Nagandi samviskubit
jámm ég er ein af þeim sem verð að hafa allt á hreinu...málið er það að Dándi tók mynd í fyrradag og við erum ekki ennþá búin að ljúka við að horfa á hana...sobbnum alltaf yfir henni svo við erum ekki búin að skila henni...veit að þetta er ekki eitt big próblemmó enn samt...við erum bæði aldrei þessu vant búin snemma í dag svo það er bara að ráðast í að ljúka við myndina og skila henni hið snaratsa...ég verð bara svo vandræðileg þegar ég veit að ég hef gert e-h af mér, svo ég á eftir að vera eins og skítur þegar ég skila myndinni;) Lúksuss Probblemm ég veit það enn samviskan nagar mig samt pínku...
Lasagnea í kvöld...Dándi er evrópumeistari í ítalskri matargerð...svo ég bíð spennt eftir kvöldinu...Pasta er líka eitt að mínu uppáhalds fæði svo ég á eftir að vera eins og meðlimur/þáttakandi í Survivor sem er að spísa í fyrsta skipti almennilega eftir mánaðadvöl á e-h eyjaskega;)
Á morgun er JT/Jón Tryggvi litli strákurinn þeirra Ara & Gíju að koma í pössun til okkar, þau eru að fara á Grímuna sem er verðlaunaafhending á leikarasviðinu...það er alveg hreint með ólíkyndum hvað það er gaman að fá kappann í heimsókn, hann er svo lífsglaður og veit gjörsamlega allt um fótbolta og nú er HM í sínum fulla skrúða svo hann á eftir að missa sig á morgun, verst að við erum ekki með sýn, kanski að redda afrugla e-h staðar-huuum það er pæling.
Ég er komin í 3 daga FRÍ takk fyrir, úhhh hvað lífið getur verið ljúft...;) ég á sko eftir að njóta þess að vera í fríi og gera ekki handtak til fulls;)
Dándi er búinn að fynna tryllitæki fyrir okkur, erum að fara að skipta út Golfinum og erum að gæla við tilhugsunina að skella okkur á einn Audi TT, ég er ekki mikið inní þessum bílamálum enn eftir mikla eftirgremslu þá teljum við okkur hafa komumst við að þessari niðurstöðu...það er ekki lítið sem maður er búinn að eyða tíma á bílasölum undanfarna tvo mánuði...;)
Skúli elskan er svo sætur og mikið krútt ég reyni að gefa honum fisk á hverjum degi annað hvort túnfisk eða ýsu og étur hann fiskinn að mikillri athygli og kappi, svo fær hann sér alltaf væran dúr á eftir...þetta var besta gjöf sem Dándi hefði getað fært mér, þessi litli elska tekur hug manns allan hann er bara svo yndislegur og gælinn akkurat týpan fyrir mig;)
Nú styttist óðfluga í ammælið mitt, ég trúi því varla að kjélla sjálf sé að verða 23 ára, alveg hreynt ótrúleg tilhugsun;)
Það er verst að maður er alltaf svo blankur eftir utanlandsferðir annars hefði ég farið í dag og gripið forskot á sæluna og keypt farmiða fyrir okkur skötuhjúin til DK, IE voru að selja miðann aðra leiðina með öllum sköttum á 9.900 það hefði verið notalegt að lengja sumarið með annarri danaferð, annars stendur okkur til boða eins og ég hef sagt áður að dvelja í íbúðinni hjá tengdó um miðjan sept. á meðan þau verða í Englandi í tvær vikur hver veit nema maður skelli sér með kallinn í eftir dragi í algjöra afslöppun í byrjun haustsins til að hlaða batteríin fyrir skólann í vetur;)
Ég er búin að suða í Dánda að panta e-h fallegt af shop.usa fyrir mig á Victoris secret síðunni og hann gaf undan enn sagði er samt ekki skemmtilegra þegar gjafirnar koma á óvart, eins og hann er vanur, þá fór ég að pæla jú veistu ég held þú hafir rétt fyrir þér ELSKAN!! þá er gjöfin líka persónulegri og e-h sem hann velur fyrir mig...jú ég held það bara;)
Jiii verð að skjótast inní eldhús er að brenna kaffið....;/-úff það var allt farið að bulla uppúr, kaffikannan er svona bodum krús fyrir expresso bolla og helli ég alltaf uppá tvöfaldan enn enda alltaf bara með einfaldan því ég gleymi mér alltaf á msn og helmingurinn er alltaf kominn útum allt á eldahellunni, þetta er svo einkennilegt-tíhí;)
Linda var að koma frá Mallorka minnir mig og ætlar hún að kíkja á mig á eftir, ég vona að ég fái ekki minnimáttarkennd þegar ég sé hvað hún er sólbrún hliðin á næpunni mér;) Dándi var að stynga uppá því að leggja það undir húsnefnd að kaupa sameiginlega sólstóla og borð útí garðin þá ætti maður að geta sólað sig aldeilis mikið í sumar í garðinum;) hann er nebblilega ansi góður og staðsettur í suðurátt;) algjör lúxus...Farin að hlusta á itunes í borðtölvunni knus og hilsen Betz.
+copy.jpg)

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home