Yfirvofandi netleysi
heyrðu góða...ég er ekki búin að vera löt við að koma inn með hugrenninga kempunnar heldur hefur netið legið niðri enn ég reddaði því-ég dey ekki ráðalaus;) hringdi hið snarasta í Dánda og sagði nú ferð þú út í búð og reddar netinu fyrir helgina ok?-tíhí, malið er nebblilega þannig með vexti að ég er farin að stúdera jarðfræðina enn á ný;/ skamm skamm hvað ég hef verið lengi að læra þennan áfanga það er hrikalegt að seinka prófum;( enn ég ætla að bretta fram úr ermum og ætla að læra á fullu um helgina þar sem ég er í helgarfríi frá annasamri vinnu, svo ætla ég að taka þetta nám með trompi í ágústmánuði og svo ætla ég að vera dugleg að dunda mér við að lesa í flugvélinni og kanski þegar það er rólegt að gera yfir frokostinum eða e-h álíka úti í Köben í september það ætti nú að fynnast nægur tími þar sem við dveljum á Italiansvej yfir 17 daga nær 3 vikur, svo ég geti skráð mig í próf snemma í næsta mánuði og tekið það í byrjun október;) svaka stíft og strembið prógramm nú er bara að standa sig;)
Ég horfði á eina sætustu enn jafnframt væmnustu mynd í gær, Dándi er e-h í rómantíska horninu þessa dagana þar sem hann stakk uppá rómantískri bíómynd í laugarásbíó á sunnudag, sem endaði reyndar með mynni frekju á að fara á Click, og tók myndina failure to launch í gærkvöldi hann dottaði reyndar yfir henni enn ég var starsýnt á magnaðan leik þessara tveggja aðalleikara, enn þar var eingin önnur enn aðalstjarnan í sex in the city Sarah Jessica Parker og M. McConaughey hjartaknúsarinn sjálfur.
Það er komið í doldinn vana að fara einu sinni til tvisvar í viku í mat til múttu og pabbsa, og verður pasta eða grill ansi oft fyrir valinu þar á bæ, ég vona að þegar við Dándi verðum orðin gömul eða eldri-hummhuuuum**hóst hóst að börnin verða dugleg þegar þau verða flutt að heima að heimsækja gömlu skötuhjúin;)
Ég er búin að vera hrillilega dugleg við að taka til í dag og hef eitt meira eða minna enn þrem klst. (tímum) í tiltekt, og er að sjá fyrir endann á eftir að ryksuga skúra og þrífa doldinn þvott enn þetta er allt að koma guði sé lof, ég hef leyft þessu að sitja sni mikið á hakanum undanfarna daga skamm skamm;)
Er farin að fynna sérkennilega likt ég er viss um að já ég er ekki frá því að plokkfiskurinn sé að ofhitna hjá mér, ummh plokkfiskur með kartöflum og rúgbrauði hvað er betra enn þjóðarmatur, verð að bæta kalki og próteinum inni fæðuna, mjólk og græn epli eru í miklu uppáhaldi hjá mér þessa dagana þau eru svo safarík e-h.
Knus og Kram Beta;)
+copy.jpg)

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home