Dedda Litla Prinsessa-Lukkuleg Pempía Á Pinnahælum

1. Eigandi Elísabet Halldórsdóttir 2. Eiginmaður Þrándur Tryggvason 3. sonur Steinar Máni Þrándarson 4. Lukkuleg pempía á pinnahælum

mánudagur, júlí 31, 2006

Konditorinn

er jammí nýji besti staðurinn okkar Dánda, fórum þarna einn morguninn fyrir vinnu saman og settumst inn í þægindin g fengum okkur latte og súkkulaði horn og kjallarabollu með osti, rjúkandi kaffi að dönskum sið.

Vorum líka dugleg að sækja staðinn um helgina, það er svo notalegt að vakna fara í bakaríið og bragða sér á ilmandi nýlöguðu kaffi og rúgstykki svona árla dags.

Það er búið að vera brjálað að gera ég er að drukkna í vinnu, svo er skólinn kominn á fullt hjá mér, róleg helgi framundan, við erum að fara að breyta íbúðinni, kaupa borðstofuborð og stóla, hillusamstæðu, marinmekko fær líka að fljóta með skipta út rúminu fyrir rúmið mitt sem er hjá mömmu og pabba, fá stæði fyrir sjónvarpið mitt og dvd tækið mitt inní herbergi...breyta eldhúsinu eða taka það jafnt sem baðherbergið hressilega í gegn svo það er í nógu að snúast;)
Svo það hefur verið lítið annað gert enn rennt í gegnum gamla sem nýja Ikea bæklinga.

Enn að allt öðru, við Dándi vorum með villibráð í fyrradag, hann Dándi grillaði Hreindýrakjöt sem er ekki svo ósvipað nautakjöti bara frekar gott hefði viljað smakka það á steinasteik næst ;o)

Er farin að skila inn launatímum heimilismanna að Rauðalæknum, vil þakka Sigurrós fyrir góða tónleika í gærkvöldi;*;* þeir eru bara ansi góðir-knus knus Beta.

miðvikudagur, júlí 26, 2006

aha

Dagurinn í dag einkenndist af búðarápi, borgarhluta á milli, marinmekko dúkum og rúmfötum, stelton vörum, tivoli útvarpi, hádegishlaðborði á Ask með heitum og köldum réttum, súpu og salati og að lokum innliti frá mömmu og Gulla til okkar Skúla.

Enn toppurinn á deginum var þó þegar mamma og Gulli hringdu dyrabjöllunni rétt fyrir hádegi og ég hleyp í sloppinn hans Dáda og tek úr lás að ég tel og hleyp niður að opna fyrir þeim á buskunum einum klæða og baðsloppi enn viti menn þegar upp er komið reynist læst inn svo ég hringdi í Dánda og þessi blessaða elska neiddist til að koma heim alla leið frá nýbyggingavinnu í hverfi við Rauðavatn og opna fyrir okkur;/

Í dag vorum við Dándi opinberlega skráð í sambúð og er það viss léttir að vera kominn með löggilta og fasta búsetu og vera kominn með sambýlismann á pappírum;) jibbí jei...

Ég er búin að éta yfir mig af ruslmat ég át lakkrís sem mamma splæsti í mig í húsgagnahöllinni /slash Krónunni og svo datt ég í nammigrísajapl áðan í Bónusvideó á leiðinni heim...nóg komið að því fyrir mig mig langar ekki að setja nammi aftur inn fyrir mínar varir ég er svo stútfull og uppsöfnuð af gotteríi-best að taka kjúklíngabringur útúr frystinum og afþíða fyrir kvöldið bara, já sveimér þá;)

Knús Knús Beta nammigrís;)

þriðjudagur, júlí 25, 2006

Kryddkaka og trópí

Það hefur nýju æði slegið upp hjá mér enn það eru kökur er orðin ansi dugleg í bakstrinum bakaði til að mynda sandköku um helgina, ummh hvað hún var góð volg með mjólk.

Fórum í eitt af bestu grillunum hans pabba í gærkvldi, kjúklingastrimla og brauð með salsa og hvítlauk eldbakað eða grillað öllu heldur.

Við Dándi erum búin að vera dugleg að spila bakkaman, það er bara hið ágætasta spil Gýja systir Dánda sagðist geta lánað okkur spilað þeirra Ara sem er víst orðið tuttugu ára og vantar ekki einn hlut í spilið;) geri aðrir betur. Fórum í Kjúklíng ( sítrónu) til þeirra á laugardaginn og þá var farið á rúntinn með Gýgju á nýja kagganum.

Ég lenti í alveg hreint versta óhappi í vinnunni í dag, ég steig á þjófavarnapinna sem stakkst með þessum líka látum beint inní ristina á mér, sársaukinn leyndi sér ekki þegar ég átti bágt með að halda tárunum frá því að streyma;(

Farin að klára Subwayinn minn Knus & Kram Beta óhappadýr;)

föstudagur, júlí 21, 2006

Súrsæt sósa & óskalög sjómanna-og sjúklinga

Í gær var ég gjörsamlega staurblönk og fékk 5000 kall frá Dánda ætlaði að plana að fara fínt og sparlega með peninginn, nei nei mín fór í bakaríið um morguninn, á subway um miðdaginn og á Nings um kvöldmatarleytið geri aðrir betur, segið svo að það sé ekki gaman að lifa hátt.

Það má segja að ég hafi farið 3 sinnum út að borða á einum degi þar sem ég náði að afreka að vinna 10 klst. samt sem áður-tíhí.

Hver man eftir þættinum ofannebbda, hvað varð um þann snilldarþátt? Bara aðeins að velta vöngum mínum yfir einhverju tilgangslausu-tíhí.

Heido Beta;) mangi svangi

Yfirvofandi netleysi

heyrðu góða...ég er ekki búin að vera löt við að koma inn með hugrenninga kempunnar heldur hefur netið legið niðri enn ég reddaði því-ég dey ekki ráðalaus;) hringdi hið snarasta í Dánda og sagði nú ferð þú út í búð og reddar netinu fyrir helgina ok?-tíhí, malið er nebblilega þannig með vexti að ég er farin að stúdera jarðfræðina enn á ný;/ skamm skamm hvað ég hef verið lengi að læra þennan áfanga það er hrikalegt að seinka prófum;( enn ég ætla að bretta fram úr ermum og ætla að læra á fullu um helgina þar sem ég er í helgarfríi frá annasamri vinnu, svo ætla ég að taka þetta nám með trompi í ágústmánuði og svo ætla ég að vera dugleg að dunda mér við að lesa í flugvélinni og kanski þegar það er rólegt að gera yfir frokostinum eða e-h álíka úti í Köben í september það ætti nú að fynnast nægur tími þar sem við dveljum á Italiansvej yfir 17 daga nær 3 vikur, svo ég geti skráð mig í próf snemma í næsta mánuði og tekið það í byrjun október;) svaka stíft og strembið prógramm nú er bara að standa sig;)

Ég horfði á eina sætustu enn jafnframt væmnustu mynd í gær, Dándi er e-h í rómantíska horninu þessa dagana þar sem hann stakk uppá rómantískri bíómynd í laugarásbíó á sunnudag, sem endaði reyndar með mynni frekju á að fara á Click, og tók myndina failure to launch í gærkvöldi hann dottaði reyndar yfir henni enn ég var starsýnt á magnaðan leik þessara tveggja aðalleikara, enn þar var eingin önnur enn aðalstjarnan í sex in the city Sarah Jessica Parker og M. McConaughey hjartaknúsarinn sjálfur.

Það er komið í doldinn vana að fara einu sinni til tvisvar í viku í mat til múttu og pabbsa, og verður pasta eða grill ansi oft fyrir valinu þar á bæ, ég vona að þegar við Dándi verðum orðin gömul eða eldri-hummhuuuum**hóst hóst að börnin verða dugleg þegar þau verða flutt að heima að heimsækja gömlu skötuhjúin;)

Ég er búin að vera hrillilega dugleg við að taka til í dag og hef eitt meira eða minna enn þrem klst. (tímum) í tiltekt, og er að sjá fyrir endann á eftir að ryksuga skúra og þrífa doldinn þvott enn þetta er allt að koma guði sé lof, ég hef leyft þessu að sitja sni mikið á hakanum undanfarna daga skamm skamm;)

Er farin að fynna sérkennilega likt ég er viss um að já ég er ekki frá því að plokkfiskurinn sé að ofhitna hjá mér, ummh plokkfiskur með kartöflum og rúgbrauði hvað er betra enn þjóðarmatur, verð að bæta kalki og próteinum inni fæðuna, mjólk og græn epli eru í miklu uppáhaldi hjá mér þessa dagana þau eru svo safarík e-h.

Knus og Kram Beta;)

föstudagur, júlí 14, 2006

Smack the pony

Ég hef staðið á haus bókstaflega undanfarið það er búið að vera svo mikið að gera, vinnan í Companys hjá ntc, dagurinn í retro í smáralind, vinnan í zöru í smáralind, viðtalið við Sævar í Leonard út af vinnunni í Nanu...það er búið að vera nóg á minni könnu, svo var ég að herða mig í náminu er að komast á fullt skrið með fjarnámið og stefni að útskrift í kringum jólin 2007 ef guð lofar;) hope to god and finger's krossed!!

Í kvöld er JT (jón tryggvi) litli frændi Dánda búinn að vera í pössun hjá okkur og verður hjá okkur í nótt, eru þeir búnir að masa um fótbolta, vera í fótboltaleikjum og eru núna í þessum töluðu orðum úti á velli að spila hvað annað enn fótbolta-tíhí strákar þeir eru alveg kostulegir.

Um helgina erum við Dándi að fara í eggjaköku til m&p, pabbi gerir beztu eggjakökur í heiminum, þau létu okkur fá tvö eldföst mót frá spánaríki og úrvals kaffikönnu frá bodum og erum við skötuhjúin að Rauðalæk 71 búin að njóta góðs af því;) thankz.

Ég er búin að vera að dunda mér undanfarið við að taka tíma útaf fyrir mig og slaka á og láta líða úr mér...ég fer eftir gullnu reglunni og borða alltaf 5 ávexti á dag...& hef reynt að lifa eftir mottóinu þú ert það sem þú borðar þess vegna hugsa ég mig alltaf tvisvar um áður enn ég sting e-h uppí mig.

Skúli stækkar svo ört að mér nánast blöskrar ég hef ekki undan að fóðra hann hann gjörsamlega mergsígur allan mat ;) þótt ótrúlegt sé fyrir svona lítinn kisa.

Eigið góða helgi gott fólk-mér undrar hvað rósirnar sem ég fékk frá honum Dánda mínum á ammælinu mínu hafa blómstrað lengi í heila helgi og virðast ætla að standa miklu lengur þær eru ekkert að hætta að blómstra;) yndislegt bjútýfúl...Knuz & Kram Beta.

sunnudagur, júlí 09, 2006

Sól Sól

Skín á mig
ský ský burt með þig
gott er að láta sólina skína á sig
sól sól skín á mig

Það jaðrar við sólsting í þessari blessaðri blíðu kanski maður rukki Dánda bara um ísinn sem við ætluðum að fá okkur með myndinni í gær enn höfðum ekki magapláss fyrir eftir allt grillið og kökuátið;)

HM úrslitin og Köben

Jámm fór í smá kaffi til Jóhönnu frænku rétt eftir hádegi, fór örg í Bónus að reyna að skila kjúkling sem mér var seldur nánast útrunninn og líklegast stútfullur af H5N1 eða hvað það nú er sem við eigum að forðast ég tek það ekki í mál að matreiða fyrir nokkurn á mínu heimili útrunninn fugl...ekki það að ég borði ekki oft fugl enn samt nei...;) Svo er ég búin að standa á haus við tiltektir, verð að haska því af fyrir 18 enn það verður úrslitaleikur hm 2006 sýndur á sýn í opinni dagskrá og má búast við svaka látum...

Var að spá í ef ég hef tíma að taka golfinn minn/okkar og taka hann í gegnu kominn tími til við Dándi fórum uppí gufuneskirkjugarð um daginn og hann neitaði að fara gólfinnum sagði förum á bimmanum...ég er búin að vera soldið löt við að taka til í gólfinum hann er búinn að fá að sitja ansi mikið á hakanum enn dándi er duglegur að taka bimmann í gegn um hverja helgi;)...

Dándi hringdi áðan og tjáði mér það að tengdó væru að fjárfesta í farmiðum handa okkur ferðinni er haldið til Köben á Italiansvej í Amager, 13-30 sept. þá náum við tveimur góðum dögum með tengdó áður enn þau halda að utan og eftir að þau koma heim, ekki amalegt það...

Vildi líka þakka fyrir allar góðu kveðjurnar sem ég fékk í gær og símtölin, gaman þegar það er munað eftir svona dögum...það kemur manni alltaf svo á óvart hversu margir hugsa til manns á ammælinu mínu;) ohh ég verð alveg klökk,;)

Ég fékk 23 þúsund í beinhörðum peningum ( fyrirfram þegar við fórum í bústaðinn og til Köben)
10 risa ofurvaxnar rósir í vendi
bakarísfrokost
heillaóskir og faðmlög sem eru mér hvað kærust
og kram og knús ville væk...
svo ekki að ógleymdum öllum sms heillaskeytunum
því má segja að ég hafi átt yndislegan ammælisdag umvafin þeim sem eru mér kærastir og standa mér næstir
spisaði trubblaðan mat og kökur
drukkið mikið expressó kaffi
og tjattað fram eftir kvöldi

Farin að hamstra í mig H2O;) kærlig hilsen Betz

laugardagur, júlí 08, 2006

Rósir, karamellu -og súkkulaðikaka

Dagurinn byrjaði frábærlega Dándi fór úti bakarí áður enn við fórum að vinna, og koma heim með stærsta rósarvönd sem ég hef augum litið, svo fór ég að vinna í Companys og hann að mála, svo hittumst við heima og fórum í sjúklega góða máltíð til mömmu og pabba, fengum grill, uppáhaldið mitt sem ég hafði sérpanað, grillmatur á teini í massavís, og svo voru karamellu- og súkkulaðikaka í desert-ummmh.

Vorum að koma heim og Dándi skrapp útá leigu að taka e-h kósí mynd fyrir mig svo við getum haft það svaka rómó tvö-hann stakk uppá því reyndar að kaupa ís og jarðarber og sósur enn við erum bæði svo södd að það verður að bíða til morguns-tíhí.

Svo er ég búin að fá allt fullt af afmæliskveðjum Hildur mín hringdi frá Köben, frá Gýju systur Dánda og fjölsk. og öllum sem eru mér kærastir;)

Ég er farin að telja niður dagana í fríið okkar 17 daga frí til Köben í september ég get varla beðið ég er alveg að kabbna...

Vildi líka nota tækifærið því ég veit að mammsa er dugleg að lesa bloggið mitt og þakka þeim fyrir afmælisgjöfina mína sem ég var svo frökk að grenja út fyrirfram fyrir síðustu köben ferð fyrr í síðasta mánuði;) hún kom sér vel á strikinu;)

Kram & Knus Beta Afmælisbarn (23 síðan 11,30).

Ammæli & annasamir dagar

Í dag þann 8. júlí eru 23 ár liðin síðan ég fæddist, á því herrabs ári 1983. Í gær byrjaði ég í nýrri vinnu að vinna hjá NTC Iceland-í Companys sem er verslun innan þeirrar keðju, því næst fór ég heim að grilla með Dánda mínum, hann að grilla réttara sagt og ég að búa til salat;)...svo fórum við útí Gufuneskirkjugarð að leiða hjá þremur ungmennum sem ég kannaðist við sem létust að slysförum um verslunarmannahelgina 2000, þar var einnig Loftur bróðir pabba Dánda grafinn. Svo var farið heim og horft á hörkuspennandi dramamynd, Breks svo ekki skemmir það fyrir.

Í nótt vaknaði ég við dink frammi hafði þá litli terroristinn hann Skúli hent niður krús af skartgripum og dauðskammaðist hann sín í felum inná baðherbergi allur í keng þessi elska;/

Dándi fór útí bakarí til að kaupa e-h gott í gogginn handa okkur og sérstaklega fékk ammælisstelpan að koma með ósk um hvað hún vildi fá í frokost;) það er ekki amalegt að eiga ammæli, hann ætlaði að kaupa handa mér rafmagns pipar og salthvörn og safapressu enn það var uppselt ég var búin að sýna honum það í BT blaðinu fannst það svo spennandi enn hann er búinn að vera að pukra í kringum e-h annað, ég má ekkert vita hvað það er það verður gaman að sjá hvað blessaður kallinn gefur mér-tíhí;)

Svo erum við bæði að fara að vinna eftr hádegi enn förum svo í grill í uppáhaldið mitt svín og lamb á teini með grilluðu grænmeti-ummh hjá Mömmsu og Pabbsa seinna í kvöld í tilefni af ammælinu mínum;)

Dándi var að segja mér það í gærkvöldi að það er komið á hreint við förum út þann 13. sep til 30. sept til að ná að vera smá með tengdó líka úti í einn dag eða svo, það verður ekkert smá gaman og algjör afslöppun;) enn er farin að hella uppá Starbucks og bíða í ofvæni eftir frokostinum.

Það er ekki amalegt að era vakinn á ammæisdaginn sinn og mynntur á hvað maður á gott líf og fóða af ;) Knuz Betz ammælisstelpa...

Ballons & party....
BBQ & summer....
Love & peace....

þriðjudagur, júlí 04, 2006

Rembingskoss

koss-jámm, ég er svo stollt af sjálfri mér og kallinum mínum að ég gaf honum rembingskoss áður enn hann fór í vinnuna í morgun...

Annað sem ég vil koma inná er hvað er eiginlega málið? Sorrí ég skal útskýra þetta fyrir ykkur þannig er mál með vexti að ég fór á Lordag sl. og keypti kjúklíngabringur í Bónus frá Holta KJúlla í bakka, í gær tók ég eftir því að þær runnu út tveimur dögum áður enn ég keypti þær s.s. á fimmtudaginn síðasta, mín er ekki alveg sátt og með alla þessa vitneskju um salmonelu og hvaðeina þá héldi ég að fólk myndi hafa aðgát enn vitiði hvað aldeilis ekki þetta er víst ansi algengt komst ég að þegar ég fór að grenslast fyrir um þetta:/

Mottó; fylgjumst alltaf vel með dagsetningunum, litnum & liktinni.
Ein band brjáluð;)

Heimilistiltekt og síðbúinn kvöldverður

Í gær fór ég snemma á fætur átti reyndar frídag framundan enn ákvað að láta slag standa og vakna snemma að gömlum sið og taka til, mín beið þvottur í stabbla, skúr sem þurfti að skrúbba og bóna;)...

Eftir hádegi kom litla fjölskyldan úr Hlíðunum í kaffisopa, ég hálf skammaðist mín því íbúðin var ekki alveg í toppstandi, hreinlætisefni útum allar trissur, ryksugan á miðju gólfinu og skúringarfatan stóð þvert fyrir sófanum, enn ég lét það ekki á mig fá og gaf þeim kaffi og spjall og var mikið rætt um Skúla, litla terroristann.

Síðar um kvöldið var smá imba gláp svo gafst ég upp á að horfa á sjónvarpið enda er ég ekki alveg típan í það að hanga heima aðgerðarlaus og horfa á sjónvarpið segjum bara að ég sé of ofvirk fyrir það, því næst hringdi ég í tengdamömmu og fékk þær fréttir að veðrir í Köben sé alveg hreint trubblað þessa dagana enn í gær þegar ég var að tala við hana þá var 28 stiga hiti °C-úff ýmindið ykkur hún líst því eins og hún væri komin með nettan sólsting. Greyjið Lui litli kötturinn þeirra hann hefur verið að stikna eða ölluheldur grillast úti í garði, kanski hann hefur verið vitur og haldið sig bara inni á baði og setið hjá opna glugganum;)

Svo var farið í heimsókn til mömmsu og pabbsa, þar var maturinn ekki fyrr enn um 10 leytið því Gulli var á æfingu og ekki náðist að borða fyrir hana sökum þess að þau fóru fyrr um daginn að væblast um Reykjanesið;)-Dándi kom eftir vinnu og borðuðum við öll saman, grilllamb, pólskar pulsur, salat uppáhaldið mitt með mangó og ananas, og nanbrauð, og ekki að spyrja að því að við Dándi fórum heim með allan afgang-tíhí.

Við fórum í fyrradag, gerðum okkur ferð við skötuhjúin til Keflavíkur að skoða verk sem Dándi var að bjóða í, Pétur maðurinn hennar Ólafar frænku rekur heimilisinnréttingafyrirtæki og var að selja innréttingar fyrir yfir milljon til efnaðs skipstjóra og bauð Dánda að taka að sér málningarvinnuna;)-íbúðin var hreint út sagt trubbluð hún var svo spes og flott, marmari og gólfum 38 fermetra eldhús með gas og arin sem rennur upp skorstein við eldhússvalirnar, 52" flatskjá-ummmh, ég var bara í sjöunda himni við innlitið, vantaði orð til að lísa hvað þetta var flott hús;)

Er farin að hella uppá Starbucks sem er mitt uppáhalds núna þessa dagana....knuz & kærlig hilsen Betz;)

mánudagur, júlí 03, 2006

Útiblóm

Mammsa gaf mér og Dánda fallegableik útiblóm, málið er þannig með vexti að okkur vantar gervi mosa eða svona kork og hanka eða kraga til að hengja þá uppá til að kórónaverkið ég tróð bara dagblöðum gömlum í vasann í staðinn, ég er bara þannig að ég er alltaf svo hrædd um dótið mitt, það er e-h sem hefur þróast með aldrinum að passa uppá sitt og ég er svo hrædd um að þau fjúki ef festingin er ekki nægilega vel föst, ef blómið tollir ekki rétt á því spyr ég, á ég að hengja blómið upp á nagla í þakrennuna eða bara einfaldlega að bora það inní vegginn fyrir ofan grillið?-etta er smá háskóla pæling;)....

+Vildi nota tækifærið og segja ég samhryggist Möggu góðkunningja og bið alla engla og góða vættir vaka yfir henni og hennar fjölskyldu á þessum erfiðu tímum+

Farin að brenna kalóríur í tiltektum-og hella uppá kaffi Jóhanna frænka og mamma eru líklegast að koma í kaffisopa/tesopa-tíhí.

Dobbúl fodselsdagsfest

Í gær fórum við í tvö ammæli, annars vegar í Engihjallann til Eyjólfs litla og hins vegar í miðbæinn til hans Úlfars litla frænda hans Dánda...sannkallaður ammælisdagur;)

Því næst fórum við heim að spísa kvöldmat, vorum bara með léttan mat eftir allt áteríið í boðunum og fengum okkur smorrebrod, fórum svo til Keflavíkur og keyrðum um allan Reykjanesbæ endilangan þvers og kruss til að leita að einu tilteknu húsi, Dándi fékk tilboð i að mála það í gegnum Ólöfu frænku og manninn þeirra og fyrirtæki sem Pétur rekur, þetta var ekkert smá stórt hús 52" flatskjár og ég veit ekki hvað....

Svo var haldið heim, horft á restina af Extras, breska gamanmyndaflokknum og sofnað yfir myndinni Along Came Polly, sem er ein fyndnasta mynd sem ég hef séð, Dándi tók hana á laugardaginn því hann hélt að þetta væri tilvalin mynd fyrir mig svona dömumynd enn hann hafði bara gaman af henni sjálfur;)...

Í morgun var hellt uppá kaffi af vana/starbucks um 7 leytið og lagaði ég boost drykk eða smoothie með báberjaskyri, banana og jarðarberjum...-ummmh. Ég slefaði yfir honum við að laga hann.

Svo lagðist ég aftur til rekkju þar sem ég á frídag sem gerist ekki oft, og svaf alveg þar til Dándi kom heim í morgunkaffi um 10 leytið og vakti mig, með svaka sögu að segja mér og fréttir. Í dag er tiltektardagur og er ég búin að byrja mig upp af tuskum, klútum, nýrri þveglamottu, allskyns hreinlætisefnum og nú er bara að hefjast handa.

Ætla að fá mér e-h í gogginn fá mér einn kaffi expresso double að gömlum vana og leggjast í hreingerningar;)...ég er ein af þeim sem elska að taka til með græjurnar í botni að hlusta á Coldplay meðal annars og raula með...

Eigið góðan dag, KNUZ BETZ;)

laugardagur, júlí 01, 2006

Hættu að telja þetta er ég...

Vöknuðum í dögun og Dándi fór á Danska Kontitorinn hjá Júlíu (frænku hans) og keypti bakkelsi og fíneri, dreyptum við á volgum kaffibolla og ferskum appelsínusafa og horfðum á HM, Ger vs. Arg. Var leikurinn hreint út sagt trubblaðar, goal goal og vítaspyrna;) Mínir menn unnu ekki, enn jafn og góður leikur framanaf.

Var dauðþreytt í gærkvöldi eftir kvöldvaktina og hélt ég myndi sofa út í dag enn að gömlum vana, vaknaði ég í dögun og vakti kallinn í leiðinni, til að drífa sig í bakaríið;)

Ég verð 23 eftir akkurat viku, er ég virkilega að verða svona gömul, jamm það lýtur allt út fyrir það-tíhí, Dándi var að minna mig á ammælið mitt í gærmorgun og ég alveg já ég er að verða 23, jiii;)

Er farin að skrifa innkaupalista, verzla inn fyrir vikuna.
Knuz Betz.