aha
Dagurinn í dag einkenndist af búðarápi, borgarhluta á milli, marinmekko dúkum og rúmfötum, stelton vörum, tivoli útvarpi, hádegishlaðborði á Ask með heitum og köldum réttum, súpu og salati og að lokum innliti frá mömmu og Gulla til okkar Skúla.
Enn toppurinn á deginum var þó þegar mamma og Gulli hringdu dyrabjöllunni rétt fyrir hádegi og ég hleyp í sloppinn hans Dáda og tek úr lás að ég tel og hleyp niður að opna fyrir þeim á buskunum einum klæða og baðsloppi enn viti menn þegar upp er komið reynist læst inn svo ég hringdi í Dánda og þessi blessaða elska neiddist til að koma heim alla leið frá nýbyggingavinnu í hverfi við Rauðavatn og opna fyrir okkur;/
Í dag vorum við Dándi opinberlega skráð í sambúð og er það viss léttir að vera kominn með löggilta og fasta búsetu og vera kominn með sambýlismann á pappírum;) jibbí jei...
Ég er búin að éta yfir mig af ruslmat ég át lakkrís sem mamma splæsti í mig í húsgagnahöllinni /slash Krónunni og svo datt ég í nammigrísajapl áðan í Bónusvideó á leiðinni heim...nóg komið að því fyrir mig mig langar ekki að setja nammi aftur inn fyrir mínar varir ég er svo stútfull og uppsöfnuð af gotteríi-best að taka kjúklíngabringur útúr frystinum og afþíða fyrir kvöldið bara, já sveimér þá;)
Knús Knús Beta nammigrís;)
+copy.jpg)

1 Comments:
hey við förum sko saman á ASK þegar ég kem í bæinn! :).... sambúð já, guð Til Hamingju með það! er ýkt ánægð fyrir þína hönd, veit hversu vænt þér þykir um það:* og já ég held að þú þurfir nú ekki að hafa miklar áhyggjur af þessu nammiáti í þér síðustu daga! ert búin að vera svo dugleg að borða hollt endalaust lengi þannig að þetta voru bara verðlaunin ;) en ég bið bara að heilsa ykkur sætu skötuhjú og hlakka ýkt til að heimsækja ykkur þegar ég kem í bæinn:*
Skrifa ummæli
<< Home