Dedda Litla Prinsessa-Lukkuleg Pempía Á Pinnahælum

1. Eigandi Elísabet Halldórsdóttir 2. Eiginmaður Þrándur Tryggvason 3. sonur Steinar Máni Þrándarson 4. Lukkuleg pempía á pinnahælum

fimmtudagur, apríl 27, 2006

Annasamir dagar

Strembið plan framundan-á laugardaginn verður opnun sýningar Tryggva Ólafssonar sem er tengdapabbi minn, á sunnudeginum verður fagnað 27 ára afmæli Þrándar á Óðinsvé þar sem Siggi Hall mun elda ofan í mig Gerði, Tryggva, Þránd, Gýgju, Ara, Stíg og Lísu, á að vera forréttur og saltfiskur voða fínn í aðalrétt;o)
Á þriðjudag verður svo sónar og þá förum við Þrándur og þá er litla barnið okkar orðið það stórt að við ættum að geta séð hjartsláttinn sem á að vera hægt að greina þegar hér er komið sögu;o)
Í gær fór ég á alveg hreint trubblaða mynd með Halldóru hennar við fórum að sjá einhverja algjöra kjéllíngamynd enn skemmtum við okkur konunglega.
Við fórum til tengdó í smá stutt stop í gærkvöldi og þar fékk ég án efa einn sterkasta kaffibolla sem éghef bragðað á-arrrrg.
Þrándur keypti sér PSP tölvu í gær eftir að hafa auglýst eftir einhverri slíkri til sölu á X-inu og var varla hægt að ná sambandi við hann eftir það hann var svo í skýjunum-TÍHÍ.
Ég er búin að vera hálf slöppp í morgun og í nótt vaknaði með allmikla ógleði, þetta er fyrsta nóttin sem ég vakna til að pissa minnst 3svar og með ógleði 1X-Knus Knus

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home