Dedda Litla Prinsessa-Lukkuleg Pempía Á Pinnahælum

1. Eigandi Elísabet Halldórsdóttir 2. Eiginmaður Þrándur Tryggvason 3. sonur Steinar Máni Þrándarson 4. Lukkuleg pempía á pinnahælum

föstudagur, júní 23, 2006

Ísbúðin

Jammí, borðaði besta ís sem ég hef smakkað, við Dándi fórum í Ísbúðina í W-side og ég fékk mér en gammel með jarðaberjasósu- og jarðaberjum ummh-taisty.

Á morgun erum við að spá í að kíkja upp Esjuna ef veður leyfir í pikknikk með smurðar samlokur og kaffi í bleik rósótta kaffibrúsanum mínum;) Við erum gjörsamlega heilluð af nýja bílnum okkar og ætlum að nota öll tækifæri sem gefast til að rúnta um á honum...lúxus helgi frammundan, ég fékk einn yndælisherramann í vinnunni til að dekka helgina fyrir mig, mig vantaði smá kvöld er búin að vera smá veik undanfarna daga og þarf að ná að jafna mig að fullu, það er svo strembin vinnuvika framundan.

Það er búið að vera brjálað grillveður undanfarið og erum við Dándi aldeilis búin að nýta tækifærið og grilla ánast uppá hvern einasta dag:)

Ég er hætt að reykja og er alveg obboslega stollt af sjálfri mér...já ég er það:) enn tökum einn dag í einu, við skulum ekki fullyrða neitt i snatri...

Snart knus & hilsen til alle sammen...Beta.

1 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

það m´tti halda að þú notaðir orðið STREMBIÐ til þess að reyna að fara í taugarnar á mér :)

5:29 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home