Magakveisa að hlaupa í mig
það lýtur út fyrir að ég sé ekki uppá marga fiska þessa dagana-ég meikaði það samt í vinnuna á þriðjudag og miðvikudag...þrátt fyrir að vera með óbærilega vondan verk í maganum;/-ég á frí í dag og ætla að reyna að jabbna mig...svo er strembin vinnuvika framundan á föstudag-laugardag-sunnudag-& mánudag og svo tveggja daga frí-Ari mágur hans Dánda var að bjóð aokkur að kíkja í bústað til Gígju og Ara um helgina í kaffi...skoppast á nýja tryllitækinu okkar;) það verður fínt að komast smá útá land í kyrrð og ró;)
Dándi nebbdi ferðina til Köben í gærkvöldi-tengdapabbi bauð okkur að koma í 14 daga (2. vikur) í september á meðan tengdó verða á ferðalagi um Bretlandseyjar og vera í íbúðinni þeirra, það væri trubblað að fara í algjöra afslöppun í haust...vera með Italiansvej alveg útaf fyrir okkur;)
Skúli/Sylvester elskan var allur subbugur í gær þegar við Dándi komum heim hann hafði komist í skál með skyri og var allur útbýjaður...;) við gerðum bæði tilraun til að þrífa blessaða elskuna enn ekkert gekk hann varð dauðskelkaður og hljóp í burtu allur rennandi blautut og rann nánast vegna bleytunnar á hausinn;/ það er samt svo notalegt að sobbna núna á kvöldin með þessa litlu elsku á milli okkar...við erum búin að vera með ákveðið bíómyndaþema seríuna prision brake og vorum í gær að leygja næstu 4 þætti...þetta er orðið svo spennandi að við borðum hádegismat og glápum svo stjörf á þættina í matarhléunum;) ekki amalegt ha!!!!
Í gær var alveg frábært veður B&B (Bong & Blíða), í tilefni af því þá grilluðum við Dándi lamb og vorum með trubblað salat með jarðarberjum, balsamik edik, vínberjum, mosarella og hvaðeina...
Enn að magaverkjunum ég veit ekki hvað stendur á...ég verð svo sjaldan slöpp hvað þá veik...ég meikaði þó að mæta í vinnuna sárkvalin í maganum tvo daga í röð...ég er þó farin að lagast eithvað enn aðfaranótt miðvikudags þá varð ég að fara og sækja verkjalyf um nóttina...svo slæm var ég...
Enn sem betur fer er ég hætt að fynna fyrir verkjunum kanski verkjalyfin séu að segja eithvað til sín eða þá bara að verkurinn sé að hverfa enn það er ágætt-mikil og annasöm vinnuvika framundan og ferð útá land uppí bústað;)
Moegunverður er ein mikilvægasta máltíð dagsins-hún mótar það hvernig dagurinn mun vera hjá þér...við Dándi höfum það að vana að vakna í dögun...1 klst. áður enn við mætum í vinnuna...hella uppá kaffi, fá okkur morgunverð, hlaðborð ölluheldur og góða sígó með tjatti á eftir...það gerir herslumuninn að byrja daginn vel og skipulega;)...Enn nú hef ég ekki tíma til að netast prision brake bíður mín í harða drifinu
bæjó Betz.
+copy.jpg)

1 Comments:
nenniru að hætta að nota þetta ógeðslega orð strembið,,,, mjööög hommalegt :)
Skrifa ummæli
<< Home