...Dýrðardagur...
Í gærmorgun vöknuðum við snemma og fórum á Sólon og fengum okkur brunch og panini, þaðan var ferðinni heitið á laugarveg að fynna skyrtu og bindi handa kallinum svo var brunað uppí kringlu þar sem frúin var fulldressuð-hlupið heim og farið á opnun hjá tengdapabba.
Eftir annasaman og strembinn dag var haldið á lítið sætt kaffihús sem var voða spes, minnti mjög á gamla kaffistofu, þaðan var haldið á eldsmiðjuna og hámað í sig einni 12" gúrmeflatböku og ekið heim útúr þreytt alveg gjörsamlega úrvinda.
Sigurrós kíkti til mín áðan og leigðum við tvær gamanmyndir enn náðum ekki að ljúka þeirri fyrri þegar hún varð að bruna út djammið kallaði ég get ekki annað sagt enn ég sé fegin að vera ekki í þeim pakka lengur heldur njóta þess að slaka á heima í litla kotinu okkar Dánda.
Dándi skrapp í bæinn og er ég alveg hreint eyrðarlaus ykkur að segja við vorum að ræða það fyrr í dag yfir kvöldmatnum að við erum alltaf saman gjörsamlega háð hvort öðru. Blame the love:) Enn ég ætla að njóta þess að vera ein heima eitt kvöld og dekra við sjálfa mig:) nostalgía ummmh ken jú fíl it???
Knus & Kossar Dedda og litla bumbubarn;)
+copy.jpg)

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home