Dedda Litla Prinsessa-Lukkuleg Pempía Á Pinnahælum

1. Eigandi Elísabet Halldórsdóttir 2. Eiginmaður Þrándur Tryggvason 3. sonur Steinar Máni Þrándarson 4. Lukkuleg pempía á pinnahælum

miðvikudagur, mars 22, 2006

Lopapeysa og trilljón sængur

jámm það lýtur allt út fyrir það að við skötuhjúin séum að halda í langa ferð um 2-3 tíma akstur hver veit kanski lengur, við sitjum og rennum yfir heimasíður matvöruverslana að grennslast um umm góðan grillmat og annað sniðugt, það þarf að grípa til gömlu góðu aðferðarinnar og gera innkaupalista, látum hugan reyka huuum, nei höfum komist að þeirri niðurstöðu að gera kapphlaup á leið á vit ævintýranna og rómantíkarinnar, slá essu upp í kæruleysi og verlsa bara á leiðinni uppí bústað það er sonna viss útileigufílingur yfir því ef þið skiljið?? Nú er bara um að gera að ráðast á þvottinn, ég ræðst ekki á garðinn þar sem hann er lægstur þar sem ég hef verið þvottaefnalaus í rúma viku engin vorkun þá verð ég að draga fram ermar og byrja að hamast á þvottavélinn svo allt sér klín fyrir helgina TÍHÍ, draga fram gömlu góðu lopapeysuna, gremslast eftir hreinum rúmfötum og þar sem við verðum bara tvö í bústaðnum verða allar sængurnar nýttar, þær eru held ég án þess að ýkja 8 tallsins, þeim verður plantað á stofugólfinu þar sem sötrað verður á rauðvíni yfir kvöldmatnum, ummmh rómó og skellt sér í pottinn með rauðvínsglas við hönd, afsakið orðbragðið enn djöfulsins lúxus líf verður etta TíHÍ.

Er farin fram í cocina að japla á leyfum af kjúllanum frá því fyrr í kvöld, Knus og attur Knus Dedda Litla Prinsessa.

3 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Hæ Beta mín lærðirðu þetta af mömmu þinni hahhhhh
byrja að þrífa þegar tauið er orðið að fjalli?

kveðja m....

8:25 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Sunna: Beta þú ert nú meiri húsfrúin :O) elska þig og skemmtu þér vel í bústaðnum kiss kiss

11:14 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Gvuð nei POTTÞÉTT EKKI!! Mamma hennar Betu er örugglega mesti snyrtipinni sem eg veit um.. ekki nóg með að hún hafi þvegið af henni heldur braut hún þvottinn líka saman fyrir hana og raðaði öllu skipulagslega eftir LIT í skápinn.. heh.... :)

3:38 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home