Dedda Litla Prinsessa-Lukkuleg Pempía Á Pinnahælum

1. Eigandi Elísabet Halldórsdóttir 2. Eiginmaður Þrándur Tryggvason 3. sonur Steinar Máni Þrándarson 4. Lukkuleg pempía á pinnahælum

laugardagur, júní 24, 2006

Krísuvíkar túrinn

Hey aliubba/Heydo
í dag var geislandi sól og fórum við Dándi í kaffi uppúr hádegi að sýna m&p nýja bílinn okkar, svo fórum við krísuvíkurveginn með sjónum, stoppuðum á einni hæð og tilltum okkur og enduðum á að leggjast útaf og njóta kyrrðarinn og náttúrunnar og töluðum um hvað það væri tilvalið að tjalda við vatnið, eða eyða helginni í bústað með varðeld og 100% afslöppun, það var afmæli í Fífuselinu, þrefalt enn við komumst ekki vegna ferðafílings.

Erum í gillstuði aldrei þessu vant og erum að grilla marenerað lamb með stórum bökunarkartöflum og spínatsalati (mosarella, tómötum, basilikolíu og olivo olíu) nammi namm.

Dándi þreyf nýja bílinn áðan í Grindavík og þurfti ég að fara á wc á meðan það var í 3-4 skiptið í ferðinni sem ég þurfti að míga, málið er þannig með vexti að ég greindist með prótein og vökvaskort og þarf að vera dugleg að drekka meira og er farin að sofa með hálfslíters vatnsflösku við rúmið...;/

Það er hreynt með ólíkindum hvað fólk á förnum vegi geta verið miklir ökuþórar;/ veit fólk ekki hver hættan er sem bíður þeirra með þessum ofsahraða og akstri...svo furðar fólk sig á öllum bílslysunum, þetta er með ólíkindum...

Ég er frekar hæber núna-kaffið hjá m&p er svo obboslega gott ég hafði ekki undan að telja bollana sem fóru í gegnum meltingarveginn minn;)ahhh alveg rjúkandi kaffi baunir muldar í hvern bolla á staðnum...ég get ekki beðið eftir að við fáum könnuna okkar.

Vil enda á að óska Sigrúni, Söru Dís og Karenu til hamingju með afmælið sem var í dag, hefðum viljað vera á tveimur stöðum á sama tíma enn það er víst ekki hægt;/ HAPPY BIRTHDAY;)

Farin að passa að Skúli sé ekki að fara sér að voða á svölunum hann stelst stundum til að kíkja frammaf svölunum meðan við grillum þessi elska...knuz Betz

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home