Dedda Litla Prinsessa-Lukkuleg Pempía Á Pinnahælum

1. Eigandi Elísabet Halldórsdóttir 2. Eiginmaður Þrándur Tryggvason 3. sonur Steinar Máni Þrándarson 4. Lukkuleg pempía á pinnahælum

föstudagur, nóvember 10, 2006

Skúli hleypur í felur

...þessi elska í gær fórum við Dándi til ömmu og afa í hlíðunum í kjötbollur, þá bað mamma okkur um að passa Skúla á meðan þau verða úti í London, semsagt yfir helgina;o) jú auðvitað svo fór é til hans í morgun og aftur seinnipartinn og var þessi elska í felum, hann er svo veðurhræddur og alveg obboslega skelkaður, hann kom þó í leytirnar um leið og hann sá hver var komin að heimsækja hann;o)

...í dag keyptum við parket og flísar svo það er bara að leggjast í að rífa niður teppið um helgina...

Ég tek ofan fyrir feðradeginum-og ætla sko að slá á þráðinn til pabba sem verður í London að vinna um helgina og senda honum hlýja strauma knúsa og 1000 kossa...burr þetta blessaða veður elskurnar mínar haldið ykkur bara innandyra í guðana bænum, þetta veður er ekki gert fyrir mikið flandur og flakk...

Frétti að það var gefið út veiðileyfi á íslenska karlmenn í dag;/ pæliði í því, er verið að gera lítið úr þeim, segja að allir menn séu karlrembur, þeir kunni ekki að klæða börnin sín og vaska upp, enn gleymum ekki að í 50% tilfella færa þeir famelíunni mat á borðið og borga þakið undir hausinn á fjölskyldum sínum;)

Knus & Kram Betz orkubolti

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home