Svebbnpurkur
ohh að sofa yfir sig er vesta staða sem maður getur lent í, mál er nebblilega þannig með vexti að ég stilli vekjarann á símanum mínum á hverjum virkum degi til að vekja Þránd kl: 7,20 og reka hann á fætur í morgun var ég eithvað utan við mig, vekjarinn hringir inn vanagang ég pikka í Þránd og halla mér aftur á hina hliðina sem ég geri vanalega ekki, svo hann vaknaði ekki og ég féll ú djúpan svebbn-arrrrg. Vekjaraklukkur eru greinlega ekki að virka á okkur, legg til að við fáum okkur hana í eldhúsið, þá er engin hætta á óverslípíng tæm, tíhí. Annars er mjög stutt vinnuvika framundan skírdagur, föstudgurinnlangi, páskadagur og annar í páskum, þetta verður algjör afslöppunarvika með 3 annasömum virkum dögum og einum helgidegi, ahhhhh, hrotur hrotur.
Annað sem ég ætlaði að koma inná eru háir hælar í gær í boðinu þá fór ég í algjörum pæjuskóm enn var ekki lengi að rífa þá af mér og tipllaði um eins og smástelpa á sokkalestunum einum klæða-tíhí, nei nánast, ég borðaði líka svo mikið að ég hélt ég yrði að fara rúllandi heim.
Þrándur fór á kostum í bílnum hjá múttu og pabba á leiðinni heim og sagði tvær hreint frábærar sögur sem ég ætla að deila með ykkur; önnur er þessi að faðir hans var staddur á ótilgreindu Hóteli í RVK þar var hann að snæða Buffey, þegar þjóðvera ber á garð, þeir eru þekktir fyrir að hamstra að sér mat í töskur sínar til að eiga að snæðingi út allan liðlangan daginn, ölvaður maður verður var við þennan óskunda og tekur rjómakönnu og hellir úr henni ofan í persónulegar eigu fólksins þar sem maturinn var varðveittur og spyr saklaus hvort þeir vilji ekki sósu útá allt eins-tíhí.
Hin er sú að fjölskylda Þrándar varðveitir mjög íslensk víkinganöbbn, þar er fólk með nöbbn á borð við, Úlfur, Stígur, Gýja, Freyja og þar eftir götunum, faðir hans á aftur í hlut, hann hittir fyrir Ameríkana í flugvél og heldur Ameríkaninn því fram statt og stöðugt að um sé að ræða sér ættflokk, líkt og indiánarnir í Ameríku, hélt að þessi fjölskylda byggji í litlu þorpi án áreitis samtímans þar sem þeir hlypu um í víkingaleik-tíhí, hef varla heyrt annað eins.
Farin að kanna símann, skil ekki hvers vegna snoozið kom ekki á hann í morgun-huuum, knus knus og kizz kizz;*;*
+copy.jpg)

1 Comments:
hehe þú að sofa yfir þig, það get ég ekki ímynað mér að gerist oft fyrir þig, þú ert svo skipulögð og alltaf með allt á hreinu! En gott að þú borðaðir vel í þessari fermingu en verst að þú gast ekki verið í skónum allan tímann hehehe:* en ég skildi bara fyrri söguna og hún var nokkuð fyndin :) Kjáwni þessi maður sem hellti sósunni oní blessuðu töskuna :):):) en ég er farin að læra, heyri í þér þegar þú kemur heim úr vinnunni um 8 elskan :) Love U mest besta vinkona:*
Skrifa ummæli
<< Home