Dedda Litla Prinsessa-Lukkuleg Pempía Á Pinnahælum

1. Eigandi Elísabet Halldórsdóttir 2. Eiginmaður Þrándur Tryggvason 3. sonur Steinar Máni Þrándarson 4. Lukkuleg pempía á pinnahælum

laugardagur, apríl 08, 2006

Sólin blindar

ohhh-ég var í sakleysi mínu að keyra í skeifunni og leyta að fríu ílastæði þegar miðaldra kona klessir með þessum skell aftarlega á vinstri hlið bílsins. Árekstru árekstur árekstur, þeir eru alveg hreint ótrúleg uppfinning og algjörlega tilgangslausir, sem betur fer var ég í fullum rétti þar sem kjélla var að bakka útúr stæði þegar hún klessti á mig-ég varð dauðskelfd og lét Þránd og mömmu koma til að róa mig-ég fékk algjört sjokk-furðulostin bara.
Sem betur fer batnar dagurinn því við erum að matreiða kylling i sitron, fylltan 12 gramma kylling með steinselju og kryddi-ummh, svo eithvað gott kom útúr þessum sólríka degi. Ég er líka stolt að segja frá því að ég hef páskaskreytt mitt fyrsta eigin húsnæði og er orðið frekar hátíðarlegt hérna í kotinu okkar í Rauðalæknum-svo fengum við líka alveg hreint trubblaða páskalilju frá mömmu og pabba og nýtur hún sín skært hérna á sófaorðinu gegnt mér-tíhí. Er farin að strauja jakkafötin og pallíettukjólinn-tíhí knus knus Dedda óþolinmóða og skelkaða.

2 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Hæ Beta mín og þrándur, og til hamingju með að hafa skreytt íbúðina. Við sáum hana og hún var svo falleg. Takk fyrir yndislegt kaffi í dag elskan mín og æi æi að hafa lent í árekstri knús knús
love u

6:53 e.h.  
Blogger dedda said...

jámm-takk fyrir að aðstoða okkur og skutla kallinum á vettvang-betra að hafa kallana meðferðis þegar maður lendir í svona óhöppum þeir kunna betur á sonna aðstæðu, svo nebbdi konan að hún ferðist vanalega á hjóli-jámm ekki hefði verið úr vegi að ferðast á hjóli þennan tiltekin dag þá hefði hökkið ekki verið jafn slæmt og alvarlegt-ohhh pirr pirr og aftur pirr.

6:57 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home