Dedda Litla Prinsessa-Lukkuleg Pempía Á Pinnahælum

1. Eigandi Elísabet Halldórsdóttir 2. Eiginmaður Þrándur Tryggvason 3. sonur Steinar Máni Þrándarson 4. Lukkuleg pempía á pinnahælum

fimmtudagur, apríl 20, 2006

Gleðilegt Sumar Fólks

Sumardagurinn fyrsti er runninn upp ég gleymi því seint þegar það var risið upp snemma fengin sumargjöf í hendurnar, klætt sig upp og farið út í skrúðgöngu málaður íslenska fánanum jabbnvel á sytthvorar kynnar, það voru gömlu góðu dagarnir í DEN;*;*tíhí
Ég sobbnaði frekar snemma í gær eða við bæði skötuhjúin, vöknuðum svo fyrir allar aldir, ég snéri Þrándi því um nasir að hann keypti enga sumargjöf handa mér sem var kanski bara alveg eins gott því ekki keypti ég neina handa kallinum-arrrg.
Ég er búin að vera ansi dugleg að taka lýsistvennu eða við bæði bara-mamma skellti því á mig til að gefa litla ömmubarninu aukna orku og aukinn kraft svo er líka svo mikið járn í þessum többlum og þær eru hlaðnar vítamínum-allir hafa gott af því-lýsi gefur kraftinn;)
Ætla að kítla kallinn aðeins hann á það skilið fyrir að vera búinn að ögra mér mest allan morguninn-hehe Með Ást Dedda & litla Bumbukríli

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home