Dedda Litla Prinsessa-Lukkuleg Pempía Á Pinnahælum

1. Eigandi Elísabet Halldórsdóttir 2. Eiginmaður Þrándur Tryggvason 3. sonur Steinar Máni Þrándarson 4. Lukkuleg pempía á pinnahælum

þriðjudagur, júlí 25, 2006

Kryddkaka og trópí

Það hefur nýju æði slegið upp hjá mér enn það eru kökur er orðin ansi dugleg í bakstrinum bakaði til að mynda sandköku um helgina, ummh hvað hún var góð volg með mjólk.

Fórum í eitt af bestu grillunum hans pabba í gærkvldi, kjúklingastrimla og brauð með salsa og hvítlauk eldbakað eða grillað öllu heldur.

Við Dándi erum búin að vera dugleg að spila bakkaman, það er bara hið ágætasta spil Gýja systir Dánda sagðist geta lánað okkur spilað þeirra Ara sem er víst orðið tuttugu ára og vantar ekki einn hlut í spilið;) geri aðrir betur. Fórum í Kjúklíng ( sítrónu) til þeirra á laugardaginn og þá var farið á rúntinn með Gýgju á nýja kagganum.

Ég lenti í alveg hreint versta óhappi í vinnunni í dag, ég steig á þjófavarnapinna sem stakkst með þessum líka látum beint inní ristina á mér, sársaukinn leyndi sér ekki þegar ég átti bágt með að halda tárunum frá því að streyma;(

Farin að klára Subwayinn minn Knus & Kram Beta óhappadýr;)

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home