Dedda Litla Prinsessa-Lukkuleg Pempía Á Pinnahælum

1. Eigandi Elísabet Halldórsdóttir 2. Eiginmaður Þrándur Tryggvason 3. sonur Steinar Máni Þrándarson 4. Lukkuleg pempía á pinnahælum

miðvikudagur, júní 07, 2006

så snakker vi ikke mere om det

já góðir hálsar erum komin heim það er búið að vera trubblað veður í DK, fórum í sjálandstúr, keyrðum meðfram ströndinni, fórum í frokost á smábátahöfninni í Dragor, fórum að verzla á Stripen/strikinu, við fórum og hittum gamla félaga Dánda og keyrðum um Amager og Dándi sýndi mér hvar hann ólst upp, hvar hann var í barnaskóla og leiksvæðin og sáum meðal annars gömul gröff eftir kallinn;) hann hefur að mér sýndist verið ansi aktívur í krotinu á sínum yngri árum...toppurinn var nóttlega Tivoliið og kvöldverðuruinn í greftinum, þar fer allt fína og fræga fólkið til að spísa...þar með talin við og gamla settið eða tengdó...ég fékk að velja mér eitt þrykk eftir sjálfan TÓ og valdi ég eitt geðveikt nú er bara að fara niður í gallerí fold og láta ramma verkið inn og fynna gott pláss á veggnum fyrir verkið...

Ég sakna þess ogguponsu lítið að vakna við fuglasöng og borða frokost í garðinum eða á svölunum, tengdapabbi er ansi aktívur í að nýta sér útiarininn, hann notar ekki grill eins og nútímafólkið í dag hann er með móðins arinn og heggur við og kveikir uppí og eldar af fínustu list...eldglóðaðan mat, fengum til að mynda trubblað gúrme rif kvöldið sem við komum með kartöflusalati sem var ekkert smá gott...

Fórum einn daginn í ferð uppí sumarbústaðalandið þeirra sem fjölskyldan er búin að sækja síðustu 40 árin eða eithvað álíka og var þetta hin hreinasta paradís...fórum og sáum den lille havefrue...konungshöllina, kastalann í Helsinger og sumarhús konungsfólksins...

fórum líka á Willeums museum í Roskilde...ég get ekki annað sagt enn ferðin hafi verið hin besta slökun vorum á Saab kerru allan tíman og náðum að fara í gegnum ansi strembið prógramm á stuttum tíma... að sjálfsögðu var frúnni sýnd vesterbro, istegade sem er alveg hreint skuggalegasta hverfi sem ég hef stigið mínum fæti í, svo var svo yndislegt að gista á italiansvej hjá tengdó, treypa á tei og kaffi og bakkelsum, borða gróf konditor brauð á morgnanna með jógúrt og alpen múslí og drekka ferskan appelsínusafa og renna því öllu niður með dansk mineralvatn, við Dándi létum taka grínmynd af okkur í tivoliinu sem var brúðarmynd ein handa skötuhjúunum og aðra handa gamla settinu, hún heppnaðist ansi vel og vorum við hið fallegasta brúðarhjónapar sem ég hef augum litið-tíhí...

það var reyndar ansi notalegt að koma heim til Skúla-Sylvester litla og má með sanni segja að hann hafi saknað foreldra sinna enda ætluðm við ekki að geta sobbnað í nótt útaf hamagangi í litlu elskunni okkar...nú er bara að taka uppúr töskunum og slaka á í dag...fórum eins og hefðin segjir út í dansk kontitor copenhagen í hádeginu og borðuðum osta sem við keyptum í lufthavnen í kastrop, við erum dauðþreytt enn mjög hamingjusöm með ferðina...hún verðum fljótt endurtekin og standa dyrnar alltaf opnar á italiansvej...og verður það sko nýtt í framtíðinni enda bestu tengdaforeldrar sem hægt er að hugsa sér...það er ekki amalegt að vakna á sólríkum sumardegi í to og tyve stiga hita og fara í bað og fara í silkislopp af gerði tengdamömmu og setjast útá svalir í frokost í B&B/Bong & Blíðu eins og við Dándi köllum það...

Er farin að knúsa Skúla litla hann er búinn að vera svo vanræktur þessi elska undanfarna fem daga, reyndar leit Elli alltaf við hjá honum og gaf honum að borða og lék aðeins við hann enn nú er mamma og pabbi komin heim;) veiii

já gleymdi að koma því að enn við keyrðum yfir brúnna til Svíþjóðar á laugardagskvöldið og var það eitt mest rómó augnablik lífs míns, hún er að hluta til undir sjó enn svo gengur hún uppá land og er þetta hæsta og lengsta brú sem ég hef farið yfir enda sagði Dándi að hún hafi hlutið arkitektúr verðlaun fyrir byggingu og annað þvíumlíkt og er það ekki að furða, það vita þeir sem hafa farið yfir hana...svo skemmdi ekki fyrir að við létum coldplay á fóninn alla leiðina...og þeir sem þekkja eithvað til mín vita að það er mitt uppáhalds uppáhaldshljómsveit sem ég tengi mjög tilfinningalegum böndum og kemur hún mér alltaf í besta skap;)

Kærlig hilsen, hej hej Betz, danaelskandi;)

2 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

æji en hvað þetta hefur verið GAMAN og rómó ferð hjá ykkur skötuhjúum.. :) Gott að heyra að allt var svona frábært.. Bið bara að heilsa ykkur ;)

4:18 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

agalega ertu orðin rómó beta mín :)

7:25 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home