Bumbuföt og lábotnaskór
jámm nú er ég alveg komin í gírinn enda er draumur minn og Þrándar að rætast við erum að fara að fæða í heiminn lítið kríli rétt fyrir næstkomandi jól-verður þetta litla kríli jólagjöfin okkar í ár-tíhí.
Ég fór í gær heim til ömmu gömlu og afa gamla (mömmu&pabba) og fengum við okkur göngutúr til Jóhönnu frænku, þar var amma líka og gengum við kjéllíngarnar allar saman í Kringluna, verslunarmiðstöðina sem stendur á miðri miklubraut -og kringlumýrarbraut.
Þar datt ég inní þónokkrar tískuvöruverslanir og splæstii í einu stykki óléttukjól dimmrauðum, bol sem nær langt niður fyrir mjaðmir sem er bleikur og orangé og orangé -og ferskjulitaðana bol perlusleginn og hálsfesti í stíl, svo gat ég alveg týnt mér inní óléttudeild Vero Moda, þar voru aðsniðnar gallabuksur með bumbuteygju og ég veit ekki hvað og hvað...nú er um að gera að fara að springa út svo maður getur farið að blómstra-hef heyrt að þetta sé einn yndislegati -og guðdómslegasti tími lífs konunnar þegar hún er með barni-tíhí. Svo fann mamma ekkert smá krúttlega skó fyrir mig sem eru sléttir að neðan svo ég verð ekki þreytt í fótunum í sumar þegar ég er að vinna með bumbuna útí loftið, þá þýða engir pæjustælar á háum hælum eða stígvélum, neinei, haha.
Ég sit sem límd fyrir framan skjáinn á miðvikudagskvöldum og horfi á Fyrstu Skrefin og er að missa mig á netinu, týndi mér inná síðunni www.ungi.is þar eru uppskriftir af fallegum barnanöbbnum, og sem og á www.doktor.is og á www.ljosmodir.is og einnig inná www.femin.is þetta eru allt forvitnilegar síður fyrir verðandi mæður og feður.
Ég sit hérna í stofunni í litla kotinu okkar í Rauðalæknum og er pakksödd eftir bakarísnarlið sem Þrándur sótti í morgun og er að reyna að koma niður skyrdrykknum mínum enn það gengur ekki trafalalaust-hehehehehe-vorum að spá í að kíkja eithvert útá land á rúntinn þar sem veðrið leikur svona við okkur, veðurguðirnir hafa heyrt mig kalla og biðja um gott páskaveður.
ÉG er orðin svo SPENNT fyrir snemmsónarskoðuninni ákváðum að fara í 12 vikna skoðun og eigum pantaðan tíma um miðjan maí, vanalega er farið í 19-20 vikna fyrstu skoðun enn vona er það frumburðurinn á leiðinni og ekkert má klikka-erum að misssa okkur úr spenningi getum varla beðið frammí desember-hehehehehe.
Guð veri með ykkur börnin mín KNUS KNUS;*;* Dedda litla verðandi móðir, hehehehehe.
+copy.jpg)

1 Comments:
æji hvað þú ert heppin að vera búin að kaupa þér einhver flott óléttuföt, ég verð að fara að kíkja á þetta þegar ég kem í bæinn, dreg þig kannski með mér;) en þetta er ekkert smá sæt færlsa hjá þér...:* en ég er samt ekki sammála þér um eitt:S 12.vikna skoðun er ekki snemmsónarskoðun, snemmsónarskoðun er það sem ég fór í og er ekki nauðsynlegt:) 12.vikna skoðun er alltaf farið í og þar er gerð hnakkaþykktarmæling og sónar og skoðuð stærðin á fóstriu og svona, þannig að það eru bara ca.5 vikur í fyrstu skoðun hjá þér :) og svo kemur skoðun nr.2 og það er 20.vikna sónarinn sem er líka e-ð sem maður á að fara í... ;) bara svona til að láta þig vita, maður er svo ruglaður e-ð í þessu svona fyrst ;) en ég elska þig:*
Skrifa ummæli
<< Home