Dedda Litla Prinsessa-Lukkuleg Pempía Á Pinnahælum

1. Eigandi Elísabet Halldórsdóttir 2. Eiginmaður Þrándur Tryggvason 3. sonur Steinar Máni Þrándarson 4. Lukkuleg pempía á pinnahælum

föstudagur, apríl 07, 2006

10 dropar af kaffidreytil

jámm í gærkvöldi bauð Jóhanna frænka okkur í mat til sín og kaffisopa, gæddum við okkur á dýrindis pasta með kjötveislu-ummmh.
Ég plokkaði Siggu Jónu frænku og er hún orðin algjör skvísa-tíhí. Helgin verður frekar róleg, ekkert arbejde, bara rólegheit og afslöppun, svo á sunnudaginn förum við í fermingu, á pálmasunnudag, pákskarnir eru ein af uppáhaldshátíðunum mínum, ég dýrka að planta mér fyrir framan inmbann og horfa á allar myndirnar sem eru í boði á þessum hátíðuarstundum, ég man greinilega frá því þegar é var yngri þá voru kristilegu myndirnar alltaf í uppáhaldi hjá mér, þá voru þeir oftast í 3 sjálfstæðum hlutum eða ýmist framhald af þeim, þá sat maður límdur eins og með tonna taki fyrir framan skjáinn og gat vart andað af spenningi þegar þættirnir fóru í loftið, þetta voru heilagar stundir og var oft brætt restin af páskaegginu útí flóaða mjólk og drukkið sem súkkulaðispænum sem heitt kakó-ummmh, ljómandi gott.
Þetta verða fyrstu páskarnir okkar Þrándar og þar að auki fyrstu páskarnir mínir í mínu eigin CASA, MI CASA-tíhí. Verð að skjótast frammí eldhús er að þvo og raða upp krúsum sem Jóhanna frænka gaf okkur í samskonar lit, svo fengum við hvítlaukspressu sem er algjört þarfaþing, því það er alveg ótrúlegt magn að hvítlauk sem við innbyrðum í okkar matargerð hér að Rauðalæk 71.
Ég get svo svarið það að ég fékk mér eina grófkornótta brauðsneið í morgun og er gjörsamlega belgd út á mallanum, best að skjótast eftir mjólká von á fólki í hádegiskaffi, knus knus;*;*

1 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

hæ beta það er voða gaman að vera farin að búa og halda páskana. Mundu þú átt mikið páskaskraut hér "heima" ég skal taka það til fyrir þig svo þú getir skreytt allt í Rauðalæk

1:56 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home