Dedda Litla Prinsessa-Lukkuleg Pempía Á Pinnahælum

1. Eigandi Elísabet Halldórsdóttir 2. Eiginmaður Þrándur Tryggvason 3. sonur Steinar Máni Þrándarson 4. Lukkuleg pempía á pinnahælum

mánudagur, júní 12, 2006

svín á grillteini...

í gær fórum við Dándi í mat til múttu og pabbsa, var pabbi yðinn við grillið gerði trubllað salat sem ég get með góðri trú sagt að slái út salatinu mínu, þó ótrúlegt sé, það voru sjúklegir dvergtómatar í því, tífallt minni enn kokteiltómatar...sátum svo og gláptum á HM...með mikillri eftirtekt;)

Skúli/Sylvester litli er orðinn húsvanur, hann var kassavanur frá fyrsta degi enn nú röltir hann um íbúðina eins og hann hafi hvergi annars staðar verið eins og hann eigi heiminn...hann er svo mikið krútt ég gæti með góðri lyst étið hann í frokost-tíhí...

Tryggvi tengdó bauð okkur Dánda að gysta á Italiansvej í september þegar tengdó fara til Englands í to uger...erum við Dándi að gæla við hugmyndina það er alveg hreint fáránlegt verð að fljúga þangað út núna, Iceland Express eru að bjóða ferðir á innan við 17000 báðar leiðir með flugvallarsköttum, þess vegna er um að gera að skipuleggja ferðir snemma og fara að gramslast eftir tilboðum á netinu...

Um helgina var haldið ættarmót nokkurnveginn eða það var verið að fagna hundrað ára afmæli langömmu og langamma sem eru því miður löngu farin-tveir englar á himnum...(mamma hitti þar hárgreiðsludömuna okkar til nokkurra ára og komst að því að við erum náskyldar alveg hreint magnað hvernig lífið getur komið á óvart)við Dándi komumst ekki því ég þurfti að vinna morgunvakt og var gleðin haldin í Þorlókshöfn...enn þess í stað fengum við Stein í mat og JT/Jón Tryggva litla frænda Dánda og var spilað Fifa World Cup 2006 hele natten ef svo má segja...og spisaðir glóðvolgir börgerar með bestu lyst;) ég er orðin nokkurskonar fan af HM þetta er svo áhugaverð íþrótt og kemur sífellt á óvart ég held ég sé orðin áhugameiri enn húsbóndinn;) þori ekki alveg að fara með það enn það lítur allt út fyrir það...

Ég sló á þráðinn til tengdapabba um daginn og þakkaði honum fyrir alveg hreint trubblaða ferð og þakka honum fyrir gestrisnina og allan dýrindismatinn sem við spísuðum...hann hló bara og sagði ekkert að þakka enn hvað að hann og Gerður tengdamamma væru farin að sakna okkar...mér klöknaði við það ég táraðist nærri því þau eru svo ljúf og góð...nú er bara að drýfa sig niður í Gallerí Fold og láta ramma inn þrykkið frá kallinum...ég sakna líka fríkadellana frá honum hann býr til alveg hreint trubblaðar kjötbollur með Tryggvasósu sem er fræg sósa, hefur komið í matreiðslubókum og tímaritum...hann matreiddi einmitt fríkadellurnar í Kastljósi í þættinum hjá Sillu dúmill fyrr um kvöldið...Við erum búin að vera á fullu að taka myndir af litla Skúla til að senda tengdó...

Ég er komin með æði fyrir dönsku rappi...Jokerinn, LOC koma sterkir inn enn í uppáhaldi hjá mér þessa dagana eru Suspekt & Rolig ft. Tue tr. með slagarann forklædt som voksen og myndbandið er alveg hreint trubblað sáum það um daginn á netinu;)

Ætla að fara að taka úr þvottaapparatinu eins og tengdamamma myndi kalla það því það býður mín hrúga af þvotti eftir ferðina sem þarf að þrífa hið snarasta...

Knus Knus Betz.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home