også snakker vi
já það er breytt áætlun-fyrirhuguð Pragferð með Dánda er OFF-en þess í stað þá stefnum við á sólarferð seinna í haust;) Hann fer reyndar til prag með vinnunni flýgur út með þeim enn verður svo þessa 3 daga með Julian vini sínum, fínasti strákur, ég hló mig máttlausa þegar við fórum með honum á kaffihús um síðustu helgi, Julian er alltaf með annan fótinn í þessu landi og ætlar að sýna Dánda landið fagra...
Núna er ég dauðuppgefin var að vinna kvöldvakt í gær og morgunvakt í morgun enn það er ekkert miðað við greyjið Dánda sem var að vinna til rúmlega 1 í nótt við að mála silfursalinn á Hótel Borg svo Bubbi Morthens hinn eini og sanni gæti haldið uppá fimmtugs afmælið sitt nota bene í kvöld...
Við erum með Jón Tryggva krútt í pössun og erum að fara að grilla börgers, ummmh, 12 tommu úr kjöthöllinni eða eithvað álíka allavega alveg huge börgerar, við keyptum osta í fríhöfninni á Kastrup og ætlum að hafa þá með, bræða þá útá, ummh ég slefa við tilhugsunina....
Svo ætlar Steinn vinur Dánda að kíkja í kvöld og reyna að bjarga okkur blessuðu ótölvuvædda pari, tölvurnar okkar eiga það til að frosna á vís og mis...kanski er ekkert alvarlegt af þeim enn betra að láta sérfræðin lýta á þær...;)
Við Dándi þráum bæði sólarfrí...vantar tillögur að einhverjum notalegum stað með litlu áreiti ég þoli ekki að vera í afslöppun innan um aðra hundrað íslendinga gargandi og gólandi á sundlaugarbakkanum það á bara ekki við mig...svo ef einhver er með tillögu að einhverju notalegu fríi á afskektum stað fyrir tvær turtildúfur, erum að spá í byrjun ágústmánaðar þá endilega látið í ykkur heyra...Jafnvel við kyrrahafið bara einhvern nógu kósý og rómantískan sem maður verður ekki þreyttur á eftir 14 daga...
Knus Knus Betz, sem dauðlangar á sólarströnd.
+copy.jpg)

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home