Leiðarkerfi höfuðborgarsvæðisins
jámm gott fólk ég hélt ég myndi missa mig í morgun þegar það rann upp fyrir mér að ég yrði að stiðjast við leiðarkerfi strætisvagna höfuðborgarsvæðisins og nýta mér þann ferðamáta í fyrsta daginn minn í nýrri vinni, þannig er nebblilega mál með vexti að ég er að fara að kynna nýja alveg hreint trubblaða sólarvarnarlínu í Hagkaup í Spönginni fyrir þá sem ekki eru verlandarvanir þá er það verslunarkeðjan í Grafarvoginum gegnt Borgarholtsskóla:)
Enn viti menn ég er svo heppin að búa í alfaraleið því héðan ganga strætisvagnar víðsvegar og nánast hvert sem er á stór höfuðborgarsvæðinu án þess að þurfa að biðja um skiptimiða sem er kostur fyrir fólk eins og mig sem eru ekki miklar interrail týpur-tíhí.
Ég er búin að taka óratíma í að fynna rétta dressið sem hæfir og held ég að ég sé búin að komast niður á eitt alveg hreint trubblað smart dress;)
Ég er afvelta eftir bakarísmatinn í morgun og koffíndrykkju svo eg ætla að leggjast í sófan og planta fótunum ofan á einum arminum og kúra í sonna korter þar til ég þarf að þjóta út eftir STRÆTÓ!!
p.s. Á morgun erum við að fá fyrstu gestina í mat til okkar í litla kotið okkar í Rauðalæknum-tíhí, krossleggjum fingur og vonum að maturinn eigi eftir að bragðast vel;) Knus Knus Dedda & litla appelsínan
+copy.jpg)

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home