Dedda Litla Prinsessa-Lukkuleg Pempía Á Pinnahælum

1. Eigandi Elísabet Halldórsdóttir 2. Eiginmaður Þrándur Tryggvason 3. sonur Steinar Máni Þrándarson 4. Lukkuleg pempía á pinnahælum

miðvikudagur, júní 28, 2006

Sund veður og tiltekt

Það var algjört sólbaðaveður í morgun, ég skellti mér eftir morgun mat í sund og dró svo einhvern bekk með mér og lá afsíðis í sólinni í 100% afslöppun, baðaði mig í sólinni og fékk smá lit á kroppinn;)

Í gær ætlaði ég að hafa tiltektardag númer 1 því ég á tvo frídaga í röð sem gerist ekki oft, enn dagurinn í gær endaði á að sofa út, vakna og borða hádegismat með Dánda, fara í litun og klippingu og í plokkun og litun, ekki amalegt það. Ég var búin að lofa sjálfri mér reyndar í gær að vera extra góð við sjálfa mig fara í sund og svona var vakin uppúr 10 þegar Dándi hringdi og sagðist hafa gleymt að skilja eftir penge fyrir sundinu, enn ég var engan veginn á leið í sund, heldur lagðist ég aftur útaf og svaf til hádegis TAKK FYRIR, mange tak, Þess í stað vaknaði ég fyrir dögun spisede frokost með Dánda, heltti uppá kaffikönnuna og skellti mér því næst í sólina.

Sit núna inni í tölvunni með nagandi samviskubit fyrir að vera inni í þessu dýrindisveðri það er eins og Dándi segjir dúndrandi Bong & Blíða eða eins og ég kalla það B&B;)-tíhí

Það bíður mín hrúga eða öllu heldur stafli af flokkuðum þvotti, óþvegið baðherbergisgólf og teppi sem þarf að ryksuga til de sammen!!

Ég er búin að vera voðalega stollt af nöglunum mínum undanfarið ég er svo mikill hippi að ég tók uppá því fyrir rúmu hálfu ári síðan að hætta þessu lcn gervinagla french maniqure dóti og reyna að halda mínum eigin nöglum penum og svona skítsæmilegum, hefur mér tekist vel til, þær eru orðnar þónokkuð langar og er ég dugleg við að rúna þær, pússa og snyrta;) næst er bara að ráðast á táneglurnar-ég ræðst ekki á garðinn þar sem hann er lægstur;)

Knuz Betz...zzzz

1 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Ojjj hvað mig hefði langað að sóla mig með þér þarna í sundinu!!! ertu til í að gera það þegar ég kem einhverja helgina í heimsókn til rvk eða bara þegar ég kem um miðjan ágúst:) og ég er stollt af þessu með neglurnar, er einmitt að gera þetta sama ;) safna mínum eigin og það gengur bara helvíti vel :)

9:23 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home