Skúli er svo sætur að ég gæti kabbnað
...nú get ég ekki beðið eftir að flytja & taka hann Skúla minn með mér, ég fer daglega og heimsækji hann fór með hann í fyrradag til dýralæknis, svo dekra ég svo mikið við hann enn það má alveg meðan hann er í pössunn;o)
Pössun tala ég um því það er á planinu hjá okkur skötuhjúunum að flytja á næstu komandi árum-í e-h úthverfi þar sem er öruggara fyrir barnið okkar að vera að leik og heppilegri staður til að alast upp á...enn það eru enn rúm 3 ár í það og á meðan verður Skúli hjá m&p!!
Ég er búin að gefa honum greiðu og fer daglega núan og greiði honum hann bíður alltaf eftir mér á sama tíma í eldhúsglugganum og hleypur svo á móti mér;* hann er svo mikið krútt sjáiði þetta ekki fyrir ykkur, svo er ég búin að færa honum kattarnammi og kaupa handa honum algjöran lúxusmat.
Sameign er eitt fyrirbæri sem ég hef ekki hugsað mér að fjárfesta aftur í...að deila inngangi eða stigagangi með öðrum gefur bara tilefni til leiðinda, það er alltaf e-h svartur sauður sem hneykslast og pirrast á allt og öllum;/ e-h sem er ekki nógu sáttur með líf sitt og lætur það bitna á öðrum sameigendum.
Ég hef kanski ekki versta tilfellið enn þetta er svona fólk með ofnæmi fyrir allt og öllu, ósátt við allt og alla og fer sífellt í vörn, vitnar í lagagreinar og feitletrar og undirstrikar allt, tyggur gjörsamlega allt ofan í þig eins og þeir séu kennarar þínir í fimm ára bekk enn brjóta svo allar reglur nánast sem hægt er að brjóta sjálf...
Enn nóg af því ég ætla ekki að virðast bitur eða neitt á þann veg enn svona fólk það er bara svona og það er ekkert hægt að breyta þeim með neinni áru nema kanski að senda því góða strauma;)
Heido Beta
+copy.jpg)

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home