Dedda Litla Prinsessa-Lukkuleg Pempía Á Pinnahælum

1. Eigandi Elísabet Halldórsdóttir 2. Eiginmaður Þrándur Tryggvason 3. sonur Steinar Máni Þrándarson 4. Lukkuleg pempía á pinnahælum

fimmtudagur, nóvember 09, 2006

Fótboltastellingin

Á fundinum í gær um brjóstagjöf var nefnd ein stelling sem kallast fótboltastellingin og hélt ég að ég myndi skella uppúr þegar útskírt var hvaðan nafnið var dregið...enn sagan segir að þú eigir að leggja barnið undir handakrika og undir arminn líkt og þú værir í Rúbý (amerískum fótbolta);o) ég átti ekki til orð, svo var sögð saga um kornunga móður sem fékk barnið sit í fangið í fyrsta sinn á sængurlegudeildinni og átti að færa því brjóstagjöf þá kom undrunarsvipur á stúlkuna og hún rak upp ó og sagði æji er það ekki vont og þá sagði ljósmóðirin er hvað ekki vont?? þegar þú stingur gatið;) þá hélt unga hnátan að það ætti að gera göt á sitthvora geirvörtuna svo mjólkin kæmist út...

...í gær fengum við stöð 2, sýn og bíórásina + stóra erlenda pakkann sem við vorum með fyrir svo nú þarf ég ekki og hef nánast enga ástæðu til að fara útúr húsi;) neii- ég er að grínast...ég er svo hálkufælin að ég er ekkert mikið fyrir það að þramma út af ástæðulausu svo er líka svo burrr kallt;)

Ég át tvo diska af lasagnea í gærkvöldi skóflaði þeim í mig rétt fyrir svefninn vorum frekar seint með kvöldmatinn enn namm ég var búin að gleyma því hvað það er gott...

...farin að horfa á B&B og klára skyrdrykkinn minn

Knus Knus

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home