Time is monney
Dagurinn í dag einkenndist aldrei þessu vant af svebbni og aftur svebbndi, Dándi kom tiltölulega snemma heim úr vinnunni með Cinger sesar (kjúklíngasalat) af makkanum handa mér rétt um 15 leytið, í gærkvöldi bilaði XBOXIÐ og þurfti hann að bruna uppá höfða til að láta gera við hana, hann stakk uppá því að við fengum okkur Digital Ísland og ætla ég að skella okkur á einn pakka í leiðinni því ég þarf víst að skipta um símkort, verð með sama númer enn þarf að fá nýtt kort er búin að fá ótal sms um það og verið haft samband við mig um það enn þið vitið hvernig ég er alltaf á síðasta snúning, svo símanúmerinu átti að vera lokað á miðnætti enn ætli þau viti ekki hvernig ég er;)-tíhí, hann ætlaði að koma við í BT og kaupa eitt stykki stofuísskáp svo við getum alltaf haft kalda drykki við höndina til að svala þorstanum það fynnst mér ágæt hugmynd...
Er bara búin að hafa það rólegt í dag, knúsa Skúla/Sylvester daginn út og daginn inn, er að bíða eftir að Dándi komi til baka ætla að versla í matinn köleskápurinn er gjörsamlega tómur aldrei þessu vant hjá okkur matgæðingunum að Rauðalæk 71;) ætla svo að skella mér í einn ljósatíma til að fá pínku lit á mína fölu húð, ég fékk svo hræðilega martröð í nótt að það er eins og ég sé múmía;/ svo ætla ég að sækja GÖSGÖS/Sigurrós í vinnuna og draga hana með mér í innkauparáp...Dándi gaf mér tvöþúsund kall danskar eða 20000 til að versla...lofaði honum samt að eyða honum ekki í föt...ég er forfallinn fatasjúklíngur enn þar sem við erum nýkomin úr sjoppíngspríi í Köben þá hlýt ég að geta staðist freistingarnar og notað fötin í skápnum til tilbreytingar-tíhí.
JT/Jón Tryggvi ætlaði að koma í pössun í kvöld enn Ari og Gíja hættu við að fara á Grímuna (verðlaunaafhendinguna) svo það verða bara við 3 í Rauðalæknum í kvöld;)
Ég var að byrja í síðustu viku á bókinni de forsomte forår og hef ég verið frekar löt við að lesa hana, ég er nóttlega búin að sjá myndina svo það ætti ekkert að stoppa mig að hún sé á dönsku, og Dándi er frekar duglegur að snakke dansk ved mig...svo þetta er allt að koma;)
Ég er orðin frekar þeytt á þessu blessaða veðri hjá okkur íslendingum ég vil sólskyn og hita enn það er ekki hægt að verða af allra óskum;/ farin í sumardressinu í rennandiblautri rigningu út knus knus Betz;)
+copy.jpg)

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home