkti forfeður Dánda og átti tugi milljóna af myndum af þeim og var Dánda sýnt albúm á eftir albúm og mátti sjá stjörnublikið í augunum á honum-hehe. Að lokum færði amma Sigga okkur hníf sem hún hafði hlotið í brúðargjöf á sjöunda áratugnum, hann var áletraður og handskorinn og skreyttur og fékk hún hann frá skyldmennum Dánda-ömmu hans og afa minnir mig-furðulegt nokk það ha? Það er víst rétt sem sagt er I'm from Iceland were everyone knows everyone!! tíhí.
Farin að rúlla upp þvottinum reyna að hespa hann af áður enn hann fer að hlaðast upp eins og volcano-arrrrg. Ég var að nebbna það í gærkvöldi við Dánda að við hefðum gleymt að festa á filmu fyrstu pákskana okkar, við fengum sendar alveg hreint trubblaðar páskaliljur frá Köben og sprungu þær út eins og þeim væri borgað fyrir það hef-sjaldséðir hvítir hrabbnar segji ég bara. Knus Knus Dedda & Bumbukríli;*;*

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home