Dedda Litla Prinsessa-Lukkuleg Pempía Á Pinnahælum

1. Eigandi Elísabet Halldórsdóttir 2. Eiginmaður Þrándur Tryggvason 3. sonur Steinar Máni Þrándarson 4. Lukkuleg pempía á pinnahælum

mánudagur, mars 27, 2006

Víðilundur 1

Helgin leið hratt reyndar alltof hratt við komum á föstudagseftirmiðdeginum ettir um 4 klst. akstur, sveitasælan er ekkert smá afslappandi, við vorum mjög ánægð með bústaðinn og umhverfið það var mikill skafrenningur enn sólin var á lofti svo ekki spillti því að við vorum fyrir norðan land svo við gátum notið reikstjarnanna, gervitunglanna, stjarnanna og norðurljósanna, það var frekar spes að liggja í kúsí pottinum með að dreypa á rauðvíni og liggja flatur gónandi á græna og fjólublá fleti.
Ég var búin að gleyma stemmningunni sem fylgir því að grilla, höfðum með okkur, lamb, svín og humar á grillið, svo klikkar ekki að blanda saman í gott salat, það kom uppá yfirborðið að Þrándur elskar salatblönduna mína, lykilatriðið er hráefnið sem bætt er í jöklasalatið, fetaostur, mosarella og sólþurkaðir tómatar það er allur galdurinn.
Við kíktum við á Skagaströnd, í Vilta Vestrið í Kántríbæinn fræga, Þrándur var búinn að gera sér einhverjar bjartsýnisvonir um að etta yrði eins og að ganga inn í heimabæ Lukku Láka enn því varð aldeilis ekki að, þarna voru menn kraftgöllum klæddir og glottandi útí annað, funduð Cherokí styttu sem er Indíana tákn kántríbæja og svo var skyllti á staðnum þar sem hægt var að stinga höfðinu inní þartilgerða mynd og þá var líkt og þú værir kúreki.
Þó við hefðum viljað vera lengur varð ekki að því, vinnan beið okkar heima, brunuðum í bæinn og fengum okkur eina glóðvolga pizzu og kúruðum yfir Matador sem er án efa ein fyndnasta mynd sem ég hef séð í langan tíma.
Helgina endaði eins og í sögu, ég fékk að heyra þau 3 orð sem eru hvað kærust, ég brast í grát við að heyra þau, ÉG ELSKA ÞIG, það að heyra þessi orð frá einhverjum sem er hvað mest dýrmætastur í lífi sínu er ólýsanleg tilfinning, nú veit ég hvernig það er að kabbna, að kabbna úr ást TÍHÍ.
Farin að sötra á Caffe blanco og rembast við að klára jarðfræðikaflann, Knus Knus Dedda Litla Prinsessa.

6 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Þetta hefur verið rosa romó hjá ykkur beta mín :)

11:57 f.h.  
Blogger dedda said...

Jámm það var það og helgin endaði pörfektlí á þeim 3 orðum sem eru mér hvað kærust og á endanum brast ég í grát og réð ekki við mig nú veit ég hvernig er að KABBNA, að KABBNA úr ást TÍHÍ.

12:11 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

æææ þetta er ekkert smá sætur endir á færslunni þinni :) og djöfull öfundaði ég ykkur að vera á leiðinni uppí sumó ALLA HELGINA:( en ég var að vinna ! ömó.. en já allaveganna gott að þú sért svona happy Beta mín og þú mátt eiga það að hann Þrándur er yndislegur og algjööör foli :)

12:32 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Yndislegt Beta mín, gott að þið eruð hamingjusöm :)

12:32 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

gott að heyra að þú sért hamingjusöm lingurinn minn , þú átt það hundrað prósent skilið :* elska þig kv Sunster

1:23 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

æææææææææææææææææææææææææææææææææææææææææææææææææææææ þetta er svoooo sæt :o) guð minn góður og gott að þú sért hamingjusöm : ) verð að fara að kíkja á ykkur skötuhjúin : )

3:53 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home