...
Í fyrrakvöld kom Tryggvi í kaffisopa og horfðum við á þætti á Discovery og Animal Planet;o) Annaðkvöld verður Lambalæri hjá mömmsu og koma Gígja & Ari, Tryggvi, Við og Stígur & Lísa...svo verður morgunkaffi á sunnudag því þá verður Tryggvi gamli hvaddur af klakanum.
Ég er komin með nýtt æði enn það er rjómaís úr vél með kaldri jarðarberjasósu-ummmh...svo nú verður Dándi að fara nánast á hverju kvöldi eftir kvöldmat niður í Bónusvideó að sækja handa mér eftirréttinn;)
Við erum komin með nýjan sófa, leðurtungusófa og plasmasjónvarp, svo er næst á dagskrá að rífa teppið og dúkinn af íbúðinni, brjóta niður flísar og parket -og flísaleggja...svo er ég búin að festa kaup á allar jólagjafir nema tvær, var frekar dugleg og lurkaði þessu af mér á miðvikudaginn, keypti m.a. jólagreinar, seríur og skraut svo nú á bara eftir að fara í Skátafélagið og fjárfesta í einu jólatréi...
...Við fengum heilan helling af gjöfum þegar famelían kom heim frá Great Britain, ég fékk meðal annars snyrtidót, dömulegt úr sett demöntum, geggjaða hálsfesti, veski og svo mætti lengi telja, Dándi fékk trubblaða skyrtu, bindi og karton...takk bara ma & pa og kiss kiss;*;*
...nú er ekki nema rétt rúmar tvær vikur í lokaprófin svo nú er málið að bretta upp ermar og hefja lesturinn, er að reyna við tölfræðina núna, hún er bara ansi skemmtileg, kemur skemmtilega á óvart, kanski bara af því að hún vefst ekki fyrir mér? ég skal ekki segja enn hugur minn er allur hjá honum Dánda mínum núna sem er í endajaxlatöku, þurfti að fara til e-h sérfræðings því jaxlinn liggur svo djúpt niðri;/ þetta blessaða greyj...
...Knus & Kram Betz...
+copy.jpg)

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home