Dedda Litla Prinsessa-Lukkuleg Pempía Á Pinnahælum

1. Eigandi Elísabet Halldórsdóttir 2. Eiginmaður Þrándur Tryggvason 3. sonur Steinar Máni Þrándarson 4. Lukkuleg pempía á pinnahælum

mánudagur, nóvember 13, 2006

Íslensk kjötsúpa

...í gær fórum við og keyptum leður sófa og borðstofuborð og 4 stóla, vorum svo að gera okkur klár að elda hvítlauks kjúklíng þegar Dándi hringjir í Ara og þau bjóða okkur í mat, þar eru öll systkinin komin saman og Tryggvi sem var að koma frá Köben;o)

...Tryggvi lenti í því heima hjá sér á Italiansvej að hann var ný búinn að vera með gesti í mat og svo veit hann ekki nema það stendur maður í stofunni hans, innbrotsþjófur;/ og barði hann með barefli og hann fékk glóðurauga og skurð yfir augabrúninni;/ það er um að gera að læsa vel öllum hurðum á eftir sér svo maður fái ekki óboðinn gest inn...

...á laugardagsnótt var dynglað um 6 um morguninn hjá okkur í Rauðalæknum og var það ungur strákur sem bókstaflega grátbað okkur um að hleypa sér inn það tók ég ekki í mál enn sagðist hringja á leigubíl fyrir hann þá vildi hann láta hringja á lögguna sökum veðurs og sagiðst hafa verið hent út ég kurteislega bauðst enn og aftur til að panta bíl sem og Dándi gerði...maður fer ekki að hleypa e-h ókunnugum inná sínar dyr;)

...Í gær fórum við Dándi og heilsuðum uppá Skúla hann er svo mikið krútt afþýddi fyrir hann fisk og svo láum við 3 í rúminu hans Gulla St. eins og við vorum vön að gera;) ummh-það var svo notalegt og kósý...

Í gærkvöldi kíktu tveir vinir Dánda í kaffi og eftir að þeir fóru þá ætlaði ég sko ekkert að fara að sofna ég var ekkert þreytt Dándi hafði mikið fyrir að fynna gott sjónvarpskúriefni og viti menn ég var sofnuð innan fáeinna mínútna alveg típískt.

M&p og Gulli St. komu frá London í gærnótt, þau ætla að bjóða okkur og pabba Dánda og systkynum í lamb áður enn Tryggvi yfirgefur landið aftur, og ég veit að þau keyptu gjafir handa okkur, fatnað og meiköpp og barnaföt;o) alltaf gaman að fá gjafir úr útlöndunum;o)

Ætla að fara að horfa á B&B knus knus Betz

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home