Dedda Litla Prinsessa-Lukkuleg Pempía Á Pinnahælum

1. Eigandi Elísabet Halldórsdóttir 2. Eiginmaður Þrándur Tryggvason 3. sonur Steinar Máni Þrándarson 4. Lukkuleg pempía á pinnahælum

laugardagur, apríl 15, 2006

Passíusálmarnir og Biblían

Í gærdag skelltum við okkur á enga aðra enn teiknimyndina Ísöld 2 hún var hreint trubbluð, ég skældi hreinlega úr hlátri, enn hláturinn lengir lífið, segjir í góðu spakmæli, því næst var haldið í karrí kjúklíng með öllu tilheyrandi hjá Gígju og Ara's familí, fengum Benzinn aðal kaggan á gögtunni lánaðan hjá ''tengdó'' og krúsuðum um götur bæjarins eins og við fengum borgað fyrir það-tíhí. Slumrað í sig einum hristingi með stravberrís og sítonssafa.
Í dag fékk ég nýja vinnu hef sagt skilið við Hagkaup sem hefur verið mitt ævistarf nánast eða undanfarin SEX ár. Ég er að fara að vinna á fimmtudögum, föstudögum og laugardögum hjá heildverzluninni Forval sem selur merki á borð við Chanel, Dolce&Gabbana, Roberto Cavalli og svo mætti lengi telja, ekki slæmt það, það er góð dúttlerísarbejde fyrir verðandi móður-tíhí, getað klætt sig dúllulega upp og hamstarð dýrindis snyrtivörum að bráðinni ef bráð má kalla, saklausan viðskiptavin í makindum sínum að gera helgarinnkaupin-jammmí.
Er farin að glápa á stóra páskaeggið frá Nóa Síríus sem foreldrar mínir gáfu okkur verðandi foreldrunum til að japla á um páksana, ég get ekki staðist súkkulaði kanski eru það hormónabreytingarnar hjá mér hver veit? Svo er ammælisboð seinna í dag hálfgert te SLASS kaffiboð þar verður örugglega eithvað gómsætt gúmmelaði borið fram líka-tíhí. Felizna og ;*;*

P.S. verð að koma einu fyndnu að áðan dinglaði dyrabjallan hjá okkur og bar þar að dyrum einhver Fjóla sem var Votti og var að kynna bæklinginn vakniði og starf votta almennt, hún sagði við Þránd að hann gæti gluggað í biblíuna sína, hann svaraði ég á enga biblíu, þá svaraði hún hið sama þú getur lesið í gamla testamentinu eða passíusálmunum sem þú hefur örugglega fengið þegar þú fermdist, ég er ekki fermdur svaraði þvínæst Þrándur, dead case hehe og hún strunsaði á brott, glatað að eiga við hann greinilega, hún gafst upp, málið var kæft við fæðingu hehe. Enn þá rann upp sú spurning-Fermast vottar?-huuum.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home