Hvassviðri
ég er hauslaus-hvernig stendur eiginlega á þessu veðri...við Dándi höfðum frekar rómantíska helgi fórum útað borða á ítalíu í 3-ja rétta máltíð og svo í VIP salinn álfabakka á the departure á laugardagskvöldið, síðan fórum við heim og kúrðum undir sæng og tókum dvd mynd á leigu, í gær fórum við á stúfana fórum í ikea-hagkaup og rúmfatarlagerinn og versluðum heilan helling, settum upp gardínur meira púklið var það elduðum svo spagetti bolognes og pössuðum Jón tryggva litla;o)
Í morgun fór ég snemma frammúr-þurfti að erindast aðeins...er núna komin heim í kot að hita mér tebolla með hunangi og myntu-ummmh.
Pabbi fór út í gær og mamma og Gulli St. fara á föstudaginn-til bretlands að hitta pabba, hann er e-h að viðskiptast þar eins og vanalega...og ætla þau að kaupa heilan helling af fötum á tilvonandi frumburð okkar Dánda;) Það má því með sanni segja að það verði dekrað heilan helling við litla frumburðinn okkar þegar hann kemur í heiminn;o)
Farin að lesa mér til um William Shakespear og umbrotartímann snemma á 18. öld:/ eins gott að ég trompi þessi próf af...
Knus Knus Betz
+copy.jpg)

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home