Dedda Litla Prinsessa-Lukkuleg Pempía Á Pinnahælum

1. Eigandi Elísabet Halldórsdóttir 2. Eiginmaður Þrándur Tryggvason 3. sonur Steinar Máni Þrándarson 4. Lukkuleg pempía á pinnahælum

laugardagur, júlí 08, 2006

Rósir, karamellu -og súkkulaðikaka

Dagurinn byrjaði frábærlega Dándi fór úti bakarí áður enn við fórum að vinna, og koma heim með stærsta rósarvönd sem ég hef augum litið, svo fór ég að vinna í Companys og hann að mála, svo hittumst við heima og fórum í sjúklega góða máltíð til mömmu og pabba, fengum grill, uppáhaldið mitt sem ég hafði sérpanað, grillmatur á teini í massavís, og svo voru karamellu- og súkkulaðikaka í desert-ummmh.

Vorum að koma heim og Dándi skrapp útá leigu að taka e-h kósí mynd fyrir mig svo við getum haft það svaka rómó tvö-hann stakk uppá því reyndar að kaupa ís og jarðarber og sósur enn við erum bæði svo södd að það verður að bíða til morguns-tíhí.

Svo er ég búin að fá allt fullt af afmæliskveðjum Hildur mín hringdi frá Köben, frá Gýju systur Dánda og fjölsk. og öllum sem eru mér kærastir;)

Ég er farin að telja niður dagana í fríið okkar 17 daga frí til Köben í september ég get varla beðið ég er alveg að kabbna...

Vildi líka nota tækifærið því ég veit að mammsa er dugleg að lesa bloggið mitt og þakka þeim fyrir afmælisgjöfina mína sem ég var svo frökk að grenja út fyrirfram fyrir síðustu köben ferð fyrr í síðasta mánuði;) hún kom sér vel á strikinu;)

Kram & Knus Beta Afmælisbarn (23 síðan 11,30).

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home