Dedda Litla Prinsessa-Lukkuleg Pempía Á Pinnahælum

1. Eigandi Elísabet Halldórsdóttir 2. Eiginmaður Þrándur Tryggvason 3. sonur Steinar Máni Þrándarson 4. Lukkuleg pempía á pinnahælum

fimmtudagur, apríl 06, 2006

La Prima Vera

jámm vorið er í loftinu, ég elska vorið það eru svo margir möguleikar í því, léttari klæðnaður, opnir skór og þinnri bolir-úllalla.
Námstæknin er eithvað að stríða mér þessa dagana, í gærkvöldi tók ég mig til og fór að skrifa niður á lítil hvít spjöld áherslurnar sem ég verð að læra eins og páfgaukur utanaf fyrir prófið, málið er það að ég er bara svo stressuð um hvort ég sé að skrifa of mikið niður, er ég að týna það helsta úr, er ég að skrifa niður kanski eithvað sem gerir lesturinn bara erfiðari fyrir mig, eithvað sem er ekki það mikilvægt og sleppi ég kanski því sem er í raun og veru miklu mikilvægara-huuum.
Í gærkvöldi eldaði Þrándur Hvítlaukskjúklíng sem er uppáhaldið mitt þessa dagana, þetta er hreint trubbluð uppskrift sem við fengum senda frá Tryggva pabba hans, ég get sakt ykkur að þetta var algjör nostalgía, hver munnbiti var hver öðrum betri-ummmh delissíus.
Í gær fengum við að vita að Tryggvi og Gerður munu dvelja hjá systur Þrándar og fjölskyldu þó svo það hefði verið gaman að fá þau hingað, enn nú ætla ég að drekkja mér í Ísland í Bítið því það er verið að taka fyrir sundfatatískuna, ég er að vonast til þess að gömlu Tviggy sundbolirnir séru að koma aftur hef heyrt að þeir séu að tröllríða öllu í Lundúnaborg-kaffibollinn er orðinn velgur verð að svelgja honum í mig knus knus Dedda.

2 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

vertu dugleg að læra trítla mín, hlakka til að hitta ykkur um páskana, þið getið líka kíkt í kvöld og sótt krukkurnar ykkar :)

11:20 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

mmm ekkert smá girnilegur kjúlli :) þið eruð alltaf að elda svo girnilegt að maður hreinlega slefar ! ;) en já þú ættir ekki að hafa áhyggjur á lærdómnum, þú ert pottþétt að taka út það sem skiptir mestu máli, þú ert svo klár að ég trúi á að þú fáir 9 í minnsta lagi á öllum prófunum þannig að ekki vera hrædd Dedda mín :* en ég er að fara á Djúpavog á morgun þannig að ég hitti þig ekki í marga marga daga :( en ég verð samt með msn þannig að við getum spjallað saman uppá dag.. :) elska þig :*

4:50 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home