Postulín og páskatiltekt
jámm ég vil byrja á því að óska foreldrum mínum til lukku með 20. ára brillaupsammælið sitt, þau eru fyrirmynd mín og vona ég að sambandið mitt eigi eftir að lukkast og dafna jafn vel og þeirra hefur gert.
Svo að allt öðru nú fer páskatíðin að ganga í garð, þá þarf að taka á ýmsu, það þarf að páskaskreyta og tiltektaræðið er í hámarki, það eru páskaboð og japl á páskaeggjum, allt útí túlípönum og fjöðrum og gulum ungum-ummh ég elska þennan árstíma, svo eru fermingarboð í hámargi og mikið um samversustundir og styrkist samband kjarnafjölskyldunnar sem og annarra aðstandendur svo um munar.
Það er alveg hreint ótrúlegt hvað smá tími getur verið dýrmætur fyrir mig gagnvart þeim sem ég elska og standa mér næstir, ég er talin frekar viðkvæm manneskja og festan sem myndast með fjölskyldutengslum og ræktun hennar er mér hreint ótrúlega verðmæt.
Svo er annað mál á dagskrá það eru þessar blessuðu skattskýrslur, þær eru komnar í rafrænt form, það á að vera til að auðvelda okkur þjóðinni að skila henni á réttum tíma og vinna hana hratt og örugglega enn ég botna hvorki upp né niður í henni enda skellti ég henni yfir á mömmu-tíhí. Er farin að þrífa þvott hann er búinn að fá að sitja á hakanum hjá mér all lengi, ég sýnist bara ekki geta rifið mig frá fartölvunni, var að fynna coldplay diskinn X&Y og þegar ég er byrjuð að hlusta á hann verð ég svo háð honum að ég verð gjörsamlega að hlusta á hann útí gegn áður enn ég sný mér að öðrum heimilisverkum-tíhí, nýti þess vegna tækifærið og japla á salatafgöngum frá gærkvöldinu og piparsósunni með dijónsinnepinu og sýp af rjúkandi ekspresso frá te og kaffi-ummh, bragðlaukarnir gjörsamlega kítla og bráðna við hvern munnbita, hej hej Dedda.
+copy.jpg)

2 Comments:
já það er sko gaman um páskana, góður matur, páskaegg og að hittast :)
til hammó með foreldrana ;)
see ya sunday
og takk fyrir þú veist :D
Skrifa ummæli
<< Home