Húllum hej
Hej alle sammen...
Í dag er útborgunardagur sem þýðir eftirfarandi;
-borga skuldir-arrrg;/
-kaupa í matinn fyrir vikuna-nammi namm;)
-skrá sig í fjarnám frá verzló-ein að reyna að vera rosa metnaðargjörn
Svo er margt annað sem þarf að útrétta, enn blessuð sólin ætlar ekki að láta sjá sig þennan daginn, það er skíta kuldi og jaðrar við stormviðri úti, veðurguðirnir eru ekki að vinna sína vinnu.
Í gær eignuðumst við Dándi Bimmann (BMW)-inn á pappírum, það er svo mikill léttir að vera orðinn skráðir eigendur.
Ég hef ákveðið að búa til vikuplan fyrir kvöldverði og verzla eftir því, gera stundaskrá sem ég hengi svo á koleskaben sem ég ætla strangt til tekið að fara eftir. Við ræddum um samsettinguna á fæðunni, fiskur 2-3 sinnum á viku, kjötmeti allt að 2 sinnum ef ekki oftar í viku (ef grillveður leyfir) og kjúkling þess á milli, það er hreynt með ólíkindum hvað kjúklingur er dýr á íslandi í danmörku er hægt að fá hann allt að helmingi ódýrari og í helmingi stærra hlutfalli, hver stendur fyrir þessu, landbúnaðarráðherrann okkar, ríkisstjórnin sem ég er btw með (XD) mínir menn eða við fólkið sjálft í þjóðfélaginu sem látum það vera að kaupa nokkrar kjúklíngabrýngur og aðrar nauðsynjavörur fyrir ofurprís, slikkerí er ekki til í okkar efnahagslífi við neytendurnir þurfum að fara í verkfall, hætta að kaupa ofurálagðar vörur, ef íslensk matvæli eru dýrari enn innfluttar vörur er það það sem við leytumst eftir að, við látum bjóða okkur þetta, með allt þetta styðjum íslenska framleiðslu og allt það sem við látum mata okkur á...kanski er þetta óttalegt væl í mér og e-h mundi segja farðu þá bara í bónus eða krónuna...ég geri það líka, og ekki get ég hvartað svosem þar er allt langódýrast og hagstæðast að versla enn kommon, einn jarðarberja kassi ekki innfluttur á 500 kall ísl. á sama tíma og nágrannaríki okkar selja heilu kílóin af ferkum afskornum og afhýðuðum ávöxtum á innan við 300 kall ísl. það er ekki hægt að láta bjóða sér þetta enn ég er forfallinn ávaxta -og grænmetisfíkill svo ég verð að líða fyrir þessa mismunin og láta bjóða mér e-h okurverð...jæja nú ætla ég að hætta að væla yfir þessu og fara útí krónuna að verzla;) ég veit þetta eru innantóm orð, þó svo ég tauti og rauli e-h yfir okurverði á matvörum er ekki eins og e-h muni detta inná síðuna sem hefur vald og e-h að segja í þessum heimi og kalli til neyðarfundar og fari fram á lækkun matvæla, enn allt í lagi að röfla af og til...annars væri ekkert gaman af þessu blessaða lífi ef maður myndi alltaf sitja þegjandi yfir öllu;)
Enn að allt öðru í gærkvöldi sat ég í sakleysi mínu í vinnunni að bíða eftir honum Dánda mínum hann var að koma og færa mér pakka af salem, þá rakst ég á Mannlíf og fór að glugga í það, bar þá fyrir forsíðu fyrirsögnin Tryggvi í Danmörku og þegar ég var komin aðeins lengra í lestrinum í mitt blaðið var viðtalsgrein við tangdaforeldra mína í því hringjir Dándi bjöllunni og ég vaska inn í forstofu og held þá á blaðinu og rek upp stór augu og segji hérna hérna eru mamma þín og pabbi, fyndið því starfsvinkona mín var einmitt að spyrja mig útí tengdó og þá á sama tíma fer ég að flétta í gegnum blað og þar eru þau;)
Á morgun er laugardagur-þá er akkurat vika í stórafmæli mitt-tíhí, nei ekki alveg enn ég er að verða 23 ára, vá hvað það líður þetta blezzaða líf okkar, mér fynnst ég vera ný hætt á Njálsborg sem var gamla dagheimilið mitt í DEN!!;) ég orðin fullorðin kona-fullvaxta manneskja, jii hvað þetta er skrítin tilhugsun áður enn ég veit af verð ég að nálgast þrítugt ef ég er ekki talin vera það nú þegar;)
Ætla ekki að rugla meira í ykkur krakkar mínir, bið að heilsa öllum þeim sem mér þykir einna vænst um og svo öllum hinum líka, KNUZ BETZ.
+copy.jpg)
