Dedda Litla Prinsessa-Lukkuleg Pempía Á Pinnahælum

1. Eigandi Elísabet Halldórsdóttir 2. Eiginmaður Þrándur Tryggvason 3. sonur Steinar Máni Þrándarson 4. Lukkuleg pempía á pinnahælum

laugardagur, nóvember 18, 2006

...fokhelt gólf...

Í gærkvöldi reif og skar Dandi teppið af íbúðinni á meðan sendi hann mig út á Nings með Sigurrós, svo ég myndi ekki vera innan um allt rykið var kallinn búinn að ryksuga, sópa og þurka af allt ryk þegar ég kom heim, mér leið eins og ríkri ekkju með húsþræl í bandi og ólum heima, enn ég var góð við hann og færði honum Wog rétt þess í stað;o)

...Í dag verður splæst í þvottavél, þurkara og uppþvottavél, þetta fer að verða ansi huggulegt hérna hjá okkur í Rauðalæknum;) svo í kvöld verður fjölskylduboð hjá mömmsu;)

Ég er búin að reyna að læra í dag eða frá því að ég vaknaði enn ég er svo löt um helgar mér fynnst ekkert mál að vakna fyrir 9 á virkum dögum og læra fram að kvöldmat enn um helgar vil ég gjarnan eiga frí, can you blame me??;/

...í fyrradag fór ég í sjoppíngsprí í Smárann, eyddi morð fjár í Retro, enn sé ekki eftir einum einasta aur...keypti mér vetrar stígvél, tvenna bumbuboli alveg típíska og hálsklút, ég splæsti mér líka í nýtt Love Spell Victoria´s secret fyrr í vikunni og má með sanni segja að ég hafi mergsogið ilminn, ég kemst bara ekki yfir það hvað hann er eggjandi, ég fæ barasta ekki nóg af honum;*;*

Ætla að reyna að leggjast yfir bækurnar framyfir kaffi, gúd lokk tú mí!!

K & K Betz

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home