Dedda Litla Prinsessa-Lukkuleg Pempía Á Pinnahælum

1. Eigandi Elísabet Halldórsdóttir 2. Eiginmaður Þrándur Tryggvason 3. sonur Steinar Máni Þrándarson 4. Lukkuleg pempía á pinnahælum

sunnudagur, júní 18, 2006

MarineMekko

mér er búið að dauðlanga í ný rúmfatasett, ég er búin að væla tvö stykki nánast útúr honum Dánda mínum síðan við fórum í flugvélina á leið til Köben í þarsíðustu viku, við gleymdum í erli dagsins að versla þau í lufthavnen og líka beiluðum á að versla þau í flugvélinni í duty freeinu;/ svo þegar við vöknuðum í morgun þá sagði Dándi hvað var það aftur sem við ræddum um að kaupa inní íbúðina í gærkvöldi, við vorum bæði búin að steingleyma hvað það var og notuðust við því við útilokunaraðferðina, var það eithvað inní eldhúsið NEI, var það eithað inná baðið NEI, var það eithvað inní svefnherbergið jafnvel, Måske, JÁ við vorum eina ferðina enn að gleyma þessum blessuðu rúmfötum, þau eru reyndar ekki til í Ikea á íslandi þó þau seljist á flest öllum norðurlöndum í Ikea enn þau eru til í Epal í skeifunni og í Mekko búðinni á Lækjargötu, þar er því með öllum líkindum því ver og miður lokað í dag svo við verðum líklegast að fresta rúmfatakaupunum um einn dag einn;/ fúlt ég veit það, enn á morgun kemur kaffivélin sjálfvirka í búðina til Péturs mannsins hennar Ólafar frænku og þá ætlum við Dándi að splæsa í eins og eitt stykki, það verður ekki amalegt að hafa expresso vél á morgnanna í staðin fyrir að hella uppá kaffið þá er bara fyllt á baunirnar og svo lagaður hver og einn bolli fyrir sig;) Lúxus ha, så griner vi-tíhí.

Í gærkvöldi setti mútta karmenrúllur í hárið á mér og svo sótti ég Sigurrós í vinnuna og við komum heim í Rauðalækinn og tókum okkur til saman, þetta var óttalegt desjavu því ég hef ekki lift mér upp/farið útá lífið í óralangan tíma...ég endaði á að renna heim í hláð rúmum einum og hálfum tíma síðar eftir að við fórum í bæinn, Magga og Sigurrós voru eftir enn ég meikaði ekki þetta lengur, allt fólkið útúr fullt og allur þessi troðningur þess í stað fór ég bara heim og kúrði með honum Dánda mínum og horfðum við á Hustle&Flow, sem var alveg hreint trubbluð mynd, skartaði hinum ýmsu frægu leikurum, mikið um stælaða bíla og hip hop bíta;) yeah man, what´s up man;)hehe

Ég er svo södd, í gærkvöldi höfðum við voða kósý stemmningu grilluðum úrvals kjöt(lamb) á teini með öllu tilheyrandi, salati, kartöflusalati, grillsósu og ég veit ekki hvað og hvað, vínberjum og jarðarberjum og höfðum kveikt á kirsuberja kerti, það var voðalega notalegt, svo í morgun vöknuðum við frekar seint eða ekki fyrr enn rúmlega hálf eitt og fengum okkur starbucks kaffi, columbia sem er alveg sjúklega gott, appelsínusafa ferskan, brauðsneið með parmaskinku, kotasælu og osti og jógúrt, það er mjög mikilvægt að byrja daginn snemma og á góðri og hollri máltíð;)

Så snakker vi ikke mere om de!! knus knus Betz

1 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

já Beta mín það eru rúmfötin sem skipta máli og ekki verra að hafa sjálvirka kaffikönnu :)

9:54 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home