Dedda Litla Prinsessa-Lukkuleg Pempía Á Pinnahælum

1. Eigandi Elísabet Halldórsdóttir 2. Eiginmaður Þrándur Tryggvason 3. sonur Steinar Máni Þrándarson 4. Lukkuleg pempía á pinnahælum

fimmtudagur, nóvember 23, 2006

...snjór og aftur snjór

þessum snjó ætlar ekki að linna, erum að leggja parket vorum að fá okkur nýja þvottavél og þurkara og skín skært á settið niðri í þvottahúsi, gott og algjör unaður að losna við að hengja upp allan þennan þvott alltaf hreint, á morgun verður stofan rýmd og á laugardagsmorgun verður íbúðin nánast öll flotuð og munum við Dándi gista hjá mö&pa í millitíðinni...

...af mér er allt ágætt að frétta mikið að gera í skólanum strembinn lestur framaf prófum, ein stór ritgerð sem ég skilaði af mér í fyrradag annars fátt eitt að frétta, ég er að fara til tannlæknis í 3 skipti á rúmum 2 vikum á morgun það skiptir víst mjög miklu máli eða er v.i.portante að fara reglulega í tannhreinsun þegar kona er með barni svo ég fór að þeim fyrirmælum kanski eilítið útí öfgar enn hver er svo sem að fylgjast með því, nema þegar ég er að blasta því í fréttum hérna á síðunni minni;o)

Ég er búin að vera að gæða mér á hjarta piparkökum í massavís og klementínum og kristal frá því rúmlega 8 í morgun og sé ekki framá að stoppa þar sem ég er að fara að föndra jólakort í kvöld með konunum í fjölskyldunni;)

Farin að hlusta á útvarpsfréttir kanna færðina knus & kram Betz;o);*;*

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home