Dedda Litla Prinsessa-Lukkuleg Pempía Á Pinnahælum

1. Eigandi Elísabet Halldórsdóttir 2. Eiginmaður Þrándur Tryggvason 3. sonur Steinar Máni Þrándarson 4. Lukkuleg pempía á pinnahælum

föstudagur, mars 31, 2006

Konan hrýtur og von á kettling

Ég hef alltaf verið þekkt fyrir að standa á mínu og láta engan traðka á mér og þegar Þrándur tjáði mér að ég hriti eins og versta hross, þá varð ég ekki sú sáttasta, ég þverneitaði, allt kom fyrir ekki og í sumarhúsinu um síðastliðna helgi lagði ég mig á föstudagskvöldinu, Þrándur sat í makindum sínum inní í stofu þegar hann heyrði óhljóð frá anddyrinu, hann taldi að veðurguðirnir væri eithvað að þenja sig, enn nei var etta ekki bara skvísan sjálf, prinsessan á bauninni, í essinu sínu, hann greip í símann sinn og festi essi óhljóð á myndband, um leið og ég rumskaði skaust hann inní herbergið í ofsakasti og sýndi mér framá að ég væri ekki svo saklaus, ég hryti eins og ég fengi borgað fyrir það-og ef ég voga mér að pikka í hann eða þenja mig yfir hrotunum í honum þá nebbnir hann alltaf sönnunargögnin sem hann hefur á mig-jámm Dedda litla prinsessa hrýtur.
Enn að allt öðru Elli góðvinur Þrándar á kisu sem var að gjóta einhverjum haug af ketlingum og fáum við að halda einum-tíhí, það vantar unga á heimilið og etta góð upphitun og forskot á sælununa-tíhí.
Fuglaflensa greinist í fuglum á Borgundarhólmi
Fuglaflensuveira af gerðinni H5 hefur greinst í dauðum svönum, sem fundust á dönsku eyjunni Borgundarhólmi. Ekki er ljóst hvort um er að ræða H5N1 afbrigði veirunnar, sem getur borist í menn, en það er þó talið líklegt. Rannsóknir á dauðum músváki, sem fannst í nágrenni Næstved á Sjálandi fyrir nokkru, leiddu í ljós að hann hafði drepist af völdum H5N1 fuglaflensuveiru, það má lesa nánar um fréttina á www.mbl.is og svo var annað sem vakti áhuga minn það eru Franskir námsmenn hvattir til mótmæla í kvöld
lög franskra mennta- og háskólanema hafa hvatt námsmenn til að fjölmenna í mótmælasamkomur í borgum og bæjum landsins í kvöld til að mótmæla fyrirhugaðri lagasetningu um breytingar á atvinnulöggjöf landsins. Mér fynnst til skammar hvernig er komið fram við ungmennin sem eiga að vera framtíð landsins og eiga að byggja velferð á hverju? Skv. þessari lagasetningu er engin misskun sýnd og vanvirðing við ungmennin sem eiga að halda landinu og þjóðinni í raun og veru uppi næstu áratugina, skamm skamm og sveiattan, þetta er til skammar.
Vorum að fá nýtt skjákort og trubblaðanettenginu svo ég er farin að vafra um netið og japla á ávöxtum-tíhí, ójá Taggart í kvöld guð forði mér frá því að missa af því, knus knus.

fimmtudagur, mars 30, 2006

Detta mér allar dauðar lýs af höfði

Klór hefur víst mjög langan líftíma í háloftunum sem á víst að bæta gráu ofan á svart, tíhí, ég sit í ofvæni og bíð ettir að SigurRós renni í hlað, við ætlum að spíta í lóana, leggjast á eitt og haska þessum lærdómi af, það þýðir víst ekkert annað þegar prófin nálgast óðfluga.
Það virðist vera sama hversu mörg mjólkurkex ég háma í mig ég fæ ekki nóg af þeim, þau eru víst ávanabindandi, þau geta sótt víst í sig hef ég heyrt meiri fíkn enn nikótín, detta mér allar dauðar lýs af höfði, það hvíslaði líka því að mér lítill fugl að H2O sé álíka ávanabindandi og aðrir vímugjafar í drykkjarformi, tíhí, þá segji ég hér með stolt að ég sé H2O fíkill, tíhí.
Nú bindi ég mín kvæði í kross, verð að greiða úr flækjunni sem hefur myndast fyrir aftan hnakkann á mér, tíhí.

Nátthrafn sem blaðrar í svebbni

Mig óraði ekki fyrir því að ég væri ein af þeim sem samkjaftaði ekki í svebbni. Þegar ég vaknaði í morgun bað ég um stubbaknus eða stórt faðmlag, þá var mér bent á það að ég hefði verið blaðrandi í nótt um alveg hreint ótrúlegan hlut, hvort opið væri framá gang því það væri svo mikill kuldi í svefnherberginu, ég man ekki svipinn enn get rétt ýmindað mér viðbrögðin frá Þrándi, Beta mín það er vegna þess að svefbbnherbergisdyrnar standa galopnar framí stofu, daaah, TÍHÍ.
Ég er enn að rembast við að læra í Jarðfræðinni, það þarf sterkt bein í nebbanum til að koma hlutum í verk stöku sinnum, annaðhvort skortir mig bein í nebbann eða sjálfsagann, måske hvort tveggja.
Ég get samt varla beðið ettir páskunum, ekki það að ég ætli að planta mér í stofunni fyrir framan barnatímann og háma í mig súkkulaði-egg, nei ekki beint, enn tíminn sem næst til að rækta sambandið við fjölskylduna og sína nánustu er dýrmætur, hvað er betra enn snæða góðan málsverð með öllum þeim sem standa þér næstir í þessu blessaða lífi og gefa tilgangi og tilvist þinni á þessari blessaðri jörð tilgang.
Í sakleysi okkar lágum við skötuhjúin eins og tvær klessur í rúminu í gærkvöldi með think-padið á milli okkar á glugga í myndina Fluerne På Væggen, sem er nokkurskonar dönsk heimildar mynd, sem svífst einskis, þar teflir saman hinum ýmsu svikamyllum sem fyrir fynnast í dönsku þingkerfi og ung kona að nabbni My sem er komin á ansi heitar slóðir og er söguþráðurinn rekinn út frá annars vegar hennar sjónarhorni og hins vegar dansk þingmanns í tilvistarkreppu, TÍHÍ.
Enn aftur að gærkvöldinu, í miðjum klíðum þá hringjir ericsson síminn minn, litla ljósið mitt, tíhí, hinu megin á línunni er Jóhanna frænka, hún virðist vera að kabbna úr tilhlökkun og kemur því loksins útúr sér að ég eigi að stilla á léttbylgjuna á útvarpinu mínu, ríf ég tölvuna úr fanginu af Þrándi með tilheyrandi látum og ræðst í að fynna stöðina að sökum þess að útvarp er eitt af því sem væri tilvalin gjöf til okkar, því það fyrirfynnst ekki í kotinu okkar í Rauðalæknum, þá glymur þessi gamli slagari sem ég og Jóhanna frænka vorum vanar að raula með uppí rúmi hjá henni í DENN undir sæng með tárvot augun, hún raulaði restina af laginu fyrir mig og svo sobbnaði ég vært eins og lítið barn sem hefði fengið að heyra vögguvísuna sína rétt fyrir svebbninn, tíhí.
Enn að allt öðru, það grípur óhug að lesa þessar fréttir, það er fjarri að H5N1 sé eina skaðlega flensugerðin. Eins og gefur að skilja er H5N1 einungis eitt af mörgum afbrigðum en níu gerðir eru til bæði af H-stofni veirunnar og N-stofni hennar. Asíuflensan, sem braust út á árunum 1889-90, var t.d. H2N2 afbrigði flensunnar af A-stofni en spænska veikin var H1N1 afbrigði hennar. Auk þessa eru fjölmargar aðrar flensugerðir til sem hrjáð hafa menn í gegnum tíðina. Ég veitikki með ykkur mínir kæru vinir enn hvers þurfum við að gjalda í þessum heimi, þegar það má ekki lengur borða það kjöt sem var eitt sinn talið hvað hollast og best fyrir beinin, eins og ég nebbdi fyrr þurfum við ekki öll að bera sterkt bein í nebbanum? huuum, góðir straumar til þeirra sem minna meiga sín, farin að hella uppá annan kaffibolla og taka þvottinn af snúrunni ég er búin að vera alltof löt í hússtörfunum undanfarna dagan engin misskun, knus knus.

miðvikudagur, mars 29, 2006

Nám er vinna

jámm ég get staðfest það ég sit og er að reyna að koma mér af stað að ráðast á tvo síðustu kafla Jarðfræðinnar það er sama þó maður vakni í dögun og helli uppá dýrindis kaffi, japli á grasi eins og hestur í haga eða salati eins og ég kýs að kalla það og er búin að skella Coldplay á fóninn samt fæ ég mig ekki til að hefjast handa TÍHÍ. Kanski er etta leti eða uppsöfnuð þreyta hver veit??

Sólmyrkvi er einstakt fyrirbæri úr því ég er öll í Jarðvísindunum essa dagana er við hæfi að koma með litla frétt af netinu Frá Ghana í suðri og Mongólíu í norðri munu menn geta séð tunglið renna sér fyrir sólina og myrkva hana algjörlega í fleiri mínútur í dag. Bjartur dagur mun verða myrkur sem nótt og einungis ysta rönd sólarinnar vera sjáanleg. Almyrkvinn mun fara um hluta af Vestur- og Norður-Afríku, Tyrkland og Mið-Asíu.Ólíklegt er að hans gæti nokkuð í Reykjavík að sögn mun örlítils deildarmyrkva verða vart á Austurlandi og mun hann sjást í um það bil 40 mínútur á Norðfirði. Ég veit ekki með ykkur enn í sonna tilfellum væri upplagt að skella sér Austur fyrir landsteina eða á Norðfirðina TÍHÍ.

Við skötuhjúin erum búin að vera að drekkja okkur yfir myndinni Aftur Til Framtíðar, Ari mágur hans Þrándar kom okkur uppá lagið með myndaraðirnar og er maraþon á hverju kvöldi fyrir svefninn kominn uppí vana TÍHÍ, farin að glugga í lærdómsbækurnar og drekkja mér bókstaflega í stjörnufræðinni knus knus.

þriðjudagur, mars 28, 2006

Kreppa skellur á

Svo virðist sem búist er við að kreppa muni skella á landið okkar kæra, gerum við okkur í raun og veru hvað það mundi þýða fyrir íslenskt verðlag, hlutabréf og eignir okkar?? Það gefur að kynna að ef kreppa sem spáð er að muni herja að landinu okkar lýti dagsins ljós það munu allir þá meina ég allir ríkir sem fátækir leggjast á eitt, mun verða útdeilt matarmiðum til að fóðra líðinn og mun engin undankomuleið vera fyrir nokkurn mann að komast undan henni. Fólk mun berjast um að komast úr landi án árangurs, fólk mun þurfa að streða og púla til að komast af, survivor of the fittest eins og segjir í góðu dægurlagi.
Því er um að gera að krossleggja fingur og biðja upphátt til æðri mátta um að við sleppum við þennan hrylling og öllu því sem því fylgir, það þarf ekki að líta langt yfir skammt, hver man ekki ettir kreppunni sem herjaði að heimsálfunni ástkæru Ameríku á árum áður?? Það var óhugnanalegt að sjá hvernig menn börðust um að halda lífi, komast af, lifa kreppuna af.
Ég ætla samt að slá yfir á rólegri nótur TÍHÍ, það dinglaði hjá mér maður rétt fyrir þrjú, hann talaði mjög bjagað og óskýrt, sagðist vera Votta Jehóva og boða trú sína í þeim skilningi að ég myndi hleypa honum innfyrir mínar dyr, að hann fengi að planta sér jafnvel i stofunni minni, það hefði ekki verið úr vegi að hella uppá kaffidreytil fyrir manninn og gefa honum eithvað með kaffinu enn ég hallast ekki að þessari tilteknu trú, ég er að öllu góðum vilja gerð og alin upp með það að leiðarljósi að sýna öðrum skilning og dæma ekki aðra, enn ég varð að afþakka kærkomið boð, því mér fynnst hálf óhugnalegt að hleypa svarklæddum innflytjendum inná mitt ástkæra heimili í erindi þess að kynna mér trú sem ég hef engar mætur á og hef engan sérstakan áhuga á að kynna mér til hlýtar TÍHÍ.
Er farin að vinna fyrir búinu, vona að ykkur heilsist vel og hafiði tekið ettir því að það er farið að snjóa eilítið þessa dagana hérna sunnanmegin á landinu TÍHÍ, Knus Knus Dedda Litla Prinsessa.

mánudagur, mars 27, 2006

Víðilundur 1

Helgin leið hratt reyndar alltof hratt við komum á föstudagseftirmiðdeginum ettir um 4 klst. akstur, sveitasælan er ekkert smá afslappandi, við vorum mjög ánægð með bústaðinn og umhverfið það var mikill skafrenningur enn sólin var á lofti svo ekki spillti því að við vorum fyrir norðan land svo við gátum notið reikstjarnanna, gervitunglanna, stjarnanna og norðurljósanna, það var frekar spes að liggja í kúsí pottinum með að dreypa á rauðvíni og liggja flatur gónandi á græna og fjólublá fleti.
Ég var búin að gleyma stemmningunni sem fylgir því að grilla, höfðum með okkur, lamb, svín og humar á grillið, svo klikkar ekki að blanda saman í gott salat, það kom uppá yfirborðið að Þrándur elskar salatblönduna mína, lykilatriðið er hráefnið sem bætt er í jöklasalatið, fetaostur, mosarella og sólþurkaðir tómatar það er allur galdurinn.
Við kíktum við á Skagaströnd, í Vilta Vestrið í Kántríbæinn fræga, Þrándur var búinn að gera sér einhverjar bjartsýnisvonir um að etta yrði eins og að ganga inn í heimabæ Lukku Láka enn því varð aldeilis ekki að, þarna voru menn kraftgöllum klæddir og glottandi útí annað, funduð Cherokí styttu sem er Indíana tákn kántríbæja og svo var skyllti á staðnum þar sem hægt var að stinga höfðinu inní þartilgerða mynd og þá var líkt og þú værir kúreki.
Þó við hefðum viljað vera lengur varð ekki að því, vinnan beið okkar heima, brunuðum í bæinn og fengum okkur eina glóðvolga pizzu og kúruðum yfir Matador sem er án efa ein fyndnasta mynd sem ég hef séð í langan tíma.
Helgina endaði eins og í sögu, ég fékk að heyra þau 3 orð sem eru hvað kærust, ég brast í grát við að heyra þau, ÉG ELSKA ÞIG, það að heyra þessi orð frá einhverjum sem er hvað mest dýrmætastur í lífi sínu er ólýsanleg tilfinning, nú veit ég hvernig það er að kabbna, að kabbna úr ást TÍHÍ.
Farin að sötra á Caffe blanco og rembast við að klára jarðfræðikaflann, Knus Knus Dedda Litla Prinsessa.

Fiðrildi heita á latínu Lepidoptera

Ég hef alltaf verið skotin í firðrildum, veik fyrir vængjunum og hvernig þau lifa í gróðrinum í heillangan tíma og á endanum springa þau út, taka hamskipti frá því að vera litla ljóta lifran í bjútífúl firðildi, málið er það að ég nebbni fiðrildi þar sem ég sit nú í makindum mínum með eitt stykki fiðrildi í maganum, tilhlökkun í frí og að losna frá öllu stressinu sem fylgir því að búa í borginni. Ég velti mér á alla kanta í nótt og var svefnvana eins og lítið barn að taka tennur, langaði svo að pikka í hann Þránd minn og halda honum andvaka með mér enn fannst það sjálfselskt af mér svo ég sleppti því TÍHÍ.

Annað sem ég vildi koma inná eru spékoppar, öll dreymdum við um að hafa spékoppa þegar við vorum á uppvaxtarárum, fettum okkur og brettum og gerðum hinar ýmsu kúnstir með andlitinu, enn er það í rauninni það sem við viljum, hver segjir að maður þurfi að hafa spékoppa til að vera krúttlegur, ég efast um að það sé gaman að láta klípa sig allan og að vera knúsaður það fast að allir öndunarvegir stíbblast TÍHÍ kanski er ég bara afbrýðissöm því ég var ein þeirra sem gaf ekki upp vonina á að fá krúttlega koppa á kinnarnar?

Var að velta vöngum mínum yfir því og láta hugann reyka hvað fær karlmenn til þess að geta einungis einbeitt sér að einum hlut í einu, huum, nei þeir eru ekki allir solleiðis hugsaði ég ekki hann Þrándur minn allavega, í því hringir síminn hjá mér, það er Þrándur og hefur hann gleymt lyklunum að íbúðinni sem hann er að mála heima og var komin eins langt og augað leiðir þegar hann þurfti að snúa við, þá hugsaði ég með mér þetta myndi ekki henta mig, það er sömu sögu að segja þegar hann er í tölvunni, þá reynist erfiðara fyrir mig að ná sambandi við hann enn geimfara í 300ljósára fjarlægð TÍHÍ, enn hver hefur sína kosti og hver hefur sína galla TÍHÍ.

Flugvél Loftleiða Icelandic í 20 daga lúxusferð kringum hnöttinn er ég búin að missa vitið, þegar ég sá þessa fyrirsögn á www.mbl.is í mínum daglega rúnt þá var mér allri lokið.

Þar sem ég sit núna heima í il sötrandi á kaffi og volgri appelsínu frá því í gærkvöldi þá er mér hugsað til þessa Tvennt lést og 45 slösuðust í sprengingu í vopnageymslu í Afganistan GUÐ hvað ég er fegin að vera lítil stelpuhnota frá Íslandi enn ekki frá einhverju óeyrðalandi, við gerum okkur góðir hálsar og landmenn ekki fulla greyn fyrir því hvað við búum vel og erum heppin að vera stödd þar sem við erum í dag óhullt og án ógnar við árásir æðri landa. Farin að vafra um netið Knus Knus Dedda Litla Prinsessa.

fimmtudagur, mars 23, 2006

Fuglaflensan herjar að nágrannaríkjum

H5N1 afbrigði fuglaflensuveirunnar talið festa sig neðar í öndunarfærum manna en fugla, ég veitikki með ykkur enn etta skaut mér skelk fyrir bringu þegar ég í sakleysi mínu tók minn daglega rúnt yfir www.mbl.is svo virðist sem fólk sé annsi óupplýst um þessa hryllilegu veiki, það er til fólk sem þú og jafnvel ég þekkjum sem telur sér stafa hætta af því að lýta út um gluggann í stofunni sinni ef krumma ber við eða önnur slík fuglategund, ég hef það að leiðarljósi að ég mun enn bera á borð fyrir kallinn minn kjúklíngakjöt og sömuleiðis hann fyrir mig, hver man ekki ettir kúariðuveikinni sem setti allt á annan endann á sínum tíma?? Það er hryllileg staðreynd að fólk allt í kringum okkur, í danaveldi og þeir sem hafa það brä i sverige þurfa að vera varir við sig því flensan virðist hafa tekið stóran sess allt þar í kring, ég mæli með því fyrir þá sem eru að velta essu fyrir sér og vilja kynna sér málið til hlýtar að fylgjast reglulega með www.mbl.is þar er daglega eithvað kræsandi um flensuna að renna augunum yfir.

Dedda Litla Prinsessa er farin að sötra á svörtu kaffi yfir tölvuskjánnum og ætlar að drekkja sér í jarðfræðivinnu, var að komast að því að ab mjólk með melónum og múslí er frábær samsetning og fer vel í maga sonna snemma dags TÍHÍ, KNUS & ATTUR KNUS.

miðvikudagur, mars 22, 2006

Lopapeysa og trilljón sængur

jámm það lýtur allt út fyrir það að við skötuhjúin séum að halda í langa ferð um 2-3 tíma akstur hver veit kanski lengur, við sitjum og rennum yfir heimasíður matvöruverslana að grennslast um umm góðan grillmat og annað sniðugt, það þarf að grípa til gömlu góðu aðferðarinnar og gera innkaupalista, látum hugan reyka huuum, nei höfum komist að þeirri niðurstöðu að gera kapphlaup á leið á vit ævintýranna og rómantíkarinnar, slá essu upp í kæruleysi og verlsa bara á leiðinni uppí bústað það er sonna viss útileigufílingur yfir því ef þið skiljið?? Nú er bara um að gera að ráðast á þvottinn, ég ræðst ekki á garðinn þar sem hann er lægstur þar sem ég hef verið þvottaefnalaus í rúma viku engin vorkun þá verð ég að draga fram ermar og byrja að hamast á þvottavélinn svo allt sér klín fyrir helgina TÍHÍ, draga fram gömlu góðu lopapeysuna, gremslast eftir hreinum rúmfötum og þar sem við verðum bara tvö í bústaðnum verða allar sængurnar nýttar, þær eru held ég án þess að ýkja 8 tallsins, þeim verður plantað á stofugólfinu þar sem sötrað verður á rauðvíni yfir kvöldmatnum, ummmh rómó og skellt sér í pottinn með rauðvínsglas við hönd, afsakið orðbragðið enn djöfulsins lúxus líf verður etta TíHÍ.

Er farin fram í cocina að japla á leyfum af kjúllanum frá því fyrr í kvöld, Knus og attur Knus Dedda Litla Prinsessa.

Fréttir af Deddu Litlu Prinsessu

jámm góðir hálsar ég hef ákveðið að koma mér upp sonna skilaboðaskjóðu héddna mun ég skrifa hugsanr mínar og vangaveltur. Það er frekar rólegt hjá mér núna etta líf, er að reyna að komast í gegnum námið mitt sem er ekkert svo strembið ef því er sýnt smá áhuga enn hann er ekki sjálfgefinn hann krefst sjálfsaga sem langt er oft að sækja í enn ég tel mig hafa fundið hann FÆNALLÍ. Ég og Þrándur erum að fara í Rómantíska ferð í sveitasæluna um næstu helgi, leið okkar liggur norður með Skagaströnd í átt að Varmahlíð, þar munum við turtildúfurnar eyða þremur yndislegum dögum í sumarbústað sem foreldrar mínir voru svo yndisleg að færa okkur á silfurfati. Þetta er alveg fullkomið tækifæri til að rækta sálina og hreinsa hugann, næsti mánuður verður annasamur þá verð ég nebblilega kynnt fyrir tengdó, jámm þau eru búsett í KÖBEN svo ég hef ekki áður séð þau í eigin persónu enn ég mun ná að kynnast þeim vel því þetta verður ekki stutt stopp hjá þeim því þau munu nebblilega dvelja í REYKJAVÍK í heilan mánuð.

Enn að þessari ferð í kósí bústað ég ætla sko að búa við algjöran lúxus ætla að tralla upp í sveit með honum Þrándi mínum í lopapeysunni minni sem amma gaf mér og í kuldaskónum og munum við skötuhjúin renna af stað árla föstudags í kuldaskónnum burrrrrr og með gímítöfflurnar í farteskinu TÍHÍ, og slaka á í sveita sælunni í heitum potti með handfylli af góðgæti og dýrindis grillmat hver veit nema Gúrmetsteik verði skellt á grillið MÅSKE.

Svo er það ekki frásögu færandi enn ég ætla samt að tilkynna ykkur hér með að Dedda Litla Prinsessa er bara að standa sig alveg hreint afbragðsvel essa dagana hún er í nammibindindi sem er að vekja mikla lukku og færa henni mikla ánægju og vonum við að framhaldið eigi ettir að verða eins að hún falli ekki í gröf MÖNNSINS, krossleggið fingur TÍHÍ.

Held ég fari að vafra um á netinu í dolítinn tíma þar til kallinn skundar heimleiðis í hádegismat, Dedda kveður að sinni.