Smack the pony
Ég hef staðið á haus bókstaflega undanfarið það er búið að vera svo mikið að gera, vinnan í Companys hjá ntc, dagurinn í retro í smáralind, vinnan í zöru í smáralind, viðtalið við Sævar í Leonard út af vinnunni í Nanu...það er búið að vera nóg á minni könnu, svo var ég að herða mig í náminu er að komast á fullt skrið með fjarnámið og stefni að útskrift í kringum jólin 2007 ef guð lofar;) hope to god and finger's krossed!!
Í kvöld er JT (jón tryggvi) litli frændi Dánda búinn að vera í pössun hjá okkur og verður hjá okkur í nótt, eru þeir búnir að masa um fótbolta, vera í fótboltaleikjum og eru núna í þessum töluðu orðum úti á velli að spila hvað annað enn fótbolta-tíhí strákar þeir eru alveg kostulegir.
Um helgina erum við Dándi að fara í eggjaköku til m&p, pabbi gerir beztu eggjakökur í heiminum, þau létu okkur fá tvö eldföst mót frá spánaríki og úrvals kaffikönnu frá bodum og erum við skötuhjúin að Rauðalæk 71 búin að njóta góðs af því;) thankz.
Ég er búin að vera að dunda mér undanfarið við að taka tíma útaf fyrir mig og slaka á og láta líða úr mér...ég fer eftir gullnu reglunni og borða alltaf 5 ávexti á dag...& hef reynt að lifa eftir mottóinu þú ert það sem þú borðar þess vegna hugsa ég mig alltaf tvisvar um áður enn ég sting e-h uppí mig.
Skúli stækkar svo ört að mér nánast blöskrar ég hef ekki undan að fóðra hann hann gjörsamlega mergsígur allan mat ;) þótt ótrúlegt sé fyrir svona lítinn kisa.
Eigið góða helgi gott fólk-mér undrar hvað rósirnar sem ég fékk frá honum Dánda mínum á ammælinu mínu hafa blómstrað lengi í heila helgi og virðast ætla að standa miklu lengur þær eru ekkert að hætta að blómstra;) yndislegt bjútýfúl...Knuz & Kram Beta.
+copy.jpg)

1 Comments:
kva hætt að blogga.... neiii plís!
Skrifa ummæli
<< Home