Dedda Litla Prinsessa-Lukkuleg Pempía Á Pinnahælum

1. Eigandi Elísabet Halldórsdóttir 2. Eiginmaður Þrándur Tryggvason 3. sonur Steinar Máni Þrándarson 4. Lukkuleg pempía á pinnahælum

þriðjudagur, apríl 04, 2006

Rauður Opal

ég veit ekki hvað það er með mig og rauðan opal enn ég virðist ekki fá nóg af honum-huuum. Ég var að taka til eftir kvöldmatinn í gærkvöldi þegar ég réðst á sykurkarið og ákvað að fæja það, í makindum mínum verð ég vör við kusk eða einhvern drullublett ofan í karinu, ég gríp í skeið og reyni að veiða óþverran uppúr-þá rek ég upp þetta-arrrrg og skipa þrándi að koma eins fljótt og auðið er inní eldhús-góðir hálsar þá var um að ræða litla lifru-sem minnti einna helst á margfætlu þar sem hún vann leið sína upp að skaftinu á skeiðinni og stebbndi á mig, ég hljóp að vaskinum og renndi henni niður kvörnina með heljarinar vatnsbunu-ojjjj.
Ég er ennþá hálf slöpp-ég ætla að fá mér 10 dropa af kaffi og eithvað í gogginn og sjá hvort ég hressist ekki eithvað til, ég er með óbeit á pestum, það virðist sem ég gleypi við hverri pestinni á fætur annarri-ohhhh, óheppin hvað það varðar. Farin að glugga í fréttablaðið og fyrir ykkur sem fáið það sjaldan í gegnum lúguna þá getið þið lesið blaðið í fullri lengd á www.frettabladid.is hnerrandi og skjálfandi Dedda segir knus knus;*;*

2 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Láttu þér nú batna Beta mín ;) Okkur Evu og Lindu langar að hafa hitting og smá djamm á laugardaginn heima hjá mér eða Lindu. Vonandi verður þér batnað.

12:00 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

ojjjjjj LYRFA! eða hvernig sem það er nú skrifað :S:S:S djöfull er þetta ógeðslegt, ég myndi fara að gráta :) svona í alvörunni talað! en já það er ekki gott að þú sért enn veik :S Farðu nú að láta þér battna og haltu áfram að jappla á þesusm rauða ópal þínum :) Love U :*

1:45 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home