Dedda Litla Prinsessa-Lukkuleg Pempía Á Pinnahælum

1. Eigandi Elísabet Halldórsdóttir 2. Eiginmaður Þrándur Tryggvason 3. sonur Steinar Máni Þrándarson 4. Lukkuleg pempía á pinnahælum

fimmtudagur, nóvember 30, 2006

íbúðarstúss og próflestur

...við erum búin að standa í íbúðarstússi undanfarið eða Dándi, Gulli st. og pabbi réttara sagt ég er búin að vera heima hjá mö & pa að læra...það er búið að parketleggja stofuna og ganginn, leggja lista, mála upp á nýtt, bletta, sparsla og slípa svo ekki sé að gleymdi að á laugardaginn kemur múrarinn að leggja flísarnar á ganginn, það er búið að setja saman og koma snyrtilega fyrir borðstofuborðinu og stólunum, raða pent í hillur og búið að taka nánast alla skápa í gegn, svo jólahreingerningin er á góðri leið í land...ég byrja í prófum í næstu viku, tek þá eitt próf á föstudaginn þar n.k. svo FIMM próf í þarnæst líðandi viku!!

...svo geta jólin gengið í garð mín vegna, er búin að kaupa nánast allar gjafir, innpökkunardóterí, búin að föndra flest öll jólakortin sem verða send út í ár, ætla svo að njóta aðventunnar um næstu helgi og ætla að splæsa í sígrænu jólatré 185 cm á hæð, sem stendur fagurt öll jólin;o)...um næstu helgi er jólafrokost í hádeginu hjá frænku Dánda, það er langt síðan ég hef farið í jólahlaðborð og bíð ég full tilhlökkunar og vakna slefandi á næturnar-tíhí...

22 des förum við svo í þrívíddarsónar, þá verð ég komin 29 vikur og fáum við cd disk svo við getum boðið nánum vinum og fjölskyldu heim að kíkja á litla barnið okkar, við fáum forsmekk af því hvernig litla barnið mun koma til með að lýta út, sem mér fynnt töluvert spennandi og hlakka ég verulega til;o)...

Jæja það er kallað á mig úr eldhúsinu, Dándi er að elda fyrir okkur hvítlaukskjúkling með öllu tilheyrandi, síðasta kvöldið okkar eftir þessa viku dvöl hjá mö & pa...já ég ætla líka að nota tækifærið og þakka Beggu fyrir yndislegt kvöld á mánudaginn, ljúffengar kræsingar og frábæra gestrisni;*;*

Knus Knus Betz-jólahnátan-

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home