Dedda Litla Prinsessa-Lukkuleg Pempía Á Pinnahælum

1. Eigandi Elísabet Halldórsdóttir 2. Eiginmaður Þrándur Tryggvason 3. sonur Steinar Máni Þrándarson 4. Lukkuleg pempía á pinnahælum

laugardagur, júlí 08, 2006

Ammæli & annasamir dagar

Í dag þann 8. júlí eru 23 ár liðin síðan ég fæddist, á því herrabs ári 1983. Í gær byrjaði ég í nýrri vinnu að vinna hjá NTC Iceland-í Companys sem er verslun innan þeirrar keðju, því næst fór ég heim að grilla með Dánda mínum, hann að grilla réttara sagt og ég að búa til salat;)...svo fórum við útí Gufuneskirkjugarð að leiða hjá þremur ungmennum sem ég kannaðist við sem létust að slysförum um verslunarmannahelgina 2000, þar var einnig Loftur bróðir pabba Dánda grafinn. Svo var farið heim og horft á hörkuspennandi dramamynd, Breks svo ekki skemmir það fyrir.

Í nótt vaknaði ég við dink frammi hafði þá litli terroristinn hann Skúli hent niður krús af skartgripum og dauðskammaðist hann sín í felum inná baðherbergi allur í keng þessi elska;/

Dándi fór útí bakarí til að kaupa e-h gott í gogginn handa okkur og sérstaklega fékk ammælisstelpan að koma með ósk um hvað hún vildi fá í frokost;) það er ekki amalegt að eiga ammæli, hann ætlaði að kaupa handa mér rafmagns pipar og salthvörn og safapressu enn það var uppselt ég var búin að sýna honum það í BT blaðinu fannst það svo spennandi enn hann er búinn að vera að pukra í kringum e-h annað, ég má ekkert vita hvað það er það verður gaman að sjá hvað blessaður kallinn gefur mér-tíhí;)

Svo erum við bæði að fara að vinna eftr hádegi enn förum svo í grill í uppáhaldið mitt svín og lamb á teini með grilluðu grænmeti-ummh hjá Mömmsu og Pabbsa seinna í kvöld í tilefni af ammælinu mínum;)

Dándi var að segja mér það í gærkvöldi að það er komið á hreint við förum út þann 13. sep til 30. sept til að ná að vera smá með tengdó líka úti í einn dag eða svo, það verður ekkert smá gaman og algjör afslöppun;) enn er farin að hella uppá Starbucks og bíða í ofvæni eftir frokostinum.

Það er ekki amalegt að era vakinn á ammæisdaginn sinn og mynntur á hvað maður á gott líf og fóða af ;) Knuz Betz ammælisstelpa...

Ballons & party....
BBQ & summer....
Love & peace....

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home