Dreypandi á glóðvolgu íste
Í gær fórum við Þrándur og í heimsókn til Ella og sá ég þar í fyrsta skipti litlu kisulóruna sem við erum að fá inná heimilið okkar, þarna var ein bröndótt læða og 5 litlar kisulórur að keppast um að sjúga mjólkina úr spenum læðunnar, þeir eru ogguponsulitlir og algjörir draumar í dós, alveg staur blindir og mjálmandi hver ofan í annan, kisan okkar er nett bröndótt skotta, hún var einna rólegust af þeim öllum og kann ég vel við það, það væri ekki úr vegi að hafa trubblaða kisu í amstri dagsins til að kæta okkur enn ég get ekki annað sagt enn mér sé létt að hún sé í rólegri kantinum. Þarna var líka litli pjakkurinn hans Ella, hann Daníel hann er algjört krútt, ég passaði hann í smá stund og hafði ég gaman af, hann hafði ótrúlega orku og er ekkert smá kátur polli-tíhí.
Þrándur er vanur heimilisköttum hann hefur átt þrjá, Kol, Guðmund Elías eða Gumma eins og hann var kallaður og Louise sem var fædd á fæðingardegi Louise Amstrongs,ástkærs jassleikara sem er sárt saknað af aðdáendum. Ég á hinn veginn hef átt eina kisulóru, hana Tinnu enn hún lifði ekki lengi og var ég frékar ung þegar hún sagði skilið við þetta tilverulíf-snökt snökt.
Helgin gekk ansi fljótt yfir nánast rann úr greipum mér-á laugardagskvöldið litu stelpurnar við heima og fórum við í bæinn-enn þið þekkið mig var komin heim eftir rúma klukkutíma veru í miðbænum-ég er kanski orðin svona elliær og gamaldags enn ég hef enga krafta eftir vikuna til að vera of lengi á fótum-huuuum.
Nú verður annasöm vika framundan þar sem ég hef látið námið undanfarið sitja ansi mikið á hakanum-þess vegna verð ég að spíta í lófana og skipta yfir í 3 gír-tíhí.
Er búin að vera hálf slöpp undanfarna tvo sólahringa og ætla rétt að vona að ég sé ekki komin í klær flensunnar-svo ég ætla að taka það rólega mest allan daginn og fara núna fram í eldhús og hita mér íste og kveikja í einni sígó, sjá hvort ég komi ekki öll til-úfff.
Í gær fékk ég heldur leiðinlegar fréttir, Gulli afi er orðinn veikur, hann var lagður inná spítala, ég sendi honum góða strauma og vona að honum batni sem fyrst. Við áttum að fara í mat til foreldra minna í gærkvöldi enn vorum orðin svo þreytt að við urðum að slá því á frest, það væri gaman að breyta til eins og Þrándur sagði og bjóða þeim til okkar í dýrindismat og launa þeim alla gestrisnina og sýna þannig þakklæti í garð þeirra fyrir alla fyrirhöfnina, því þau hafa eldað svo oft gómgæti handa okkur skötuhjúunum-tíhí.
Verð að koma því að í lokinn að sjóræningjar karabíahafsins er sígild mynd og við vorum að enda við að kíkja á hana enn ég gæti alveg hugsað mér að horfa á hana aftur, la isla bonita knus knus.
+copy.jpg)

1 Comments:
æææ en leiðinlegt að heyra með hann Gulla afa þinn :( vonum bara að honum batni og ég sendi honum einnig hlýja strauma :) en já sammála þér með lærdóminn, verðum að fara að setja allaveganna í 3 gír, hvað þá ekki 4-5 ;) en kisaaaa æææ hún verður pottþétt krúttleg :) Love U mest Beta mín:*
Skrifa ummæli
<< Home