Dedda Litla Prinsessa-Lukkuleg Pempía Á Pinnahælum

1. Eigandi Elísabet Halldórsdóttir 2. Eiginmaður Þrándur Tryggvason 3. sonur Steinar Máni Þrándarson 4. Lukkuleg pempía á pinnahælum

mánudagur, júlí 31, 2006

Konditorinn

er jammí nýji besti staðurinn okkar Dánda, fórum þarna einn morguninn fyrir vinnu saman og settumst inn í þægindin g fengum okkur latte og súkkulaði horn og kjallarabollu með osti, rjúkandi kaffi að dönskum sið.

Vorum líka dugleg að sækja staðinn um helgina, það er svo notalegt að vakna fara í bakaríið og bragða sér á ilmandi nýlöguðu kaffi og rúgstykki svona árla dags.

Það er búið að vera brjálað að gera ég er að drukkna í vinnu, svo er skólinn kominn á fullt hjá mér, róleg helgi framundan, við erum að fara að breyta íbúðinni, kaupa borðstofuborð og stóla, hillusamstæðu, marinmekko fær líka að fljóta með skipta út rúminu fyrir rúmið mitt sem er hjá mömmu og pabba, fá stæði fyrir sjónvarpið mitt og dvd tækið mitt inní herbergi...breyta eldhúsinu eða taka það jafnt sem baðherbergið hressilega í gegn svo það er í nógu að snúast;)
Svo það hefur verið lítið annað gert enn rennt í gegnum gamla sem nýja Ikea bæklinga.

Enn að allt öðru, við Dándi vorum með villibráð í fyrradag, hann Dándi grillaði Hreindýrakjöt sem er ekki svo ósvipað nautakjöti bara frekar gott hefði viljað smakka það á steinasteik næst ;o)

Er farin að skila inn launatímum heimilismanna að Rauðalæknum, vil þakka Sigurrós fyrir góða tónleika í gærkvöldi;*;* þeir eru bara ansi góðir-knus knus Beta.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home