Dedda Litla Prinsessa-Lukkuleg Pempía Á Pinnahælum

1. Eigandi Elísabet Halldórsdóttir 2. Eiginmaður Þrándur Tryggvason 3. sonur Steinar Máni Þrándarson 4. Lukkuleg pempía á pinnahælum

fimmtudagur, nóvember 30, 2006

tölfræðin

...stærfræði hefur oftast vafist fyrir mér í minni skólagöngu enn tölfræðin á ansi greiða leið inní heilann á mér, getur verið aldurinn, nú er ég eldri og vitrari, þroskaðri eða kanski bara er búin að fynna mettnaðinn loksins, sama hvað það er þá er ég allavega nokkuð glöð að vera búin að ná tökum loksins loksins á námstækni, góðri námstækni svo nú fær mig ekkert stöðvað;o)

...7, 9, 13

íbúðarstúss og próflestur

...við erum búin að standa í íbúðarstússi undanfarið eða Dándi, Gulli st. og pabbi réttara sagt ég er búin að vera heima hjá mö & pa að læra...það er búið að parketleggja stofuna og ganginn, leggja lista, mála upp á nýtt, bletta, sparsla og slípa svo ekki sé að gleymdi að á laugardaginn kemur múrarinn að leggja flísarnar á ganginn, það er búið að setja saman og koma snyrtilega fyrir borðstofuborðinu og stólunum, raða pent í hillur og búið að taka nánast alla skápa í gegn, svo jólahreingerningin er á góðri leið í land...ég byrja í prófum í næstu viku, tek þá eitt próf á föstudaginn þar n.k. svo FIMM próf í þarnæst líðandi viku!!

...svo geta jólin gengið í garð mín vegna, er búin að kaupa nánast allar gjafir, innpökkunardóterí, búin að föndra flest öll jólakortin sem verða send út í ár, ætla svo að njóta aðventunnar um næstu helgi og ætla að splæsa í sígrænu jólatré 185 cm á hæð, sem stendur fagurt öll jólin;o)...um næstu helgi er jólafrokost í hádeginu hjá frænku Dánda, það er langt síðan ég hef farið í jólahlaðborð og bíð ég full tilhlökkunar og vakna slefandi á næturnar-tíhí...

22 des förum við svo í þrívíddarsónar, þá verð ég komin 29 vikur og fáum við cd disk svo við getum boðið nánum vinum og fjölskyldu heim að kíkja á litla barnið okkar, við fáum forsmekk af því hvernig litla barnið mun koma til með að lýta út, sem mér fynnt töluvert spennandi og hlakka ég verulega til;o)...

Jæja það er kallað á mig úr eldhúsinu, Dándi er að elda fyrir okkur hvítlaukskjúkling með öllu tilheyrandi, síðasta kvöldið okkar eftir þessa viku dvöl hjá mö & pa...já ég ætla líka að nota tækifærið og þakka Beggu fyrir yndislegt kvöld á mánudaginn, ljúffengar kræsingar og frábæra gestrisni;*;*

Knus Knus Betz-jólahnátan-

fimmtudagur, nóvember 23, 2006

...snjór og aftur snjór

þessum snjó ætlar ekki að linna, erum að leggja parket vorum að fá okkur nýja þvottavél og þurkara og skín skært á settið niðri í þvottahúsi, gott og algjör unaður að losna við að hengja upp allan þennan þvott alltaf hreint, á morgun verður stofan rýmd og á laugardagsmorgun verður íbúðin nánast öll flotuð og munum við Dándi gista hjá mö&pa í millitíðinni...

...af mér er allt ágætt að frétta mikið að gera í skólanum strembinn lestur framaf prófum, ein stór ritgerð sem ég skilaði af mér í fyrradag annars fátt eitt að frétta, ég er að fara til tannlæknis í 3 skipti á rúmum 2 vikum á morgun það skiptir víst mjög miklu máli eða er v.i.portante að fara reglulega í tannhreinsun þegar kona er með barni svo ég fór að þeim fyrirmælum kanski eilítið útí öfgar enn hver er svo sem að fylgjast með því, nema þegar ég er að blasta því í fréttum hérna á síðunni minni;o)

Ég er búin að vera að gæða mér á hjarta piparkökum í massavís og klementínum og kristal frá því rúmlega 8 í morgun og sé ekki framá að stoppa þar sem ég er að fara að föndra jólakort í kvöld með konunum í fjölskyldunni;)

Farin að hlusta á útvarpsfréttir kanna færðina knus & kram Betz;o);*;*

mánudagur, nóvember 20, 2006

Ófærð og skafrenningur

...erum búin að sitja föst heima í tvo daga sem er nokkuð gott því ég hef náð að afreka ansi mikinn lestur og eina mjög strembna ritgerð, enn áðan stöðvaði Dándi mann sem ar að riðja snjó á gröfu og bað hann vinsamlegast að riðja innkeyrsluna okkar og viti menn það er fært út úr bílaplaninu;o)

Dándi var búinn að standa úti í nístingskulda með húfu og í tveimur hettupeysum að moka og moka þegar hann varð var við manninn :/, bjargvættinn eins og ég kýs að kalla hann, enn góðu landsmenn þetta segjir okkur bara aðeins eitt, þar er kominn vetur og þar með talið er að koma jól;o) enda er mín búin að afreka það að kaupa nær allar jólagjafir, jólapappír, jólaskraut og jólakort svo geri aðrir betur og toppi það:)

Knus & kram í nýstingskulda og slabbi

laugardagur, nóvember 18, 2006

...fokhelt gólf...

Í gærkvöldi reif og skar Dandi teppið af íbúðinni á meðan sendi hann mig út á Nings með Sigurrós, svo ég myndi ekki vera innan um allt rykið var kallinn búinn að ryksuga, sópa og þurka af allt ryk þegar ég kom heim, mér leið eins og ríkri ekkju með húsþræl í bandi og ólum heima, enn ég var góð við hann og færði honum Wog rétt þess í stað;o)

...Í dag verður splæst í þvottavél, þurkara og uppþvottavél, þetta fer að verða ansi huggulegt hérna hjá okkur í Rauðalæknum;) svo í kvöld verður fjölskylduboð hjá mömmsu;)

Ég er búin að reyna að læra í dag eða frá því að ég vaknaði enn ég er svo löt um helgar mér fynnst ekkert mál að vakna fyrir 9 á virkum dögum og læra fram að kvöldmat enn um helgar vil ég gjarnan eiga frí, can you blame me??;/

...í fyrradag fór ég í sjoppíngsprí í Smárann, eyddi morð fjár í Retro, enn sé ekki eftir einum einasta aur...keypti mér vetrar stígvél, tvenna bumbuboli alveg típíska og hálsklút, ég splæsti mér líka í nýtt Love Spell Victoria´s secret fyrr í vikunni og má með sanni segja að ég hafi mergsogið ilminn, ég kemst bara ekki yfir það hvað hann er eggjandi, ég fæ barasta ekki nóg af honum;*;*

Ætla að reyna að leggjast yfir bækurnar framyfir kaffi, gúd lokk tú mí!!

K & K Betz

föstudagur, nóvember 17, 2006

Ein með öllu

...ég er sjúk í eina með öllu nema remólaði, ætli það sé árstíðin vindurinn og nýstingskuldinn eða bara hreinlega vaninn að borða pulsu þegar það koma tarnir?...

Ég vona að það fari að lægja þetta blessða veður, annars horfum við fram á mikla úrkomu enn ég tel þróunina vera í rétta átt, það er þó ekki spáð úrkomulausu veðri. Ég er svo guðs fegin að geta setið heima alla morgna í sloppnum, skellt mér í sturtu og laggst undir sæng með volgan tebolla og lesið, e-h öfundar mig enn hvað get ég sagt, ég lifi algjöru prinsessu lífi;o)

Knus Knus

...

Í fyrrakvöld kom Tryggvi í kaffisopa og horfðum við á þætti á Discovery og Animal Planet;o) Annaðkvöld verður Lambalæri hjá mömmsu og koma Gígja & Ari, Tryggvi, Við og Stígur & Lísa...svo verður morgunkaffi á sunnudag því þá verður Tryggvi gamli hvaddur af klakanum.

Ég er komin með nýtt æði enn það er rjómaís úr vél með kaldri jarðarberjasósu-ummmh...svo nú verður Dándi að fara nánast á hverju kvöldi eftir kvöldmat niður í Bónusvideó að sækja handa mér eftirréttinn;)

Við erum komin með nýjan sófa, leðurtungusófa og plasmasjónvarp, svo er næst á dagskrá að rífa teppið og dúkinn af íbúðinni, brjóta niður flísar og parket -og flísaleggja...svo er ég búin að festa kaup á allar jólagjafir nema tvær, var frekar dugleg og lurkaði þessu af mér á miðvikudaginn, keypti m.a. jólagreinar, seríur og skraut svo nú á bara eftir að fara í Skátafélagið og fjárfesta í einu jólatréi...

...Við fengum heilan helling af gjöfum þegar famelían kom heim frá Great Britain, ég fékk meðal annars snyrtidót, dömulegt úr sett demöntum, geggjaða hálsfesti, veski og svo mætti lengi telja, Dándi fékk trubblaða skyrtu, bindi og karton...takk bara ma & pa og kiss kiss;*;*

...nú er ekki nema rétt rúmar tvær vikur í lokaprófin svo nú er málið að bretta upp ermar og hefja lesturinn, er að reyna við tölfræðina núna, hún er bara ansi skemmtileg, kemur skemmtilega á óvart, kanski bara af því að hún vefst ekki fyrir mér? ég skal ekki segja enn hugur minn er allur hjá honum Dánda mínum núna sem er í endajaxlatöku, þurfti að fara til e-h sérfræðings því jaxlinn liggur svo djúpt niðri;/ þetta blessaða greyj...

...Knus & Kram Betz...

mánudagur, nóvember 13, 2006

Sport Lunch...

...hvað er það við súkkulaði sem bræðir konur Tryggvi gaf öllum konunum súkkulaði-ég er æst í það og ég sá að þær tóku einnig vel í það;o)

Farin að borða grænt epli mér til bóta...

Íslensk kjötsúpa

...í gær fórum við og keyptum leður sófa og borðstofuborð og 4 stóla, vorum svo að gera okkur klár að elda hvítlauks kjúklíng þegar Dándi hringjir í Ara og þau bjóða okkur í mat, þar eru öll systkinin komin saman og Tryggvi sem var að koma frá Köben;o)

...Tryggvi lenti í því heima hjá sér á Italiansvej að hann var ný búinn að vera með gesti í mat og svo veit hann ekki nema það stendur maður í stofunni hans, innbrotsþjófur;/ og barði hann með barefli og hann fékk glóðurauga og skurð yfir augabrúninni;/ það er um að gera að læsa vel öllum hurðum á eftir sér svo maður fái ekki óboðinn gest inn...

...á laugardagsnótt var dynglað um 6 um morguninn hjá okkur í Rauðalæknum og var það ungur strákur sem bókstaflega grátbað okkur um að hleypa sér inn það tók ég ekki í mál enn sagðist hringja á leigubíl fyrir hann þá vildi hann láta hringja á lögguna sökum veðurs og sagiðst hafa verið hent út ég kurteislega bauðst enn og aftur til að panta bíl sem og Dándi gerði...maður fer ekki að hleypa e-h ókunnugum inná sínar dyr;)

...Í gær fórum við Dándi og heilsuðum uppá Skúla hann er svo mikið krútt afþýddi fyrir hann fisk og svo láum við 3 í rúminu hans Gulla St. eins og við vorum vön að gera;) ummh-það var svo notalegt og kósý...

Í gærkvöldi kíktu tveir vinir Dánda í kaffi og eftir að þeir fóru þá ætlaði ég sko ekkert að fara að sofna ég var ekkert þreytt Dándi hafði mikið fyrir að fynna gott sjónvarpskúriefni og viti menn ég var sofnuð innan fáeinna mínútna alveg típískt.

M&p og Gulli St. komu frá London í gærnótt, þau ætla að bjóða okkur og pabba Dánda og systkynum í lamb áður enn Tryggvi yfirgefur landið aftur, og ég veit að þau keyptu gjafir handa okkur, fatnað og meiköpp og barnaföt;o) alltaf gaman að fá gjafir úr útlöndunum;o)

Ætla að fara að horfa á B&B knus knus Betz

laugardagur, nóvember 11, 2006

...íslendingasaga

...ég er búin að liggja yfir bókunum frá því í morgun, Dándi fór og gaf Skúla svo ætlum við að kíkja á hann og leika smá við hann í kvöld...

...ég er að elda panani og heppnast þetta vel, þetta lítur allavega vel út enn hvernig ætli það bragðist??-ok nei það er brunnið, það þarf ekkert smá lítið til maður þarf bókstaflega að standa yfir því og snúa á 2 sekúndna festi við, enn gerði 2 önnur auka og leyt ekki af þeim í eitt sekúndubrot;/

Ég var samt alltaf þannig sem barn að ég vildi hafa máltíðina doldið glóðaða brennda m.ö.o. ristað brauð stundum þurfti ég að skafa af því, enn það hefur sem betur fer elst af mér þessi ljóti vani;)

Ætla að halda áfram að lesa

Knus Knus Betz bókaormur;o)

föstudagur, nóvember 10, 2006

Skúli hleypur í felur

...þessi elska í gær fórum við Dándi til ömmu og afa í hlíðunum í kjötbollur, þá bað mamma okkur um að passa Skúla á meðan þau verða úti í London, semsagt yfir helgina;o) jú auðvitað svo fór é til hans í morgun og aftur seinnipartinn og var þessi elska í felum, hann er svo veðurhræddur og alveg obboslega skelkaður, hann kom þó í leytirnar um leið og hann sá hver var komin að heimsækja hann;o)

...í dag keyptum við parket og flísar svo það er bara að leggjast í að rífa niður teppið um helgina...

Ég tek ofan fyrir feðradeginum-og ætla sko að slá á þráðinn til pabba sem verður í London að vinna um helgina og senda honum hlýja strauma knúsa og 1000 kossa...burr þetta blessaða veður elskurnar mínar haldið ykkur bara innandyra í guðana bænum, þetta veður er ekki gert fyrir mikið flandur og flakk...

Frétti að það var gefið út veiðileyfi á íslenska karlmenn í dag;/ pæliði í því, er verið að gera lítið úr þeim, segja að allir menn séu karlrembur, þeir kunni ekki að klæða börnin sín og vaska upp, enn gleymum ekki að í 50% tilfella færa þeir famelíunni mat á borðið og borga þakið undir hausinn á fjölskyldum sínum;)

Knus & Kram Betz orkubolti

fimmtudagur, nóvember 09, 2006

Fótboltastellingin

Á fundinum í gær um brjóstagjöf var nefnd ein stelling sem kallast fótboltastellingin og hélt ég að ég myndi skella uppúr þegar útskírt var hvaðan nafnið var dregið...enn sagan segir að þú eigir að leggja barnið undir handakrika og undir arminn líkt og þú værir í Rúbý (amerískum fótbolta);o) ég átti ekki til orð, svo var sögð saga um kornunga móður sem fékk barnið sit í fangið í fyrsta sinn á sængurlegudeildinni og átti að færa því brjóstagjöf þá kom undrunarsvipur á stúlkuna og hún rak upp ó og sagði æji er það ekki vont og þá sagði ljósmóðirin er hvað ekki vont?? þegar þú stingur gatið;) þá hélt unga hnátan að það ætti að gera göt á sitthvora geirvörtuna svo mjólkin kæmist út...

...í gær fengum við stöð 2, sýn og bíórásina + stóra erlenda pakkann sem við vorum með fyrir svo nú þarf ég ekki og hef nánast enga ástæðu til að fara útúr húsi;) neii- ég er að grínast...ég er svo hálkufælin að ég er ekkert mikið fyrir það að þramma út af ástæðulausu svo er líka svo burrr kallt;)

Ég át tvo diska af lasagnea í gærkvöldi skóflaði þeim í mig rétt fyrir svefninn vorum frekar seint með kvöldmatinn enn namm ég var búin að gleyma því hvað það er gott...

...farin að horfa á B&B og klára skyrdrykkinn minn

Knus Knus

miðvikudagur, nóvember 08, 2006

Tannsi tannsi

Í morgun vöknuðum við skötuhjúin í dögun til að koma við á tannlæknastofunni fengum tannhreynsun og myndatöku og er ég með alveg afbragðs tennur ddið bólgið tannhold enn það fylgir meðgöngunni stafar af auknum hormónum og hvað ég verð blóðmikil á síðustu mánuðunum;o) sem er bara allt í orden ...

... erum að fara á brjóstagjafanámskeið seinnipartinn þetta er kvöldnámskeið eitt kvöld og verður yfirlit með hvað skal gera ef barnið tekur illa við brjósti eð afr í eyrun eða magakveisu sem er markvisst námskeið sem mælt er með fyrir alla verðandi foreldra.

Svo er allt að gerast í íbúðinni okkar, Dándi fer í dag og lætur mæla út fyrir gólfefnum, og kannar þvottavél, þurkara og uppþvottavél svo þetta kemur svona allt hægt og býtandi...vonandi nágum við að mála líka og ljúka öllu 4 X-MAS.;o)

Farin að læra og reyna að melta matinn frá danska konditornum enn ég held ég sé mesti átvagl sögu 21 aldarinnar enn ef marka má að ég át á mettíma.

Betsa ráðið er að hita sér myntutebolla með matskeið af hunangi og leggjast útaf og klára að horfa á The Lake House!! er það ekki bara??

KNus & KRam Betz (dökkhærða)

mánudagur, nóvember 06, 2006

Hvassviðri

ég er hauslaus-hvernig stendur eiginlega á þessu veðri...við Dándi höfðum frekar rómantíska helgi fórum útað borða á ítalíu í 3-ja rétta máltíð og svo í VIP salinn álfabakka á the departure á laugardagskvöldið, síðan fórum við heim og kúrðum undir sæng og tókum dvd mynd á leigu, í gær fórum við á stúfana fórum í ikea-hagkaup og rúmfatarlagerinn og versluðum heilan helling, settum upp gardínur meira púklið var það elduðum svo spagetti bolognes og pössuðum Jón tryggva litla;o)

Í morgun fór ég snemma frammúr-þurfti að erindast aðeins...er núna komin heim í kot að hita mér tebolla með hunangi og myntu-ummmh.

Pabbi fór út í gær og mamma og Gulli St. fara á föstudaginn-til bretlands að hitta pabba, hann er e-h að viðskiptast þar eins og vanalega...og ætla þau að kaupa heilan helling af fötum á tilvonandi frumburð okkar Dánda;) Það má því með sanni segja að það verði dekrað heilan helling við litla frumburðinn okkar þegar hann kemur í heiminn;o)

Farin að lesa mér til um William Shakespear og umbrotartímann snemma á 18. öld:/ eins gott að ég trompi þessi próf af...

Knus Knus Betz

föstudagur, nóvember 03, 2006

Sixtínska kapellan

...er búin að drekkja mér í lestur um ekki merkari mann enn Mikaelangelo og um vatikanið í Róm og endurreisnar menn á borð við Nikulás, Gelileio, Giordano, Vesalíus og engan annan enn sjálfan William Shakespeare...

Er svo inpressionuð af sögu heimsins er ekki að huga að því að leggja heimspekina fyrir mig enn er samt voðalega skotin í henni;)

Knus & Kram ;o)

Skúli er svo sætur að ég gæti kabbnað

...nú get ég ekki beðið eftir að flytja & taka hann Skúla minn með mér, ég fer daglega og heimsækji hann fór með hann í fyrradag til dýralæknis, svo dekra ég svo mikið við hann enn það má alveg meðan hann er í pössunn;o)

Pössun tala ég um því það er á planinu hjá okkur skötuhjúunum að flytja á næstu komandi árum-í e-h úthverfi þar sem er öruggara fyrir barnið okkar að vera að leik og heppilegri staður til að alast upp á...enn það eru enn rúm 3 ár í það og á meðan verður Skúli hjá m&p!!

Ég er búin að gefa honum greiðu og fer daglega núan og greiði honum hann bíður alltaf eftir mér á sama tíma í eldhúsglugganum og hleypur svo á móti mér;* hann er svo mikið krútt sjáiði þetta ekki fyrir ykkur, svo er ég búin að færa honum kattarnammi og kaupa handa honum algjöran lúxusmat.

Sameign er eitt fyrirbæri sem ég hef ekki hugsað mér að fjárfesta aftur í...að deila inngangi eða stigagangi með öðrum gefur bara tilefni til leiðinda, það er alltaf e-h svartur sauður sem hneykslast og pirrast á allt og öllum;/ e-h sem er ekki nógu sáttur með líf sitt og lætur það bitna á öðrum sameigendum.

Ég hef kanski ekki versta tilfellið enn þetta er svona fólk með ofnæmi fyrir allt og öllu, ósátt við allt og alla og fer sífellt í vörn, vitnar í lagagreinar og feitletrar og undirstrikar allt, tyggur gjörsamlega allt ofan í þig eins og þeir séu kennarar þínir í fimm ára bekk enn brjóta svo allar reglur nánast sem hægt er að brjóta sjálf...

Enn nóg af því ég ætla ekki að virðast bitur eða neitt á þann veg enn svona fólk það er bara svona og það er ekkert hægt að breyta þeim með neinni áru nema kanski að senda því góða strauma;)

Heido Beta