Sörpræs
Haldiði ekki að hann Dándi hafi hringt í mig áðan og beðið mig um að snara mér niður í garð að leika við strákinn ég klæddi hann Steinar Mána og fór niður haldiði ekki að Þrándur hafi komið keyrani á pugeot kann ekki að stafa þetta ljónið ,,sjálft á veginum'' og rétt mér bíllyklana á eftir fylgdi Mondo vinur hans á vinnubílnum þeirra og sagði TIL HAMINGJU já ég fékk gefins bíl, ótrúlega sætur, fjagra dyra, rafmagnsstýrðan bíl/tek fram gengur fyrir bensínu enn rafmagn í annars flest öllu s.s. gluggahurðum o.fl., algjör krúttubíll, sem ég á, enginn annar, ég var ekki lengi að biðja Dánda um að færa bílstólinn/maxiCosy yfir í nýja bílinn minn og tók einn rúnt um hverfið.
Svo erum við líka örugglega komin með yndislega barnapíu sem ætlar að taka að sér að vera einhver kvöld með Steinar Mána okkar, hún virðist vera algjör draumur í dós, hérna er síðan hennar: www.bangsaland.barnaland.is hún er svo frábær.
Kveð að sinni, svo er það ekkert nema kajakferð á Stokkseyri á morgun og dinner á eftir á Madonnu, kanski maður fái sér bara aðeins í aðra tánna;O)
Kram Beta nýbakaður peguot eigandi.
+copy.jpg)

0 Comments:
Sendu inn athugasemd
<< Home