Dedda Litla Prinsessa-Lukkuleg Pempía Á Pinnahælum

1. Eigandi Elísabet Halldórsdóttir 2. Eiginmaður Þrándur Tryggvason 3. sonur Steinar Máni Þrándarson 4. Lukkuleg pempía á pinnahælum

þriðjudagur, apríl 25, 2006

2. júní- 6. júní...ferðadagar

Tryggvi tengdó hringdi í gærkvöldi rétt fyrir mat og sagði að hann væri búinn að festa daga út 2.-6. júní það verður löng helgi hjá okkur, hvítasunnan ;o) Við fljúgum saman út litla fjölskyldan og gistum hjá tengdó, skoum okkur um, borðum góðan mat, verslum og njótum góðra samvista.

Ég hringdi í gær og fékk tíma í sónar-2. maí kl:8,40, þá verður elsku barnið mitt vonandi orðið nógu stórt að hægt verði að mæla hjartsláttinn ;o) svo er bara að bíða fram að 17. maí enn þá verður fyrsta mæðraverndarskoðun og þar sem við búum á höfuðborgarsvæði stimpluðu 105 hefum við kosið að sækja heilsugæslustöð Hlíðarsvæðis, fyrst var ég að pæla mikið í að velja MFS mynnir mig að það heiti enn þeir eru að hætta störfum seinna í haust svo barnið okkar verður ekki komið fyrir þann tíma þannig að þetta var næst besti kostur, þessi starfsemi sem við sóttumst eftir gengur út á það að hafa sömu ljósmóðirina og læknana í einu og öllu eftirliti, við fæðingu og í heimavitjunum eftir fæðingu, sem hefði verið hreint frábært enn Það er ekki hægt að gráta það krossleggja bara fingur og vona að þær í Hlíðunum séu jafn góðar og færar sem ég efa ekki.

Er farin að éta síðasta mangó bátinn minn LUV Dedda og litla bumbubarn;*;*

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home