Ófærð og skafrenningur
...erum búin að sitja föst heima í tvo daga sem er nokkuð gott því ég hef náð að afreka ansi mikinn lestur og eina mjög strembna ritgerð, enn áðan stöðvaði Dándi mann sem ar að riðja snjó á gröfu og bað hann vinsamlegast að riðja innkeyrsluna okkar og viti menn það er fært út úr bílaplaninu;o)
Dándi var búinn að standa úti í nístingskulda með húfu og í tveimur hettupeysum að moka og moka þegar hann varð var við manninn :/, bjargvættinn eins og ég kýs að kalla hann, enn góðu landsmenn þetta segjir okkur bara aðeins eitt, þar er kominn vetur og þar með talið er að koma jól;o) enda er mín búin að afreka það að kaupa nær allar jólagjafir, jólapappír, jólaskraut og jólakort svo geri aðrir betur og toppi það:)
Knus & kram í nýstingskulda og slabbi
+copy.jpg)

1 Comments:
haha, ég er meira að segja byrjuð að pakka inn gjöfunum !!!! hehehe :)
Skrifa ummæli
<< Home